blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 blaAið UTAN ÚR HEIMI ÍRAK Þrír hermenn létust Þrír bandarískir hermenn létust og sex særðust þegar sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sjálfan sig í loft upp með þeim afleiðingum að brú hrundi nærri Mahmoudiya, suður af Bagdad, höfuðborg íraks, í gær. 31 bandarískur hermaður hefur látið lífið í (rak frá síðustu mánaðamótum. BRASILÍA Milljónir í Gay Pride-göngu Tæplega þrjár milljónir hommar, lesbíur og klæð- skiptingar tóku þátt í Gay Pride-göngunni í Sao Paolo í Brasilíu á sunnudaginn, en gangan er sögð vera sú fjölmennasta sinnar tegundar í heiminum. Skipuleggjendur segja að aldrei hafi fleiri tekið þátt. Skotið á heimili forsætisráðherrans Byssumenn hófu skothríð að heimili Ismail Haniya, forsæt- isráðherra Palestínu, í Gasaborg í gær. Ekki liggur fyrir hvort að árásin beindist að forsætisráðherranum sjálfum eða lífvörðum hans, en engar fréttir af borist af því hvort nokkur hafi særst í árásinni. VIÐ HEIMTUM ODYRA FARSIMA ðs^anburD Farsímalagerinn.is Umdeild stefna Bandarískir hershöfðingj- ar óttast sumir að verið sé að vopnbúa báð- ar fylkingar fyrir hugsanlegt borgarastríð. yi°r§-MmL Eftir Atla isleifsson atlii@bladid.net Bandaríkjaher hefur verið að sjá hópum súnníta í frak fyrir vopnum og sprengiefni til að berjast gegn uppreisnarmönnum í landinu sem eru í tengslum við hryðjuverkasam- tökin A1 Qaeda. Að sögn bandaríska dagblaðsins New York Times gerði Bandaríkjaher vel heppnaða tilraun í Anbar-héraði, vestur af höfuðborg- inni Bagdad, og hafa nú ákveðið að sjá súnnítahópum fyrir vopnum í fjórum héruðum til viðbótar. Stuðn- ingur sem þessi nær einungis til hópa súnníta, sem áður studdu við bakið á A1 Qaeda, en hafa nú snúið baki við þeim. Margir óttast hins vegar að fiessi nýja stefna hershöfðingjanna í rak geti reynst tvíeggjað sverð. Bandaríkjaher og íraskar örygg- issveitir hertu sókn sína verulega gegn uppreisnarmönnum í írak fyrr á árinu. Ofbeldisverk eru þó enn daglegt brauð í höfuðborginni Bagdad og víðar og leita hershöfð- ingar nú nýrra leiða til að draga úr árásum í landinu. Viðræður hafa að undanförnu staðið yfir við full- trúa hópa súnníta í Amiriya-hverf- inu í Bagdad, Babil, Diyala og Sala- huddin-héraði í miðhluta íraks þar sem árásir uppreisnarmanna hafa verið mjög tíðar. Líkt og gert var í Anbar-héraði munu súnnítahóparnir fá vopn, skotfæri, fé og annars konar búnað til að kljást við Al-Qaedaliða. í við- ræðum fulltrúa hópanna og Banda- ríkjahers náðist samkomulag um að súnnítarnir myndu vara Banda- ríkjaher við væntanlegum árásum og hvar vegasprengjur og sprengi- gildrur væri að finna. fraksstjórn er talin vera mjög tortryggin í garð samkomulagsins. Fram til þessa hafa sjítar forðast að semja við upp- reisnarmenn úr röðum súnníta, en fyrir liggur að sumir þessara hópa hafa áður barist gegn bandarískum og íröskum hersveitum. Sjítinn Nuri al-Maliki, forsæt- isráðherra fraks, fundaði með William Fallon, æðsta yfirmanni herja Bandaríkjamanna í Mið-Aust- urlöndum, á sunnudaginn þar sem hann lýstiyfir efasemdum sínum og sagði að íraksstjórn myndi aldrei semja við þá sem starfa handan laga og réttar. f New York Times segir jafnframt að bandarískir hershöfðingjar ótt- ast að súnnítahóparnir muni ef til vill beita vopnunum gegn sjítum og jafnvel bandarískum hermönnum. Segja þeir að með þessu sé verið að vopnbúa báðar fylkingar fyrir hugs- anlega framtíðarborgararastyrjöld í landinu. Líklegt er talið að fækkað verði í herliði Bandaríkjahers í írak á næsta ári, en stjórnmálaleiðtogar sjíta og súnníta hafa til þessa oft sýnt takmarkaðan vilja til samstarfs. Bandaríkjastjórn hefur varið and- virði um þúsund milljarða króna til að byggja upp íraksher og lögreglu í landinu, en mannafli írösku lögregl- unnar telur um 350 þúsund manns og eru flestir þeirra sjítar. Margir óttast því að með þessari nýju stefnu sé í raun verið að útvega súnnítum vopnum sem verða síðar notuð gegn sjítum. m&'M'W GRAND VITARA ánægjunnar vegna Verð frá 2.790 þús. Kíktu á suzukibilar.is SUZUKI ...er lífsstill! SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 5100.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.