blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 27
blaöiö FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 47 Stöð 2 kl. 21.15 Hálofta hryllingur Flightplan er hrollvekjandi spennumynd með Jodie Foster í aðalhlutverki. Kyle er nýorðin ekkja og ákveður að fljúga með dóttur sína frá heimili þeirra í Berlín til Bandaríkjanna. Kyle sofnar í flugvélinni en þegar hún vaknar aftur er dóttir hennar horfin. Martröðin hefst þó ekki fyrir alvöru fyrr en Kyle er sagt að hún eigi enga dóttur. Þá eru góð ráð dýr og vesalings Jodie þarf að taka á öllu sínu til að endurheimta dóttur sína, ef hún átti hana þá einhvern tímann. Skjár einn kl. 20.00 Endalaust drama One Tree Hill er bandarísk unglingasería þar sem húmor, dramatík og bullandi rómantík fara saman. Það er síður en svo auðvelt að lifa af unglingsárin. Ekki nóg með það að þeir þurfi að glíma við bólur og hárvöxt á undarlegum stöðum heldur þurfa unglingarnir í bænum Tree Hill að glíma við svo mikið drama að helmingurinn væri meira en nóg. Unglingarnir halda í ferðalag til að bjarga Mouth úr vandræðum. Haley og Nathan fá annað tæki- færi til að vera saman. Stöö 2 Bíó kl. 20.00 Of svalur! Be Cool er framhald hinnar geysivinsælu gáskafullu glæpa- myndar Get Shorty. Hér er sama gengið mætt til leiks og gáskinn orðinn jafnvel ennþá meiri. Eðalkrimminn og snyrtip- inninn Chili Palmer, leikinn af John Travolta, er búinn að fá sig fullsaddan á kvikmynda- bransanum og ákveður nú að reyna fyrir sér í hörðum heim tóniistarinnar. Líkt og fyrri myndin er Be Cool byggð á sögu reyfarameist- arans Elmore Leonard. Auk Travolta leíka Danny DeVito, Vince Vaughn og Uma Thurman í myndinni. Jericho bjargað: Heimsendi frestað Aðdáendur Jericho-þáttanna sem sýndir eru á Skjá einum geta nú andað léttar því CBS-sjónvarps- stöðin hefur hætt við að taka þá af dagskrá eftir hörð mótmæli aðdá- enda þáttanna. Sjónvarpsstöðin tók framleiðslu þáttanna úr sam- bandi í síðasta mánuði en þá upp- hófst mikil alda mótmæla þar sem fjölmargir aðdáendur þáttanna skrifuðu sjónvarpsstöðinni og mótmæltu þessari ákvörðun. Eitt af þeim ráðum sem aðdáend- ur þáttanna gripu til við mótmæli sín var að senda CBS hnetur. Þá að- gerð er hægt að rekja til lokaþáttar síðustu þáttaraðar þar sem ein að- alpersónan svarar, þegar honum er sagt að gefast upp, „nuts“. Sem þýðir auðvitað hnetur. Svo mik- ið angraði hnetuflóðið forsvars- menn að talsmaður fyrirtækisins, Nina Tassler, þurfti sérstaklega að biðja aðdáendur þáttanna um að hætta að senda stöðinni hneturn- ar góðu. CBS hefur pantað sjö nýja þætti af Jericho og aukist áhorfið í Banda- ríkjunum, en það hafði dvínað undir lok síðustu þáttaraðar, mun stöðin panta enn fleiri þætti. Það er því ljóst að Skeet Ulrich og félagar hans í dauðadæmda smá- bænum Jericho hafa aðeins frestað heimsendi sínum en það er bókað mái að það má lítið út af bera til að Skeet og félagar þurfi að sækja um atvinnuleysisbætur. r Kodak Koddk EasyShare V610 6.1 milljón pixla 2.8" Hágæða LCD skjár! Hágæða Schneider linsur Linsa nr. 1: 38-114mm Linsa nr. 2: 130-380mm 5 cm nærmyndataka Ljósnæmni ISO 64 - 800 Hliðrar myndum sjálfvirkt Bluetooth tenging innbyggð Videó með hristivörn Fæst í verslunum: Hans Petersen | BT | Office 1 | EJS | Myndval í mjódd | Pedromyndir v_________________________________________________________________

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.