blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 4
r Haukur 2674 4 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 blaöiö INNLENT FANGELSISMÁL Nýjar reglur á Vernd Ovöl á Áfangaheimili Verndar getur samkvæmt nýjum reglum orðið að hámarki 12 mánuðir þegar dæmd refsing er 10 ára fangelsi. Áður gat dvöl orðið 8 mánuðir að hámarki þegar dæmd refsing var 6 ára fangelsi. Nýju reglurnar tóku gildi 1. júní síðastliðinn. SAMFÉLAGSÞJÓNUSTA Oryggismiðstöð sinnir öryggisgæslu Fangelsismálastofnun og Öryggismiðstöð íslands hafa samið um mannaða öryggisgæslu vegna samfélagsþjónustu á höfuð- borgarsvæðinu. Hlutverk eftirlitsaðila er að heimsækja vinnu- staði og eiga í samskiptum við samfélagsþjóna og umsjónarað- ila þar. Tæplega 100 manns eru nú í samfélagsþjónustu. STÍGAMÓT Fær starfsmannasjóð Engeyjar Áhöfnin á Engey RE1 hefur afhent Stígamótum starfs- mannasjóð sinn, rúma hálfa milljón króna. Skipið hefur verið selt úr landi og var starfsmannafélagið leyst upp, og ákváðu skipverjarnir frekar að gefa Stígamótum sjóðinn en að fara út að borða, samkvæmt fréttamiðlinum Vísi. Við erum rá&gjafar í fyrirtækjaviðskiptum og aðstoðum bæði seljendur og kaupendur meðalstórra fyrirtækja við alla þætti slíkra viðskipta: • Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum • Verðmat fyrirtækja. • Viðræðu- og samningaferli. • Fjármögnun. • Gerð kaupsamninga og íenadra samninga. Við höfum engin fyrirtæki til sölu en við vitum af fjölda fyrirtækja sem geta verið fáanleg fyrir rétta kaupendur. Við vitum líka af mörgum aðilum sem eru að leita að góðum fyrirtækjum í flestum greinum atvinnurekstrar. Tengsl okkar við viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýs- ingar um fyrirtæki eru ekki gefnar upp í síma. Vinsam- lega hrinaið og pantið tíma, síminn er 414 1200, en einnig er hægt að nota tölvupóst: jens@lcontakt.is eða brynhildur@kontakt.is Eftirfarandi fyrirtæki eru ekki til sölu, en viö teljum þau fáanleg: • Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að góðu bílaþjónustufyritæki í miklum vexti. • Rótgróin húsgagnaverslun í góðum rekstri. EBITDA 30 m. kr. • Þekkt lítil bílaleiga. • Meðeigandi/framkvæmdastjóri óskast að jarðverktakafyrirtæki á Austurlandi. Mjög góð verkefnastaða. • Rótgróið bakarí í Reykjavík. Góð velta og EBITDA. • Deild úr heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 60 m. kr. • Heildverslun með smávörur. Góð framlegð. EBITDA 20 m. kr. • Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir sjávarútveg. EBITDA 55 m. kr. • Þekkt skyndibitakeðja. Ársvelta 130 m. kr. • Sérverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 40 kr. • Vélsmiðja. Ársvelta 200 m. kr. • Lítil, þekkt barnaverslun með umboð fyrir umhverfisvænar vörur. • Rótgróið lítið byggingafyrirtæki með fasta viðskiptavini. Fjórir fastráðnir starfsmenn. Góð verkefnastaða. • Rótgróin húsgagna- og gjafavöruverslun. EBITDA 14 m. kr. • Stórir byggingaverktakar í einu Eystrasaltslandanna. Ársvelta 3.800 m. kr. • Innflutningsfyrirtæki með sumarvörur. Ársvelta 300 m. kr. • Deild úr heildverslun með þekktar garðvörur. • Lítil húsgagnaverslun í Kaupmannahöfn. • Lítið þjónustufyrirtæki á ferðamarkaði. • Heildverslun-sérverslun með fatnað. Ársvelta 100 m. kr. • Rótgróin umboðs- og heildverslun á Austurlandi. Ársvelta 100 m. kr. • Heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 50 m. kr. • Þekkt sérverslun með herrafatnað. Gagnlegur fróbleikur og fleiri fyrirtæki, sjá: www.kontakt.is KONTAKT Fyrirtækjaráðg jöf Suðurlandsbraut 4, 7. hæð. • Sími: 414 1200 www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is Jen* Ingólfsson rekstrarfræðingur, jensÖkontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rebtrarhogfræóingur, brynhildurökontakt.is Rognar Marteinsson fyrirtækjará&gjafi, ragnar@kontakt.is Sigur&ur A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakf.is Eva Gunnarsdóttir skrifstofustjóri, eva@kontakt.is Aðiii að global, ■ Bankarnir voru á undan ■ Seðlabankinn ábyrgur ■ Stjórnvaldsákvörðun Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Ibúðalánsjóður vísar öllum ásök- unum um að sjóðurinn sé „skað- valdur á íbúðalánamarkaðinum" á bug. Hallur Magnússon, sviðstjóri þróunarsviðs íbúðalánasjóðs, segir það alrangt að hækkun lánshlut- falla Ibúðalánasjóð í 90 prósent hafi sett íbúðaverðið af stað og bendir á að bankarnir hafi verið komnir inn á markaðinn nokkrum mánuðum áður en lögin sem heimiluðu 90 prósenta lánshlutfall íbúðalánasjóð voru samþykkt. „Á þeim tíma höfðu bankarnir lánað 180 milljarða í fasteigna- tryggðum lánum á lágum vöxtum,“ segir Hallur og bætir við: „Bank- arnir koma í ágúst 2004 með sín lán. Bankastjórar og bankaráðsmenn bankanna höfðu fengið að vita að þetta yrði gert í áföngum ef að efna- hagslegt svigrúm skapaðist og kæmi ekki til fullra framkvæmda fyrr en árið 2007.“ Ábyrgðin Seðiabankans Hallur bendir á að aðgerðum Seðlabankans megi að mestu kenna um að bankarnir hafi ruðst með þessum hætti inn á markað- inn. „Seðlabankinn keypti mikinn gjaldaeyri af bönkunum og greiddi með íslenskum krónum og losaði síðan um bindiskylduna. Þannig að þegar tók að líða á árið 2004 var svo mikið af krónum í bönkunum að þeir urðu einhvernveginn að koma þeim í fé.“ Ingimundur Friðriksson, banka- stjóri Seðlabankans, sagði að bank- inn hefði ekkert um þetta að segja. Stjórnvaldsákvörðun um að kenna Þórólfur Matthíasson, hagfræðip- ófessor við Háskóla íslands, segir það rétt að tímasetning ákvörðunar Seðlabankans um að losa um bindi- skylduna hafi verið óheppileg en telur þó á að sú ákvörðun ríkisstjórn- arinnar að hækka lánsfjárhlutfall íbúðalánasjóðs hafi att bönkunum út á markaðinn. „Áður sótti fólk sem ekki átti fyrir útborgun það sem upp á vantaði til bankanna. Þau lán voru bönkunum afar hagstæð. Bankarnir voru því að verja stöðu sína á þeim markaði,“ Bankarnir hófusinlán nokkrummán- . tiðum á undan íbúðalánasjóði HallurMagnússon.svið- | stjóri hjá Ibúðalánasjóði Auðvitað er það stjórn- valdsákvörðun að hækka lánsfjárhlutfallið Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor segir Þórólfur og bætir við „Þegar íbúðalánasjóður eykur lánsfjárhlut- fall sitt þá er beinlínis verið að taka kúnnahópa af bönkunum." Þórólfur telur að þegar búið var að tilkynna að eitthvað verði gert þá bregðist menn eðlilega við því og bankarnirþvíhafiðsínútlánáundan fbúðalánasjóði. Hann tók fram að ábyrgðin liggi ekki hjá stjórnendum eða starfsmönnum fbúðalánasjóðs heldur stjórnvöldum: „Auðvitað er það stjórnvaldsákvörðun að hækka lánsfjárhfutfaflið.“ Frönsku þingkosningarnar: Stefnir í Franskir sósíalistar leita nú sam- starfs við miðjuffokkana til að koma í veg fyrir að flokkur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, UMP, vinni stór- sigur í síðari umferð frönsku þing- kosningunum. Eftir fyrri umferð- ina, sem fram fór á sunnudaginn, stefnir í að UMP muni hljóta milli 383 og 501 þingsæti í 577 sæta neðri deild þjóðþingsins, en þeir eiga nú 359 þingsæti. Sósíalistinn Segolene Royal, sem laut í lægra haldi gegn Sarkozy í forsetakosningunum í vor, segir nauðsynlegt að öll völd safnist ekki saman á hendur eins flokks. Kosningaþátttaka var lítil og hefur ekki mælst minni í marga ára- tugi, eða rétt rúm sextíu prósent. Síð- ari umferðin fer fram þann 17. júní í þeim kjördæmum þar sem enginn frambjóðandi hlaut hreinan meiri- hluta atkvæða, og verður þar kosið milli þeirra sem hlutu hið minnsta 12,5 prósent atkvæða á sunnudaginn. Af þeim 110 sem voru voru kjörnir beint á þing í fyrri umferðinni var einungis einn úr röðum sósíalista. Vinni UMP einnig sigur í síðari um- ferðinni mun það auðvelda Sarkozy verulega að hrinda stefnumálum sínum í framkvæmd. stórsigur Sarkozy MglÍMMS Nicolas Sarkozy Fyrri umferðin gaf Frakklandsforseta tilefni til bjartsýni.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.