blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 27
Gamla goða tjaldið
Minmngin lifir
Gleymiö ekki myndavélinni heima þegar ferðast er, hvort sem
er innan- eða utanlands. Minningarnar iifa svo sannarlega en
ekki er verra að eiga sumar þeirra á myndaformi.
Nu orðið eiga margir fellihýsi, tjaldvagna og annað slikt en samt
sem áður jafnast ekkert á við gamla góða tjaldið. Hví ekki að
skella sér í eina hressandi tjaldútilegu í sumar.
blaöiö
„Það er nánast eins og að
ferðast aftur í tíma enda
má finna þar einkar falleg
hus sem hafa varðveist vel
í áranna rás.“
landi má finna dýragarðinn Löve-
parken. Garðurinn er óvenjulegur
að því leyti að keyra má um hluta
hans og upplifa dýralífið beint í æð.
Það er óneitanlega sérstök tilfinn-
ing sem grípur gesti þegar stórt ljón
gengur meðfram bílnum, í einungis
um hálfs metra fjarlægð.
Árósar
Það tekur einungis um einn og
hálfan klukkutíma að aka frá Bil-
lund til Árósa og því tilvalið að kíkja
þangað í dagsferð. Árósar eru næst-
stærsta borg Danmerkur en auk
þess yngsta borgin og þar er alltaf
eitthvað um að vera. 1 bænum eru
um þrjátíu leikhús, fjöldi safna og
glæsilegt úrval af kaffihúsum með-
fram árbakkanum þar sem eftir-
sóknarvert er að eyða kvöldstund.
Kolding
Kolding er nútímaleg og skemmti-
leg háskólaborg sem staðsett er í um
liálftíma fjarlægð frá Billund. Borg-
in er markaðssett sem vinalegur
bær og segja má að andinn í Kold-
ing minni á lítið þorp þrátt fyrir að
vera stór borg. Kolding er vel þekkt
fyrir fallegt landslag, lifandi menn-
ingu og dramatíska sögu.
Esbjerg
Esbjerg er ekki gömul borg á
danskan mælikvarða en uppvöxtur
hennar hefur verið hraður eins og
venjan er með hafnarborgir. Þar má
þó finna miklu meira en hafnarlíf
því borgin sjálf iðar af lífi. Esbjerg
er með stærstu borgum í Danmörku
þar sem búa tæplega too þúsund
manns.
Ribe
Það er ómissandi að ferðast til
Ribe ef flogið er til Billund en Ribe
er einn elsti bær í Danmörku og er
sagður hafa verið í sérstöku uppá-
haldi hjá H.C. Andersen. Það tekur
tæplega klukkutíma að keyra frá Bil-
lund til Ribe en það er nánast eins
og að ferðast aftur í tíma enda má
finna þar einkar falleg hús sem hafa
varðveist vel í áranna rás. Bílferðin
er því vel þess virði þó ekki nema
væri til að fá sér göngutúr í bænum.
Lærðu málið!
Flestir íslendingar eru duglegir að
læra önnur tungumál og margir
kunna 2-3 mismunandi mál. Jafn-
vel þó oftast sé hægt að nota
ensku víðs vegar um heim getur
verið fróðlegt og skemmtilegt að
læra örlítið í tungumáli áður en ferð-
ast ertil viðkomandi lands. Það
þarf ekki margra ára kennslu til
heldur er nóg að kunna nokkur orð,
til að geta bjargað sér. Heimafólkið
verður óneitanlega vinalegra þegar
þeir uppgötva að ferðamenn hafa
tekið sér tíma til að læra tungu-
málið auk þess sem minni líkur eru
á að svindlað verði á þér. Það eru
næg tækifæri til að læra tungumál
áður en farið í ferðalagið. Það er
hægt að taka stutt tungumálanám-
skeið, fara í tungumálaskóla, hlusta
á myndir og lesa bækur með
viðkomandi tungumáli auk þess
sem hægt er að kaupa litla vasa-
orðabók. Núorðið er hægt að læra
fjöldamörg tungumál á Netinu sem
gerir lærdóminn enn auðveldari.
’-'.í V’FÍSKjr
——
SmBIh
Veldu rétt
Mazda6 er hagkvæmasti bíllinn í rekstri í síhttm-stærðarflokki,
samkvæmt félagi þýskra bíleigenda, ADAC. Komdu TBrimþorg
ög-ptófaðu Mazda6.
Prófaðu eitthvað nýtt. Gerðu samanburð á japönskum gæðum
- berðu saman bæði gæði og þjónustu Toyota og Mazda.
Mazda keppir við hvern sem er - helst Toyota. Vertu sportlegur.
Veldu annan stíl. Núna Mazda6.
Mazda6 Touring 4 dyra 2,0i sjálfskiptur
2.590.000 kr.
sportlegur
du annan si
Vertu:
Veldu annan stíl
Núna Mazda6
brimborg
wmm
í: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.mazdabrimborg.is