blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 blaAið INNLENT VÍSITALA LAUNAKOSTNAÐAR Hækkar mest í byggingariðnaði Vísitala heildarlaunakostnaöar á fyrsta ársfjórðungi 2007 hækkaði um 2,1 prósent í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð frá fyrri ársfjórðungi, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hann lækkaði hins vegar í verslun og viðgerðarþjónustu um 1,7 prósent. ÖKUHRAÐI 429 náðust á Bústaðavegi 429 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að aka yfir hámarkshraða á Bústaðavegi um helgina. Brot þeirra náð- ust á löggæslumyndavél. Flestir óku á liðlega 77 kílómetra hraða. 125 ökumenn voru mældir á yfir 80 og 25 á yfir 90 en sá sem hraðast ók var á 107 kílómetra hraða. BORGARNES Dópuð kona handtekin Ung kona var yfirheyrrð af lögreglunni í Borgarnesi eftir að hún hafði hringt í neyðarlínuna. Hún bað um aðstoð vegna farþega í bifreiðinni, en hann var, samkvæmt mbl, orðinn meðvitundarlítill vegna lyfjanotkunar. Konan reyndist einnig dópuð. Belgía: Ný ríkisstjórn í pípunum Guy Verhofstadt, forsætisráð- herra Belgíu til átta ára, gekk á fund Alberts Belgakonungs í gær og sagði af sér embætti eftir að Frjálslyndir og Sósí- alistar, biðu mikinn ósigur í belgísku þingkosningunum sem fram fóru á sunnudaginn. Verhofstadt mun þó áfram gegna embættinu til bráða- birgða á meðan Yves Leterme, formaður Kristilegra demó- krata myndar nýja ríkisstjórn. Nplheilsa a,” M -hsföuþ*ðgotr BARNA VÍT Náttúruleg vítamín og jteinefni fyrir böm tíl aö tyggja eöa tjúga 120 töflur Bragðgóóar vítamíntöflur fyrir börn og unglinga ■^©AV° heilsa -hafOu þaO gott E£-inru Útburðum fækkar Ibúöum á vegum Félagsbústaöa hefur fjölgaö hratt und- j anfarin ár. Þrátt fyrir það hefur útburð- g aa um ekki fjölgað. Nú er stefnt að þvf að ?: fækka félagslegum íbúðum ( Breiðholti. |j ■iá BlaM/Colli ® Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Fjöldi þeirra sem bornir eru út úr félagslegum leiguíbúðum á vegum Félagsbústaða hefur ekki fjölgað á síðustu árum, þrátt fyrir að fjöldi leiguíbúða hafi rúmlega tvöfaldast. Þeir sem hafa verið í óreglu hafa fleiri úrræði til að leita sér skjóls, heldur en þeir sem lent hafa í fjár- hagslegum vandræðum. I síðustu viku var sex aðfarar- beiðna krafist hjá Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hönd Félagsbú- staða. Sigurður Kr. Friðriksson fram- kvæmdastjóri Félagsbústaða segir að í fæstum tilvikum endi málin með útburði, því oftast er samið um málalyktir áður en gripið er til slíkra aðgerða. Ástæður útburðar eru fyrst og fremst tvíþættar. Annars vegar er um að ræða síendurtekin brot á húsreglum og hins vegar ógreidd húsaleiga. Sigurður segir að um 20 mál á ári endi með útburði, sem sé lítið í ljósi þess að Félagsbústaðir hafi yfir að ráða um tvö þúsund íbúðum. „Það hefur orðið umtalsverð breyting á hegðun fólks í félagslegu leiguhús- næði og eins með leigugreiðslur. Þetta er allt saman fyrirmyndar- fólk, þótt alltaf leynist innan um einhverjir sem ekki getur staðið við sínar skuldbindingar.“ Sigurður segir að afdrif þeirra sem lenda í úburði misjöfn eftir aðstæðum einstaklinga. Fólk sem borið hafi verið út vegna óreglu leiti sér oft hjálpar hvað það varðar á meðan aðrir leiti til vina og ættingja eða flytji í annað sveitarfélag. Ásgerður Jóna Flosadóttir for- Fólkið er svo illastattað þaðfærekki leiguhúsnæði Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi maður Fjölskylduhjálpar Islands segir að iðulega leiti til samtak- anna einstaklingar sem misst hafi félagslegar íbúðir. „Fólk sem er að missa íbúðina sína er afskaplega örvæntingarfullt og við erum alltaf með nokkra skjólstæðinga sem eru heimilislausir. Það reynir að kom- ast inn hjá ættingjum og vinum og við höfum heyrt af því að fólk er að hýrast í einu herbergi, jafnvel fjöl- skyldur með börn.“ Ásgerður segir að í slíkum tilfellum sé lítið sem sam- tökin gert annað en að hjálpa fólkinu með mat. Um 100 til 150 fjölskyldur leita til Fjölskylduhjálparinnar þegar mest er og segir Ásgerður það sýna þörfina á aðstoð sem þessari. „Fjölskylduhjálpin er öryggisnet fyrir alla og það er ekki lokað á neinn.“ Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að reglulega leiti þangað einstaklingar sem misst hafi hús- næði sitt. Hann segir að fyrir langt leidda vímuefnaneytendur henti önnur búsetuúrræði jafnvel betur en félagslegar íbúðir. „Sveitarfélögin eru að hjálpa fólki með alls kyns úr- ræðum, en vandinn er kannski sá að fólkið er svo illa statt að það fær ekki leiguhúsnæði. Vegna vímuefna- neyslu geta þeir ekki verið innan þess ramma sem fylgir því að búa í fjölbýlishúsum," segir Þórarinn og bendir í því samhengi á gistiskýli og sambýli. 25; Rekstrarvörur ara 1982-2007 Smart og létt á fæti heilsteypt glös á tilboðsverði Þórunn Helga Kristjánsdóttir, sölumaður hjá RV \yi5Vx. 12 stk. Imperial 42 cl rauðvínsglös VrAVx. 6 stk. Maldive 36 d bjórglös jr \ywvx. if ^ ][ \3"7°1 Vx. || \mnvs. 12 stk. 12 stk. 12 stk. Imperial 19 d hvítvínsglös Imperial 23 d hvítvínsglös Imperial 31 d hvítvlnsglös Rekstrarvörur - v/nna með þér Tilboðið gildir út júní 2007 eða meðan birgðir endast. Réttarhálsi 2*110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Sjómælingabáturinn Baldur Tókþátt íleitinni að kajakræðurunum. Mynd/Hafþór Hreitarsson Leit að tveimur kajakræðurum: Fundust heil á höldnu Tveir kajakræðarar sem leitað hafði verið frá deginum áður fund- ust í gærmorgun. Fólkið, þýsk kona og banda- rískur karlmaður, komu að landi á milli bæjanna Sjöundaár og Mela- ness á Barðaströnd um hálftíu- leytið um morguninn. Björgunar- sveitarmenn fundu fólkið þremur stundarfjórðungum síðar þegar það hafði nýlokið við að reisa tjald sitt. Ekkert amaði að fólkinu og var það mjög undrandi á öllu umstanginu. Mikill viðbúnaður var hjá björg- unarsveitum og Landhelgisgæsl- unni. Fokker-flugvél Landhelgis- gæslunnar var nýlögð af stað til leitar þegar fólkið fannst. Einnig voru björgunarþyrla Landhelgis- gæslunnar og sjómælingabáturinn Baldur við leit í margar klukku- stundir í gær. Fólkið lagði upp frá Garðskaga á laugardagsmorgun og ætluði yfir Faxaflóa að Snæfellsnesi. Þangað var búist við þeim í fyrrakvöld eða gærmorgun. Þegar það skilaði sér ekki bað tengiliður þeirra í landi um aðstoð.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.