blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 18
26 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 ferðir Afþreying Gleymiö ekki að taka með einhverja afþrey- ingu fyrir börnin í fiugvélina svo þau missi ekki þolinmæðina á löngu ferðalagi. Nesti Það getur verið dýrt að ferðast erlendis en hægt er að minnka þann kostnað töluvert með því að taka með sér nesti. Hægt er að útbúa samlokur á hótelinu og taka með sér til að borða yfir daginn. ferdir@bladid.net Vinsælt að ferðast til Billund Góður staður Leikandi létt bílferð Börn geta orðið eirðarlaus í löngum ferðalögum og sérstaklega ef miklum tíma er eytt í bílnum. Það er því nauðsynlegt að hafa nóg að gera svo ferðin verði sem skemmti- legust fyrir alla. Hér eru nokkrir góðir leikir sem henta í bílferðir Frúin í Hamborg Hver kannast ekki við eyðslusemi Frúarinnar í Hamborg en flest börn skemmta sér konunglega í þessum leik. Hver stal kökunni úr krúsinni í gær Hress leikur um þjófótt átvagl en allir þátttakendur fá númer og klappa með söngnum. Fyrsti þátttakandinn byrjar: „Hver stal kökunni úr krúsinni í gær. Númer 4 stal kökunni úr krúsinni í gær!“ Þá tekur númer 4 við og segir: „Nei, ekki ég.“ Allir: „Hver þá“ Nr. 4: ,Númer 2 stal kökunni úr krúsinni í gær.“ Og svona heldur leikurinn áfram. Ég sé Ég sé eitthvað sem byrjar á F. Aðrir í bílnum giska svo á hvað það geti verið og sá sem giskar rétt fær að gera næst. langt. Legoland er undraveröld þar sem sjá má helstu byggingar heims byggðar úr legokubbum, skemmta sér í alls kyns tívolítækjum og upp- lifa sjávarveröldina Atlantis þar sem lifandi hákarlar synda um. I um 2i kílómetra fjarlægð frá Lego- fyrir fjölskyldur Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd. svanhvit@bladid.net Einn vinsælasti áfangastaðurinn í ár er án efa Billund í Danmörku en bærinn er ekki síst þekktur fyr- ir Legoland. Iceland Express hóf að fljúga reglulega til Billund í byrjun júní og Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir að aðsóknin sé það mikil að verið sé að íhuga að auka ferðir þangað. „Núna fljúgum við tvisvar í viku til Billund en sú staða er komin upp að það er mjög erfitt að fá sæti til Billund í júlí. Það kemur því til greina að bæta fleiri flugferðum við en það hefur komið okkur skemmtilega á óvart hve góðar móttökurnar hafa verið,“ segir Matthías og bætir við að það sé varla við öðru að búast. „Það er margt hægt að gera í Billund og ná- grenni og staðurinn er sérstaklega spennandi fyrir fjölskyldur." Undraveröld Flugvöllurinn í Billund er næst- stærsti flugvöllur í Danmörku á eft- ir Kastrup og því fjöldamargir sem leggja leið sína þangað. Ekki hafa þó allir næturdvöl í Billund enda margir bæir í nágrenninu og margt að sjá. Helsta aðdráttarafl Billund er vafalaust Legoland en þar geta bæði fullorðnir og börn skemmt sér dag- Kolding Nútímaleg og skemmtileg háskólaborg sem staðsett eríum hálf- tíma fjarlægð frá Billund. Matthías Imsland Það kemurtil greina að bæta fleiri flugferðum við til Billund en það hefur komið okkur skemmtilega á óvart hve góðar mót- tökurnar hafa verið. Hagsýnn íslendingur velur praktískan og fallegan bíl Núna Mazda6 Frábær í endursölu 'Brimborg og Mazda í

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.