blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 16
KuimundurRúi l'Ki;D!. Wood , Eldur á ís Mprmónismi á íslandi Bókin Eldur á ís eftir Fred E. Woods er komin út í hjá Háskóla- útgáfunni í þýðingu Friðriks Rafns Guðmundssonar. [ henni er rakin saga Síðari daga heilagra á ís- landi og í Utah og tekur sérstak- lega fyrir íslenska trúskiptinga í Spanish Fork og tengsl þeirra við heimalandið. Fjallað er um það hvernig boðskapur mormónism- ans barst til Islands, um fyrstu trúboða Síðari daga heilagra sem fluttu með sér hið endurreista fagnaðarerindi og þá andstöðu sem þeir mættu og fyrstu íslend- ingana sem fluttust sjálfviljugir frá fósturjörð sinni til Utah í Banda- ríkjunum. Þessi einstaka saga, sem hefur að mestu verið hulin gleymsku- skýi þar til nú, er afhjúpuð í þess- ari bók, nú þegar rúm hundrað og fimmtíu ár eru liðin frá því að fyrstu (slendingarnir settust að í Utah og stofnuðu fyrstu íslend- ingabyggðina í Bandaríkjunum. Leikhúsviðburður með 16 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 menning@bladid.net Að flytja fjöll reaarar Dansleiknuss Listasafn Árnesinga í Hveragerði er nú opið á ný eftir viðgerðir og smávægilegar breytingar. Fyrsta sýning safnsins á árinu stendur nú yfir en það er sýningin Að flytja fjöll, en þar má sjá málverk eftir Ás- grím Jónsson í samhengi við verk nokkurra samtímalistamanna. Hið arlega Dansleikhus for fram i lok siðustu viku en þar hlutu Brynhildur Guðjónsdóttir, Cameron Corbett, Borgar Magnason og Dietrik Peters fyrstu verðlaun fyrir verkið Blink of an Eye. Áhorf- endaverðlaun hlaut Irma Gunnarsdóttir fyrir verkið On Hold. blaöiö tugþúsund hlustendur Dr.Hauschka Náttúrulegar snyrtivörur Rósakrem fyrir þurra og viökvæma húö DtRiiiichka Dty Cieam OcHauictoiu Rwk OayCrrsx* Lífrœnt ræktufl Rósablóm og rósaber hjálpa til vifl að varflveita rakann í húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og veitir henni sérstaka vernd. Rósakremið inniheldur einungis hrein nóttúruleg efni og lífrænt ræktaöar lækningajurtir. Þaö er án allra kemiskra rotvamarefna og ilmefna. Imurinn er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á einnig við um allar aflrar vörur frá Dr.Hauschka. Útsölustaðlr: Yggdrasill Skólavöröustíg 16, F'ræiö FJaröarkaup, Lífslns Llnd Krlnglunni, Lyfja, Maður Llfandl, Lyf og Hellsa Krlnglunni og Heilsuhornlö Akureyrl. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Þessa dagana fara fram tökur á saka- málaseríu Rásar t, en hún er byggð á bók Ævars Arnar Jósepssonar, Sá yðar sem syndlaus er. Leikstjóri er Ágúst Guðmundsson og leikgerðina samdi Bjarni Jónsson, en áþriðja tug leikara fara með hlutverk i verkinu. Má þar nefna sem dæmi Ingvar E. Sigurðsson, Margréti Vilhjálmsdótt- ur, Rúnar Frey Gíslason Guðlaugu El- ísabetu Ólafsdóttur og marga fleiri. Sakamálaseríurnar mælast jafnan með um 15 til 20 þúsund hlustendur, en það er margföld meðalaðsókn á leikrit á fjölunum og því má segja að um sé að ræða einn stærsta leikhús- viðburð ársins. Að sögn Ágústs Guðmundssonar, leikstjóra verksins, eru upptökur nú vel á veg komnar og áætlað er að þeim ljúki í lok næstu viku. „Þetta er nokkuð stórt verk, bæði af því að það er langt, allt að þrír klukkutím- ar á lengd í heild sinni, og af því að það eru gríðarlega margir leikarar sem koma að því,“ segir hann. Ævar Örn Jósepsson hefur verið tilnefndur til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna, en bókin Sá yðar sem syndlaus er hlaut mjög góðar viðtökur lesenda og gagnrýn- enda. Þetta er fyrsta leikgerðin eftir bókinni. „Ég held að þessi sakamálaverk sem eru flutt sem framhaldsleikrit í útvarpi hafi mjög mikla hlustun og meiri heldur en þessi klassísku útvarpsleikrit. Reyndar er útvarps- leikhúsið mun vinsælla en margur heldur og á sér breiðan hóp dyggra hlustenda, enda eru auðvitað fleiri sem hafa tök á að hlusta á útvarp heldur en mæta á leikhús," bendir Ágúst á og bætir því við að sjálfum þyki honum Útvarpsleikhúsið vera afar merkilega stofnun. „Ég veit ekki nákvæmlega hversu gömul hún er, þekki söguna ekki það vel, en ég held að farið hafi verið að gera út- varpsleikrit mjög fljótlega eftir stofn- un Ríkisútvarpsins." Ágúst er hvað þekktastur fyrir bíómyndaleikstjórn en hefur þó nokkrum sinnum leikstýrt í útvarp- inu og eins og gefur að skilja er tölu- verður munur á þessu tvennu. „Það sem mér finnst eiginlega skemmti- legast við útvarpsleikhúsið er að þar fá leikarar tækifæri til að gefa persónulega dýpt í gegnum text- ann. f kvikmyndum er textavinnan ekki meginmálið, en í útvarpsleik- húsinu er meginkrafan á textann sjálfan. Svo er líka auðveldara í út- varpinu að halda tryggð við upphaf- lega textann, það er, sjálfa bókina, heldur en i kvikmyndum. Bjarni Jónsson gerði leikgerðina að þessu verki og hann hefur vitaskuld stund- um hnikað til viðburðunum til að þeir gætu fallið inn í það form að hápunktarnir verði á réttum stöð- um. En öll samtöl eru beint upp úr bókinni og svo er þetta svo langt verk að það þarf ekki að sleppa miklu úr.“ Flutningur verksins á Rás 1 hefst þann 9-júlí næstkomandi og stend- ur yfir í þrjár vikur. Að auki verða allir þættir vikunnar fluttir í einni heild á sunnudögum klukkan 13. Kauptu EarPlanes^ eyrnatappa med þrýstijafnara og njóttu þess ad fljúga ón verkja eda óþœginda f eyrum Hevmrtœkni Glæsibæ | Álfheimum 74 1104 Reykjavík | sími: 568 6880 j www.heyrnartaekni.is Hindurvitni og þjóösögur Feneyjatvíæringurinn hófst í fimmtugasta og annað skiptið síð- astliðna helgi, en þessi alþjóðlega listahátíð fer fram annað hvert ár, en meðal landa sem senda fulltrúa sína á hátíðina nú í fyrsta sinn eru Aserbaídsjan, Tadsjikistan, Mold- avía, Mexíkó og Líbanon. íslend- ingar hafa tekið þátt í hátíðinni frá árinu 1984, en að þessu sinni er það Steingrímur Eyfjörð sem er fulltrúi íslands á hátíðinni. Verk hans, Ló- an er komin, samanstendur af 13 sjálfstæðum verkum; ljósmyndum, skúlptúrum, textum, teikningum, myndböndum og öðrum miðlum. Þar er fléttað saman ólíkum þráð- um úr íslenskri sögu og samtíma með tilvísunum i vestræna heims- mynd og alþjóðavæðingu. Steingrímur kafar djúpt í menn- ingararfleifð íslendinga og nútíma- lega tjáningu hennar, en endurskoð- ar um leið þá tjáningu og setur hana í annað og margræðara samhengi en oftast er raunin. Þungamiðja verksins er Gerðið, en það er smíðað eftir leiðbeiningum huldumannsins sem Steingrímur komst í samband við í gegnum miðil en verkið lýsir ferð listamannsins til heimkynna huldumannsins á Suðurlandi til að kaupa af honum kind. í verkinu Lóan er komin má lesa viðsnún- ing á viðteknum hugmyndum um þekkingarsköpun, sem er einmitt ríkur þáttur í verkum Steingríms og kemur skýrt fram í áhuga hans á fyrirbærum sem eru andstæða rök- hyggjunar, svo sem hindurvitnum og þjóðsögum. Yfirskrift Feneyjatvíæringsins í Álfaskór Hérgefurað líta álfaskó eftir Steingrim Eyfjörð, fulltrúa Is- lands á Feneyjatvíæringnum í ár. ár er Think with the Senses -Feel with the Mind og er hátíðinni stýrt af listfræðingnum og sýningarstjór- anum Robert Storr sem starfaði áð- ur við MOMA-safnið í New York. Hátíðin hófst, eins og fyrr segir, um nýliðna helgi og stendur til n.nóv- ember næstkomandi.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.