blaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007
blaðið
Thelma Björk Jónsdóttir
Fatahönnuðurinn Thelma
Björk Jónsdóttir er bú-
sett í París en hún hefur
vakið mikla athygli und-
anfarið fyrir hönnun á
frumlegum hárspöngum
og höfuðfötum. Tímarit eins og hið
breska Vogue hafa lofsamað Thelmu
og birtust myndir af hönnun hennar
í maíhefti blaðsins. Hilda H. Cortez
spjallaði við Thelmu þar sem hún
var stödd á heimili sínu í háborg tísk-
unnar, þaðan sem hún rekur fyrir-
tæki sitt af miklum myndarskap.
„Þetta hefur gengið vonum framar
ogþað hefur verið nóg að gera hjá mér
síðan ég útskrifaðist úr Listaháskól-
anum árið 2005. Núna er ég búsett
í París og hef verið starfandi meira
og minna við tískuhönnun siðan ég
útskrifaðist. Ég er mjög heppin að
hafa getað einbeitt mér að því. Ég
kom hingað til Parísar í ágúst í fyrra
og hóf að nema við skóla sem heitir
Ecole Lesage. Þar sérhæfði ég mig
meira í útsaumi og bróderingum
sem ég nota í spangirnar mínar en
annars lærði ég að sauma hjá ömmu
minni þegar ég var lítil, þannig að
það má segja að ég sé búin að vera í
handavinnukennslu síðan ég var sex
ára gömul.“
Vekur athygli Vogue
Það eru ekki margir sem geta
státað sig af þvi að hafa vakið áhuga
tímaritsins Vogue sem er eitt virt-
asta tískutímarit í heimi, en í maí-
hefti blaðsins birtust myndir þar
sem hönnun Thelmu voru gerð góð
skil og segir hún það vera ómetan-
legt fyrir hönnuð.
„Það birtist mynd af spöng eftir
mig í breska blaðinu Vogue, sem
er alveg æðislegt. Ég hafði í raun
ekki einu sinni látið mig dreyma
um það, ekki eins og er allavega. En
þetta kom þannig til að kona frá
Vogue var stödd á Islandi og fór inn
í verslunina Trilogiu þar sem ég er
að selja spangirnar mínar og hún
hreifst svona af þeim. Svo var haft
samband við mig og ég beðin um að
senda spangirnar til Vogue þar sem
teknar voru myndir og því skellt i
blaðið. Þetta er auðvitað rosa auglýs-
ing og hefur hjálpað mér heilmikið.
Núna er ég farin að selja í þrjár búðir
í Japan, tvær í Tókýó og eina sem er
rétt fyrir utan borgina. Svo er ég að
selja heima á íslandi og i tískuverslun
í London. Ég er enn að vinna í þessu
hérna í París en það er aðeins erfiðara.
Þeir eru ekki alveg jafn opnir fyrir
þessu og restin en það kemur, það
tekur bara smá tíma. Hlutirnir virka
bara aðeins öðruvísi hérna.“
Parísarlífið yndislegt
Thelma hefur starfað fyrir nokkra
hönnuði og segir þá reynslu hafa
nýst sér vel. „Ég hef verið að vinna
fyrir hönnuði hér i París. Ég var í
starfsnámi þegar ég var í skólanum
heima og þá kom ég hingað út og bjó
í sjö mánuði og var í tískuskóla sem
heitir Studio Bercot en það var partur
af náminu mínu í Listaháskólanum.
Svo var ég að vinna fyrir hönnuð
sem heitir Martine Sitbon og vann
líka fyrir prjónakennara minn í
Studio Bercot í tvo mánuði. Þetta var
mjög góð reynsla og ég kynntist því
hvernig þetta virkar. Þetta getur auð-
vitað verið harður heimur, þessi tísku-
bransi, þannig að það er nauðsynlegt
að átta sig aðeins á hlutunum. Maður
þarf bara að vita hvað maður er að
gera og vera með bein í nefinu."
Aðspurð um lífið og tilveruna í
París segir Thelma borgina vera ynd-
islega. „Lifið hér í París er dásam-
legt. Ég bý í 16. hverfi í nágrenni við
Eiffel-turninn sem er æðislega fínt.
Annars er lífið dagsdaglega mjög
ljúft. Nú er komið yndislegt veður,
sól og sumar og allt í blóma.
Frakkar eru að vísu mjög ólíkir
íslendingum. Mér finnst einn helsti
munurinn vera sá að Islendingar
eru glaðari en Frakkar, þeir mættu
brosa aðeins meira. Það er oft sagt
að þeir séu merkilegir með sig en ég
held að þetta sé meira tungumála-
tengt. Þeir verða voða hræddir ef
þú ætlar að tala við þá á ensku. Þá
kemur það oft út eins og þeir séu pir-
raðir og fúlir. Frakkar eru lika íhalds-
samari en Islendingar finnst mér en