blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 23

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 43 til stolts og sjálfstæðishugsjóna Grænlendinga og Færeyinga. En að textanum undanskildum er lagið hrein snilld. Volta er mjög fín plata. Þótt hún sé aðgengileg eru ýmis smáatriði sem gera það að verkum að hún verður enn betri við endurtekna hlustun. En meistaraverk sem breytir gangi tónlistarsögunnar getur hún varla talist. Enda er kannski ósanngjarnt að krefjast þess af rúmlega fertugri konunni, þótt hún sé stollt okkar íslendinga og eitt af fáu sem getur fengið okkur til að finnast við eiga raun- verulegar hetjur nú þegar fótbolta- kappar okkar hafa ákveðið að kúka saman í brækurnar. DECLAREINDEPENDENCE j sPtLAR^UMj r -ÚAZ\ .Jm- S ■ , '.mué&'t MTV velur Úlpu „Það var bara haft samband við okkur,“ segir Magnús Leifur, með- limur hafnfirsku sveitarinrtar Úlpu, en lag sveitarinnar, Yeah That’s Ftight, hefur verið valið til að nota í auglýsingaherferð á heimsvísu til að vekja athygli á eyðnisjúk- dómnum. Herferðin kallast Staying Alive, AIDS Awareness Campaign og er á vegum sjónvarpsstöðvar- innar MTV. Auglýsingaleikstjórinn Ivan Zacharias óskaði sérstaklega eftir tónlist Úlpu í verkefnið, en Magnús veit ekki hvernig hann kynntist tónlist sveitarinnar. „Ég veit það fyrir víst að hann var að vinna að auglýsingu hér á íslandi síðasta sumar. Hvort hann hefur komist yfir plötu frá okkur veit ég ekki.“ Úlpa vinnur nú að sinni þriðju breiðskífu sem hún áætlar að gefa út á þessu ári. „Það er verið að gera klárt fyrir upptökur,” segir Magnús. „Það er stefnt að því að rjúka i þetta í sumar.” Útgáfudagur skífunnar er ekki kominn á hreint, en Magnús segir hana koma út á þessu ári og útilokar ekki að hún verði jólaplatan í ár. atli@bladid.net Leynir á sér um eiturlyfin, tónlistarbransann og Kalla Bjarna: Tónlistarmaðurinn Kalli Bjarni situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að tvö kíló af kókaíni fundust í fórum hans á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku. Einar Ágúst Víðisson, fyrrverandi meðlimur Skítamórals, þekkir undir- heimana af eigin reynslu, en hefur verið edrú í tæpt ár. Einar segir eiturlyf ekki vera á hverju strái í tónlistarbransanum. Þvert á móti segist hann hafa stundað ólifnaðinn á sínum tíma með fólki sem tilheyrði ekki bransanum. Hann segist skilja það að mál þekktra skemmtikrafta rati í fjölmiðla með tilheyrandi nafn- og myndbirtingum. Gæti ekki fjármagnað kaupin „Hann gæti ekki átt |' peninga til að fjármagna svona kaup. Ég tel að hann hafi verið þvingaður út í þetta út af fíkniefnaskuld,” sagði móðir Kalla Bjarna í viðtali í Kastljósi Sjónvarps- ins ó þriðjudag. Kalli var sem kunnugt er stöðv- aður í Leifsstöð á fimmtudaginn i síðustu viku með tvö kíló af kókaíni í farangri sínum. Andvirði efnanna þegar þau eru komin á götuna er | talið hlaupa á tugum milljóna og á " Kalli yfir höfði sér langa fangels- isvist. Hann situr nú í gæsluvarð- haldi á Litla-Hrauni. í viðtali Kastljóssins kom einnig fram að móður Kalla grunaði að hann væri kominn í eiturlyfjaneyslu. „Mig grunaði það. Ég gat ekki sannað það, en það var ýmsilegt sem benti til þess og sérstaklega það að hann er á frystitogara. Hann er búinn að vera á frystitogara í tvö ár - en hann er alltaf blankur. Hann á ekki fyrir mjólk í grautinn. Hann gat ekki gert neitt nema maður hjálpaði honum og skuldar botnlaust. Það er eitthvað að þegar svoleiðis er því þetta er mjög gott pláss sem hann var í.“ Hún telur álagið sem fylgdi Idol-stjörnuleit og frægðinni í kjölfarið hafa valdið því að Kalli hóf aftur að neyta eiturlyfja. Hann hafði áður verið í neyslu. í DV á miðvikudag kom fram að samkvæmt heimildum blaðsins hefðu Kalla verið settir úrslitakostir vegna skuldar við fíkniefnasala. Hann átti að fara til Frankfurt í Þýskalandi og þaðan átti hann að smygla kókaíni til íslands. i bréfi frá Kalla til móður sinnar, sem hún las upp úr í Kastljósinu, skrifar hann að handtakan í Leifsstöð hafi í raun verið það besta sem gat komið fyrir þar sem hann væri ennþá spólandi í sama farinu gengi hann laus í dag. hálf einmanaleg barátta á vígvelli ógæfunnar. Ég tjúttaði bara með fólki sem var ekki í poppbransan- um. Það virðist vera rosalega auð- velt fyrir fólk að gera ráð fyrir þvi að þessi bransi tengist eitthvað sérstaklega eiturlyfjum.“ Einar segir kraftaverk hafa orðið til þess að hann sneri við blaðinu. „Ég ætlaði mér ekkert að koma til baka. Ég ætlaði bara að vera fullur og dópaður og drepast bara. Ég var alveg búinn að gefast upp á því að geta þetta. Svo var ég bara leiddur af hrikalega góðu fólki í sannleikann um að handan við þessa erfiðleika væri lausn og ég gæti eignast líf aftur. Ég var bara búinn að missa trúna, maður verður svo blindur. Svo var mér kynnt þessi lausn sem er í boði fyrir þá sem glíma við þennan sjúkdóm, þennan alkó- hólisma. Kollegar mínir í bransan- um tóku vel á móti mér og sögðu ,Einar, það er hægt að fá lausn frá þessu og það er hægt að eign- ast gott líf. Það er ekki afplánun að vera edrú. Það er hægt að lifa frábæru lífi.’ Ég hugsaði með mér ,Ég trúi þeim ekki, en ætla að gefa þessu séns’. Og það virkaði." Hægt að komast í gegnum þetta Skaðsemi fíkniefna hefur lang- varandi áhrif og Einar segir neysl- una hafa skilið hann eftir stórskað- aðan á bæði líkama og sál. „Ég er rétt að byrja að rísa upp úr rústun- um. En ég veit og finn fyrir þvi, að þegar maður gefst upp fyrir sjálf- um sér þá er þetta er hægt. Alveg sama hversu miklir peningar eru í spilinu og annað. Það er hægt að komast í gegnum þetta. Ég reyni að hjálpa öðrum eins °g óg get. Reyni að nýta þessu reynslu. Þegar ég lít til baka hugsa ég: ,Var ég á þessari skoðun? - Djöfull var ég vitlaus, maður.’ Ég spyr bara hvað var í gangi í skall- anum á mér?“ ★ ★★★★ „Skífan er í heildina poppuð og skemmtileg, en það vantar svolítið upp á ferskleikann. Maður hefur séð aðra beita brögðunum sem sveitin beitir nokkrum sinnum áður.“ AFB ★ ★★★★ „Because of the Times kom mér í opna skjöldu. Bræðr- unum þremur hefur ásamt frænda sínum tekist að blanda kántrítónlist saman við nútímarokk og ról með frábærum árangri." AFB ★ ★★★★ „Skífan er svo guðdómlega falleg að á köflum var ég kominn á hnén, baðandi höndum til himins - grenj- andi um vægð eins og syndarinn sem ég er. Megi drottinn blessa Soulsavers.” AFB Modest Mouse We Were Dead... Kings of Leon Because of the times Soulsavers It’s Not How Far. Móðir Kalla Bjarna segir hann hafa verið burðardýr: 42 FÖSTUDAGUR 8. JUNI 2007 blaðið Mínus - The Great Northern Whalekill Seabear - The Ghost That Carried Us Away Nine Inch Nails - Year Zero Maroon 5 - It Won’t Be Soon Before Long Chris Cornell - Carry On Jón Ólafsson - Hagamelur tónlist Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@bladid.net „Það hlýtur að vera ótrúlega slæmt ástand sem rekur manneskju í það að reyna að komast í gegnum toll í Keflavík með tvö kíló af fíkniefn- um,“ segir Einar Ágúst Víðisson tónlistarmaðurummálldol-stjörn- unnar Kalla Bjarna. Einar lenti á sínum tíma í klóm eiturlyfjadjöf- ulsins en kveðst nú hafa verið edrú í næstum ár. Kalli Bjarni sit- ur í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni eftir að hann var stöðvaður í Leifs- stöð í síðustu viku með tvö kíló af kókaíni í fórum sínum. Lýsandi fyrir ástand fíkilsins 1 viðtali i Kastljósi síðasta þriðju- dag sagðist móðir Kalla vera ósátt við fjölmiðla fyrir að nafngreina son sinn svo fljótt - löngu áður en hann hlýtur dóm fyrir glæp sinn. Einar Ágúst segir tónlistarmenn og skemmtikrafta verða að átta sig á að þeir séu búnir að biðja um athyglina. „Þegar þú ert að eiga við eitur sem drepur fólk þá má alveg segja frá því held ég,“ segir Einar. „Nafn- greiningar og ekki nafngreiningar, ég byggi lífsviðurværi mitt á því að það sé fjallað um það sem ég er að gera. Svo get ég ekkert verið að flytja inn fíkniefni og ætlast til að það sé litið framhjá því. Þetta er bara bakreikningur sem maður skrifar upp á.“ Einar segir mál Kalla lýs- andi fyrir ástand fíkilsins. „Maður dettur úr öllum tengslum við raunveru- leikann. Þú áttar þig u^| ekkert á því hvað þú ert að gera. Grunn- urinn að eiturlyfjaneyslu tónlist- armanna eins og allra annara er þessi ótti. Óttinn við að vera „Ég missti fjölskylduna mína, mannorðið, vinn- una mína, hljómsveit- ina mína og allt í lífinu, en ég varð ekki edrú. Það þurfti meira til. Samt fór ég oft í með- ferð og mig langaði svo sannarlega að vera edrú í hvert einasta skipti. Mér var bara um megn að vera það“ ekki samþykktur af öðrum. Fólk er ekki að byggja upp sjálfstraust sitt á neinu eðlilegu. Það er bara að byggja upp eitthvert egó. Egó er ein mesta sjálfsblekking sem mað- ur getur lifað í - að hafa einhverj- ar hugmyndir um að maður sé einhver æðislegur kall eða stjarna eða eitthvað. Svo er lífið ekki að fylla upp í þetta tómarúm og þá ferðu að nota eiturlyf. Þú ert svo þreyttur og þú átt svo bágt og það er svo erfitt, það skilur þig enginn og blablabla." Þorði ekki út fyrir hússins dyr Fyrir tveimur árum var Einar Ágúst dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að Dettifossmálinu svokall- aða. Einar var á þeim tíma háður fíkniefnum og mikið var fjallað um hans mál á síðum DV. Hann segist ekki hafa þorað út fyrir hússins dyr á þessum tíma. „Hugsaðu þér, maður hugsar alltaf .aumingja ég’, maður er ekk- ert að hugsa um konuna sína eða börnin sín eða foreldrana. Bara .aumingja ég’ og ,ég átti þetta ekki skilið’ og blablabla. Maður er bara uppfullur af skít. Svo er kviðinn um álit annarra og að vera dæmd- Volta, nýjasta plata Bjarkar Guð- mundsdóttur, er eins og Bjarkar er von og vísa bæði krúttleg og töff. En öfugt við margt sem Björk hefur gert undanfarið er platan mjög að- gengileg og laus við tilgerðarlega viðleitni til að vera ofur-artí. Volta er þó langt frá því að geta flokkast sem hefðbundin poppplata; þótt melódíur margra laganna falli vissu- lega í þann flokk tryggja skemmti- leg hljóð(færa)notkun og rödd Bjarkar það að við getum ennþá kallað stolt okkar Islendinga „altern- ative” tónlistarmann. Þlatan byjar ótrúlega vel. Fyrsta lagið, smáskífulagið „Earth Intru- ders“ sem hefur fengið að hljóma töluvert á helstu útvarpsstöðvum þjóðarinnar, er virkilega töff og grípandi teknópopp af bestu gerð. Þriðja lagið, ballaðan „The Full Flame of Desire”, er mjög fallegt og vel útsett lag. Næsta lag „Innoc- ence“ er einnig ágætis teknópopp. Besta lag plötunnar er „Declare Independence”. Lagið er argasta teknó af bestu sort. I einfaldleika laglínunnar leynist frumstæður kraftur sem getur varla annað en gripið þann sem hlustar og fært hann í trylltan ham. Að vísu get ég ekki neitað því að fá í hroka mínum örlítinn kjánahroll við tilhugsun- ina um Björk að reyna að höfða Miðasala hefst í dag Miðasala á tónleika Noruh Jones hefst á hádegi í dag. Tónleikarnir verða haldnir í Laugardalshöll 2. september á þessu ári, en miðasalan ferfram á midi.is, í versl- unum Skífunnar og í BT úti á landi. ur. En það versta við þetta er að þetta venst. Ef fólk áttar sig ekki á stöðunni eða er hjálpað út úr þess- um aðstæðum þá versnar þetta og versnar. Ég var ekkert edrú eftir að ég var handtekinn í tengslum við þetta Dettifossmál. Ég missti fjöl- skylduna mína, mannorðið, vinn- una mína, hljómsveitina mína og allt í lífinu, en ég varð ekki edrú. Það þurfti meira til. Samt fór ég oft í meðferð og mig langaði svo sannarlega að vera edrú í hvert ein- asta skipti. Mér var bara um megn að vera það.“ Tjúttaði ekki með bransanum Mál Kalla Bjarna hefur vakið upp spurningar um tónlistarbrans- ann og hvernig fíkniefni virðast oft vera nefnd í sömu andrá og tónlistarmenn. Einar vísar því á bug að eiturlyf séu á hverju strái í tónlistarbransanum. „Ef það er einhver sem veit hvort það er rugl í þessum bransa þá er það ég. Ég er búinn að prófa þetta allt saman,“ segir hann. „Þetta var llyn Orra Stefánsson . hlynur@bladld.net „Hipparnir vildu friö og ást - viö vildum Ferrari-bíla, Ijóskur og hnífa!“ Alice Cooper um muninn á hippum og rokkurum EINMANALEG A VIGVELLI ÓGÆFUNNAR ^ \ ' * ■Æm ; >+ \ ' * » i. FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA Innritun fyrir haustönn 2007 Innritun fyrir haustönn 2007 stendur nú yfir. Umsóknarfrestur er til 11. júní. Rafræn innritun fer í gegnum www.menntagatt.is. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans sem er opin 8.00-15.00 eða á heimasíðu skólans, www.fa.is. Eftirtaldar námsbrautir eru í boði: Bóknámsbrautir til stúdentsprófs: félagsfræðibraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskipta- og hagfræðibraut. Heilbrigðisskólinn: Heilsunuddarabraut, hjúkrunar- og móttökuritarabraut, brúarnám á hjúkrunar- og móttökuritarabraut, lyfjatæknabraut, læknaritarabraut, sjúkraliðabraut, og tanntæknabraut. -viðbótarnám til stúdentsprófs Almenn námsbraut. Nánari upplýsingar um allar þessar brautir eru á heimasiðu skólans, www.fa.is. Þar er einnig kynning á skólastarfinu, myndir úr félagsiífi o.fl. Skólinn býður upp á fjarnám allt árið. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans. Skólameistari T— • I f- ® Inendrex ÚTSALA Útsala á vor og sumarlista Friendtex 2007 Erum ^úsnæði að Faxafeni 10 merkt Míró innrömmun Mikið úrval af glæsilegri vöru Nú er hægt að dressa sig upp Dæmi um verð Áður Nú Peysa 6400 4500 Pils 4800 3400 Gallabuxur 8800 5000 Toppur 3900 2000 www.friendtex.is Sími 568 2870' - föstudaga 10.00 - 18.00 j laugardaga 10.00-14,00 j

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.