blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 32

blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 blaöiA Annars hef ég tekið tvö pólitísk próf að undanförnu og í þeim báðum hef ég lent nákvæmlega á miðjunni. Þannig að líklega er ég framsóknarmaður Engin karlremba Það hefur verið kvartað undan því að of fáar konur komi fram í Silfri Egils og þú hefur verið sak- aður um karlrembu. Hverju svar- arðu því? „Ég er algjörlega laus við það að vera karlremba hvað sem menn segja um Silfrið. Hlutföllin í samfélaginu eru bara svona 30/70 - í ríkisstjórn og Alþingi og hjá yfirmönnum á fjöl- miðlum og svo er það ennþá verra í stjórnun fyrirtækja. Þátturinn speglar það einfaldlega. En það er fullt af klárum konum sem koma oft til mín. Ég er sennilega af fyrstu kynslóð á íslandi sem var alin upp við jafn- rétti. Foreldrar mínir eru menntafólk, fæddir upp úr 1930. Áhrifanna frá 68 og rauðsokkunum gætti snemma á heimilinu. Mamma vann alltaf úti. Þegar ég var á leikskólaaldri var pabbi frekar heima. Hugmyndin um jafn- rétti er mér í blóð borin, mér dettur ekki annað í hug.“ Á þínum yngri árum varstu bó- hem sem eyddir tíma á kaffihúsum og lifðir frjálslegu lífi. Nú ertu næstum því orðinn holdgervingur vísitölufjölskyldunnar. Hvernig gerðistþað? „Þetta er dásamleg breyting. Ég rasaði lengi út og var unglingur til 35 ára aldurs. Þá var komið um það bil nóg. Karlmaður sem er í gjálífi og sukklífi á fimmtugsaldri er vita- skuld bara aumkunarverður. Það getur ekki verið neitt nema vanlíðan sem fylgir slíku lífi. Ég þakka fyrir að hafa komist heill frá þeirri rimmu. Ég hætti að reykja fyrir tíu árum og síð- ustu tíu árin hef ég drukkið mjög lítið brennivín. Ég segi ekki að ég lifi smá- borgaralegri tilveru en mér líður af- skaplega vel að hafa bara fjölskylduna í kringum mig. Ég er mjög heimakær og finnst ekki þægilegt að vera í marg- menni. Fer eiginlega aldrei á frumsýn- ingar eða í kokteilboð. Það er mjög langt síðan hefur birst af mér mynd á samkvæmissíðum blaðanna." Þú átt einn son, hversu mikilvœgt erföðurhlutverkið íþínum huga? „Það skiptir öllu. Kári er ekki bara sonur minn, hann er félagi minn, vinur og lagsbróðir. Við eigum mikil „Kári er ekki bara sonur minn, hann erfélagi minn, vinur og lags- bróðir. Við eigum mikil samskipti á mörgum plönum og ég get ekki hugsað mér lífið án hans." samskipti á mörgum plönum og ég get ekki hugsað mér lífið án hans. Kári er fimm ára, glaðlyndur og spurull eins og börn eru sem mikið er talað við. Hann hefur nokkuð við- kvæma lund, eins og pabbi hans og margir í fjölskyldunni. Ég er dálítið hræddur um að ég sé að dekra hann með því að vera svo gríðarlega mikið með honum, að það sé ein tegund af dekri. Halldór Laxness sagði að best væri fyrir börn að missa bæði föður sinn og móður. Ég skrifa ekki alveg upp á það en ég held að ég sé ekki að búa til mikið hörkutól úr Kára. Mig langar að eignast fleiri börn og hef ekkert betra við tíma minn að gera en að vera faðir." Þoli illa aðgerðaleysi Fyrirnokkrum árum tókégviðtal viðþig ogþú sagðist velgeta hugsað þér að setjast að. á Grikklandi. Á Grikkland ennþá svona mikil ítök íþér? „Ég var þar nokkuð lengi í fyrra og hafði ekki mikið að gera og komst að því að ég þoli illa aðgerðaleysi. Ég verð alltaf að vera að vinna við eitt- hvað annars verð ég ómögulegur. Það eru mjög fínir hlutir á Grikk- landi. Þar er þægilegra fólk en hérna, betra mannlíf og fjölskylduvænna. En ég kann ekkert annað en að vinna með þetta tungumál, íslenskuna. Konan mín er að læra matseld, hún getur eldað hvar sem er og verkfræð- ingar geta reiknað hvar sem er og læknar geta læknað fólk hvar sem er. Bankamenn geta líka verið hvar sem er við að græða peninga en ég kann ekki að græða peninga. Ég, hinn meinti heimsborgari, er dæmdur til að sitja á þessu skeri. Ef ég settist að í útlöndum mætti ég teljast heppinn að fá vinnu sem þjónn á veitngahúsi. Þetta er kannski dálítið sorglegt en ég er alveg sáttur við að vera hérna. Var ég ekki að segja að ég hefði nýlega fundið það hjá mér að vera þjóðernissinnaður?" Gœturðu ekki hugsað þéreitthvað annað en að starfa ífjölmiðlum? „Ég gæti alveg hugsað mér annað en ég er búinn að missa af lestinni. Ég hefði getað hugsað mér að verða tón- listarmaður, kannski hagfræðingur eða diplómati. Datt það einhvern tíma í hug. Ég er orðinn 47 ára og kann ekkert annað en að starfa í fjöl- miðlum. En þetta er samt skemmti- legt líf, sérstaklega hin síðari ár. Ég vinn við áhugamál mitt og það eru ekki lítil forréttindi. Stundum hryllir mann samt við þvi hvað áheyrenda- hópurinn er smár. Ég held að það sé samt verra fyrir leikara sem eru alltaf að leika fyrir sama húsið, alla ævina. f Danmörku geta þeir þó farið til Ála- borgar. Þetta samfélag á til að verða nokkuð sjálfbirgingslegt og maður verður það líka sjálfur. Þess vegna verður maður stundum að fara burt til að átta sig á stærðarhlutföllunum. Það er fátt hlægilegra en íslenskar sjónvarpsstjörnur.“ kolbrun@bladid.net Sumarblóm í miklu úrvali Trjágróður af öllum gerðum Ráðgjöf og tilboðagerð GROÐRARSTOÐIN TVIoiK Stjörnugróf 18 * SÍMI 581 4550 * Fax 581 2228 WWW. MORK.IS MORK@MORK.IS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.