blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. JUNI 2007 folk@bladid.net HVAÐ Eru ísfirðingar á nálum vegna fhsjnst opnunar Tattú-stofunnar? ÞER? Þeir eru margir hverjir orðnir mjög spenntir að minnsta kosti. blaöiö Málfríður Sigrúnardóttir, húðflúrari Málfríður mun opna húðflúrstofuna Tattoo & List á (safirði á næst- unni, sem mun vera sú fyrsta þeirrar tegundar í bænum. HEYRST HEFUR MORGUNBLAÐIÐ skýtur föstum skotum að Einari K. Guðfinns- syni, landbúnaðar og sjávarút- vegsráðherra, í leiðara blaðsins í gaer. Þar er, aldrei þessu vant, tekið undir með Sam- fylkingunni, að þessu sinni Þórunni Sveinbjarnardóttur, sem hefur lýst andstöðu sinni við hval- veiðar, en Einar er, sem kunnugt er, einn helsti stuðningsmaður slíkra veiða hér á landi. Ætli Mogginn sé hægt og hægt að taka Samfylk- inguna í sátt? Það yrði að minnsta kosti sögulegur viðburður... ICELAND EXPRESS auglýsir í sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins beint flug til Eindhoven í Hollandi. Það skýtur skökku við að myndin sem auglýsing- una prýðir er frá Amsterdam. Á bloggsíðu sinni bendir Viðar Eggertsson á að Eindhoven sé iðn- aðarborg sem iði ekki af sama lífi ogAmsterdam. Lesandi Blaðs- ins hringdi í auglýsingastof- una sem hannaði auglýsinguna og fékk þær útskýringar að „enginn fer til Hollands til að hanga í Eindhoven“. Maður spyr sig hvað erlendir ferðamenn myndu gera ef mynd af næturlífi Reykjavíkur myndi auglýsa hið fábrotna djamm á Selfossi, þar sem bærinn er búinn að kaupa eina barinn til þess eins aðrífahann... RATSJÁRSTÖÐIN á Bolafjalli hefur mátt muna fífil sinn fegurri, nú þegar kalda strfðinu er lokið. Fréttir af uppsögnum fylgdu síðan í kjölfarið en stöðin gegnir þó enn vissu hlutverki varðandi flugum- ferðarstjórn. Nú hefur hún þó hugsanlega fengið annars konar hlutverk, því nokkrir vaskir kvik- myndagerðarmenn hafa í hyggju að nýta sér stöðina og stórkostlegt umhverfi hennar til sviðsmyndar fyrir kvikmynd sem íjalla á um kalda stríðið á níunda áratugnum. Ekki er unnt að greina frá smá- atriðum að svo stöddu, enda verkefnið skammt á veg komið. En hver veit nema Bolungarvík verði Hollywood norðursins ...? BLOGGARINN.. Bifhjólaniðingar? Maður finnur ekki orðið lengur til með fólki sem er að slasa sig á mót- orhjóium. Stór partur af ökumönnum bifhjóia eru ökuníðingar af verstu sort. Það er aiitaf sagt að því miður séu svartir sauðir inn á milli en upp til hópa séu þetta fyrirmyndaröku- menn sem eru á hjólunum. Þessu er ég ekki sammáia, þetta er öfugt, það eru margir svartir en MJÖG fáir til fyrirmyndar. Það er mikið af hjólum á götum borgarinnar í dag og það er alveg skelfilegt að sjá hvernig fólkið á hjól- unum hagar sér í um- ferðinni. Heimskan virðis oft á tíðum vera takmarka- laus.“ Jens Sigurjónsson jenni-1001.blog.is Reka minnsta bíó Evrópu Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Lilja Dögg fónsdóttir rekur ásamt manni sínum, Hassan Harizi, lítið bíó á Seyðisfirði, Mini-Ciné. Þau sýna þó ekki hinar hefðbundnu bandarísku Hollywoodmyndir, heldurfrekarheimildarmyndir.stutt- myndir og evrópskar kvikmyndir. „Það hefur alltaf verið draumur að opna eigin kvikmyndahús. Við fundum upplagt hús hérna á Seyð- isfirði og létum drauminn rætast í sveitasælunni," segir Lilja sem jafn- framt kennir seyðfirskum börnum í grunnskólanum. „Ég er með gráðu í íslensku en vann einnig á kaffihúsi fyrir sunnan. Við vildum reyna að sameinaþetta tvennt, bíóreksturinn og kaffihúsareksturinn og það virðist hafa tekist með ágætum. Hassan, maðurinn minn, er lærður prentari og sjálflærður kvikmynda- Hef opnað sálfræðiþjónustu að Suðurlandsbraut 10 Veiti sálfræðilega meðferð og ráðgjöf fyrin • einstaklinga m.a. við kvíða, fælni, óöryggi, sorg, áföllum, kulnun, streitu. • fjölskyldur m.a. við samskiptaerfiðleikum, gildin í fjölskyldunni, framtíðarsýn. • fyrirtæki m.a. fyrirtækja- og starfsviðmót, stjórnun breytinga. Handleiðsla fyrir sfjómendur og fagfólk. Held námskeið og veiti handleiðsiu í Life-Navigation um hvemig • takast má við það óvænta í lífinu • vaxa sem einstaklingur og njóta lífsins Ágústina Ingvarsdóttir sálfræðingur ífyrirtækja-, vinnu- og klíniskri sálfræði cand psych Tímapantanir í síma 663 8927 eða i netpósti agustina@life-navigation.com „Þá tekurbíóið okkar 16 manns í sæti sem gerír það að einu minnsta bíói í Evrópu, held ég, að ég geti fullyrt. Ifið bjóðum ekki upp á popp og kók, þannig að þetta er því kannski svolítið öðmvísi bió en fólk á að venjast“ áhugamaður, með þó nokkra reynslu af stuttmyndasýningum. Eftir að hafa dvalist um skeið í Reykjavík ákváðum við að halda út á land, enda með tvö ung börn, eins árs og þriggja ára. Við fundum upplagt hús hérna á Seyðis- firði sem er eitt elsta verslunarhús á ís- landi, eða síðan um 1890. Við bjóðum upp á te og kaffi, ávaxtasafa, kökur, súpur og létta grænmetisrétti, svo eitt- Su doku hvað sé nefnt. Þá tekur bíóið okkar 16 manns í sæti, sem gerir það að einu minnsta bíói í Evrópu, held ég að ég geti fullyrt. Við bjóðum ekki upp á popp og kók, þannig að þetta er því kannski svolítið öðruvísi bíó en fólk á að venjast, “ segir Lilja sem segir mest að gerayfir sumartímann. „Það verða sýningar hjá okkur á hverju kvöldi í sumar. Við fluttum hingað i ágúst í fyrra og hófum sýn- ingar í desember, einu sinni í viku. Eftir smá frí byrjuðum við aftur í síð- ustu viku enda ferðamannatímabilið að hefjast. Hingað koma Norræna og fleiri skemmtiferðaskip með fjölda farþega sem drekka í sig menninguna, enda af nógu að taka. Yfir vetrartím- ann er aðeins rólegra en við stefnum samt sem áður á að vera með sýningar einu sinni í viku að minnsta kosti.“ Frekari upplýsingar um Mini- Ciné má nálgast á slóðinni www. thefreedomcounciI.com. Þáll Baldvin Baldvinsson - sem ég hef talið í hópi vina minna - skrifar dálk í Fréttablaðið. Hann ereinkar óvinsamiegur í minn garð. Það sem verra er - þar er far- ið með hrein ósann- indi. Það er ekki einleikið með þá á Fréttablað- inu.[... ]Hví ertu að þessu Þalli?“ Egill Helgason silfrid.blog.is Snýst ráðherra hugur? „Einhvern veginn finnst mérá við- brögðum Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra, í hvatveiðium- ræðunni undanfarið, að hann sé far- inn að gera sér betur grein fyrir því að hvalveiðar hafa meira neikvæðar afleiðingar en jákvæðar fyrir efna- hagslífið. Mér finnst nú orðið mega lesa dálítið á milli línanna að Einar sé að undirbúa það að geta bakkað með sæmilegri reisn út úrþessari ákvörðun sem hann tók á sínum tíma að leyfa þessar veiðar. Ég hef verið þeirrar skoðunar, og er enn, að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir : minni með þess- um veiðum." eftir Jim Unger 2 3 9 4 5 1 6 4 5 8 8 4 7 3 7 9 9 7 2 1 4 3 6 9 5 5 7 8 2 3 2 5 1 9 6 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Haltu þig frá plastöndunum, ég var næstum því skotin í höfuðið!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.