blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 1
107. tölublað 3. árgangur þriðjudagur 12. júní 2007 FRJÁLST, ÓHÁÐ & óm Sex börn frá Kína í fyrra: Ættleiða frá Afríku HRAFNSUNGAR f HÖFUÐBORGINNI Þessir myndarlegu hrafnsungar dveljast í góðu yfirlæti í hreiðri sínu við Suöurlandsveg. Einar Þorleifsson hjá Fuglavernd segir sjald- gæft að hrafnar verpi nærri mannabyggðum, en hann man eftir nokkrum tilvikum í Reykjavík á undanförnum árum. Meðal annars hafi hrafnar í tvígang gert sér hreiður hjá safni Einars Jónssonar á Njarðargötu. Einar segir hrafnshreiðrin merkilega smíði og eru alls kyns hráefni notuð í hreiðurgerðina. „Innst í hreiðrinu eru oft mjúk efni eins og ull, hrossahár og hey. Að utan eru greinar, vír og jafnvel gaddavír. Svo eiga þeir til með að skreyta hreiðrin með böndum, plasti og skeljum." íslensk ættleiðing skoðar hvort hægt verði að ættleiða börn frá Afr- íku. Eftir að nýjar reglur um ættleið- ingar frá Kína tóku gildi hafa orðið tafir á ættleiðingum þaðan. Sex börn voru ættleidd frá Kína í fyrra miðað við 35 árinu á undan. „Biðtíminn í Kína hefur lengst mikið. Kínverjar gefa þá skýringu að það sé vegna mikils fjölda umsókna auk þess sem færri börn séu yfirgefin en áður.“ Þótt biðtíminn hafi lengst er þó von á fleiri börnum í ár en í fyrra, að sögn Guðrúnar Sveinsdóttur, fram- kvæmdastjóra félagsins Islenskrar ættleiðingar. FRÉTTIR » 2 Lagði aðra í lífshættu ■ Fær sjokk ■ Missti fót viö ofsaakstur Eftir Elias Jón Guðjónsson elias@bladid.net „Ég fæ alltaf létt sjokk þegar ég heyri svona fréttir," segir Berent Karl Hafsteinsson, eða Benni Kalli eins og hann jafnan kallaður. Fyrir 15 árum lenti Benni Kalli í alvarlegu bifhjólaslysi og var vart hugað líf. Hann missti meðal ann- ars annan fótinn. Slysinu kennir Benni Kalli alfarið um eigin gá- leysi og flónsku. Fleirum en Benna Kalla var brugðið þegar fréttir bárust af skelfilegu umferðarslysi á Breið- holtsbraut í á sunnudagskvöld. Slysið varð þegar bifhjóli var ekið aftan á fólksbíl með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á því. Ökumaðurinn liggur nú alvarlega slasaður og hálsbrotinn á slysadeild Landspít- ala háskólasjúkrahúss. Félagi hans missti einnig stjórn á sínu hjóli Menn verða að átta sig á því að þeirhætta lífi annarra en hlaut minni meiðsl. Ökumann fólksbílsins sakaði ekki. Slysið markaði endi ofsaaksturs mannanna tveggja en áður höfðu þeir í tvígang virt stöðvunarmerki lögreglu að vettugi. Benni Kalli hefur ávallt boðið fram aðstoð sína þegar einhverjir hafa lent í slíkum slysum. Þá hefur hann verið duglegur að miðla af reynslu sinni í þeirri von að aðrir forðist þau mistök sem hann gerði. „Menn verða líka að átta sig á því að þeir eru ekki bara að stofna sér í hættu heldur líka lífi og limum ann- arra í umferðinni." Dökkblá bók frá Ellý Ellý Ármanns, þula og blogg- ari, vinnur að skáldsögu milli mjalta, eins og hún orðar það. „Þetta eru ekki örsögur eins og á blogginu." ORÐLAUS » 36 Bifhjólamaður hálsbrotinn: Kraftganga er góð Matthildur Guðmundsdottir íþróttakennari segir að mik- ilvægt sé að stunda líkams- rækt allt árið. Kraftganga sé góö og holl hreyfing fyrir allar konur. 18 SÉRBLAÐ >> fólk»14 16 manna bíó Lilja Dögg Jónsdóttir rekur ásamt manni sínum, Hassan \ Harizi, lítið bíó á Seyðisfirði 1 sem tekur aðeins 16 manns í sæti og þau sýna ekki hefð- bundnar myndir. ir» Ö VÖnduð veiðarfæri Þú færð IG-veiðivörur í næstu sportvöruverslun Á hvolfi í hálftíma Rafmagnsleysi olli því að á annan tug gesta skemmtigarðs neyddust í dágóða stund til að hanga á hvolfi í miðri lykkju rússíbana í Hot Springs í Arkansas ríki í Bandaríkjunum síð- astliðinn laugardag. Gestirnir héngu á hvolfi í um hálftíma í tæplega fimm- tíu metra hæð áður en slökkviliði tókst að bjarga þeim aftur niður. Einn var fluttur á sjúkrahús eftir reynslu sína eftir að hafa kvartað undan höfuðverk og annar kastaði upp þegar niður var komið. „Auðvelt var að sjá hverjir höfðu lent í þessu, því þeir voru eldrauðir í framan,“ sagði Angela Salter, gestur í garð- inum sem fylgdist vel með björgunar- aðgerðunum af jörðu niðri. * NEYTENDAVAKTIN m | Verð á Egils appelsini Verslun Krónur Kaskó 157 Fjarðarkaup 159 Hagkaup 178 Spar Bæjarlind 178 Þin verslun Seljabraut 209 11-11 245 Verð á Egils appelslni í 2 lítra umbúðum. Upplýsingar trá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % HH USD 63,86 -1,12 ▼ HÍg! GBP 125,67 -1,05 ▼ SS DKK 11,46 -1,11 ▼ • JPY 0,52 -1,14 ▼ M EUR 85,30 -1,10 ▼• GENGISVÍSITALA 115,88 -1,11 ▼ I ÚRVALSVÍSITALA 8.136,41 1,20 ▲ VEÐRIÐ í DAG VEÐUR » 2 NÚ STANDAYFIR Su^ahHú nústanda' ^ ^ SAe/GENDUR-FEluhÝSABGENDURATH' 9YNi in/kGAR I y STADö oMarcó A/ Reykjavik: Morr. Opið virka daga 10-18 og iaugardaga 11-15 31 3500 Akureyri.'Hofsbót 4. l: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, s 471 2954

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.