blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 20
heilsa
heilsa@bladid.net
blaóiö
Reykingar á vinnustöðum
Rósa Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur talar um
reykingar á vinnustöðum á veitingastaðnum Jóm-
frúnni á morgun kl. 16:30. Allir eru velkomnir.
Kærleikur og samkennd
Lama Yeshe Losal Rinpoche heldur fyrirlestur um mik-
ilvægi kærleika og samkenndar í Norræna húsinu þann
14. júní kl. 17:30. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
28
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007
Konur fá einnig hjarta- og æðasjúkdóma
Hjartans mál kvenna
Blóöbankahlaupiö
Blóðbankahlaupið verður þreytt í
Laugardal í tilefni af alþjóðadegi
blóðgafa, fimmtudaginn 14. júní.
Hlaupið hefst við sundlaugina í
Laugardal kl. 18 og verður hlaupið
um þriggja kílómetra leið í dalnum.
Þeir sem hafa áhuga á að spretta
úr spori á fimmtudag geta skráð
sig í Blóðbankanum eða með því
að senda tölvupóst á blood@lsh.is.
Taka þarf fram fjölda þátttakenda
og aldur þeirra.
Þátttökugjald er ekkert. Að hlaupi
loknu fá þátttakendur verðlauna-
pening og gestakort í Hreyfingu
auk þess sem frítt verður í sund-
laugina.
Blóðbankinn þarf um 16.000 blóð-
gjafa á ári eða 70 á dag til að mæta
þörfum samfélagsins. Þeir sem eru
á aldrinum 18-60 ára, yfir 50 kg,
heilsuhraustir og lyfjalausir geta
gerst blóðgjafar. Virkir blóðgjafar
geta gefið blóð til 65 ára aldurs.
Nánari upplýsingar um blóðgjafir
og starfsemi Blóðbankans er að
finna á heimasíðu hans blodbank-
inn.is.
Ný virkni lyfs
LyAem notað er gegn of háum
blóðþrýstingi kann að gagnast í
þaráttunni gegn Parkinson-sjúk-
dómnum, hægja á þróun hans
og jafnvel stöðva hana að fullu ef
marka má niðurstöður nýrrar rann-
sóknar sem birtar voru í fræðiritinu
Nature. Prófanir á músum sýndu
að lyfið isradipine getur endurnýjað
þær taugafrumur heilans sem
skaddast hjá Parkinson-sjúklingum.
Parkinson-sjúkdómur er hrörnunar-
sjúkdómur sem hefur aðallega áhrif
á fólk sem er komið yfir miðjan
aldur. Samtök Parkinsson-sjúk-
linga hafa lýst yfir ánægju með
rannsóknina en árétta jafnframt að
um fyrstu niðurstöður sé að ræða.
Hjarta- og æðasjúkdóm-
ar leggjast ekki síður
á konur en karla öf-
ugt við það sem marg-
ir halda. Einkenni
slíkra sjúkdóma birt-
ast þó oft á annan
hátt hjá konum en körlum og þau
koma einnig fram síðar á ævinni.
Karlar fá gjarnan verk fyrir brjósti
sem leiðir síðan út í handlegginn en
hjá konum eru einkennin óljósari og
lúmskari. Þær finna til dæmis fyrir
almennum óþægindum, þreytu,
þróttleysi, kvíða og óróleika. Þó skal
tekið fram að lúmsk einkenni geta
einnig gert vart við sig hjá körlum.
Þar sem einkennin eru ekki eins
afdráttarlaus og hjá körlunum er
hætt við að konur tengi þau ekki
sérstaklega við hjarta- og æðasjúk-
dóma. Það er jafnvel hætt við að
þær geri minna úr einkennunum
en ástæða er til og láti síður athuga
hvort eitthvað kunni að vera að.
Hugsa frekar um karlana
Svo virðist sem margar konur telji
að hjarta- og æðasjúkdómar herji að-
allega á karla en séu almennt ekki
nógu meðvitaðar um þá hættu sem
þeim sjálfum stafar af þeim.
„Það kemur okkur í raun svolítið
á óvart að konur eru mjög duglegar
að hvetja menn-
ina sína til að fara
og láta skoða sig.
Við tökum á móti
fólki alla morgna
sem kemur hing-
að í hjartarann-
sókn, lætur mæla
kólesterólið og
blóðþrýstinginn
og svo framveg-
is. Það er mjög
algengt að menn
segi að konan hafi
rekið þá af stað.
Það er full ástæða
fyrir konur að
fylgjast líka með
sjálfum sér en
ekki aðeins þeim
sem eru í kring-
um þær svo sem
eiginmönnum
og sonum,“ segir Guðrún Jóna Guð-
laugsdóttir, hjúkrunarfræðingur
hjá Rannsóknarstöð Hjartaverndar.
Guðrún bendir á að það sé sér-
staklega brýnt að konur láti athuga
stöðuna ef um ættarsögu er að ræða.
„Hjartasjúkdómar, of hár blóðþrýst-
ingur og of hátt
kólesteról liggur í
ættum. Þetta eru
allt ættlægir sjúk-
dómar.“
Hjartarann-
sókn býður fólki
upp á að gangast
undir áhættumat
út af hjarta- og
æðasjúkdómum
og getur hver sem
er pantað tíma.
Nánari upplýsing-
ar má nálgast á
heimasíðu Hjarta-
verndar hjarta.is.
Hjartaprófið
Alþjóðleg hjarta-
verndarsamtök
hafa að undan-
förnu beint sjón-
um sínum í auknum mæli að konum
og vakið athygli þeirra á hjarta- og
æðasjúkdómum. Hjartavernd legg-
ur sitt lóð á vogarskálarnar í þeirri
vitundarvakningu og hefur í sam-
starfi við Lýðheilsustöð og íþrótta-
og Ólympíusamband íslands gefið
út bæklinginn Hreyfing er hjartans
mál - hjartaprófið sem er sérstak-
lega miðaður að konum.
1 honum er meðal annars að finna
hjartaprófið, sjálfspróf sem byggist á
21 mikilvægri spurningu um heilsu
og lífsstíl. Með því að taka prófið
geta konur fengið vísbendingar um
eigin hættu á að fá hjarta- og æða-
sjúkdóma. Enn fremur er að finna í
bæklingnum fróðleiksmola um mik-
ilvægi heilbrigðs lífernis. Bæklingn-
um verður dreift til þátttakenda í
Kvennahlaupinu sem fram fer um
næstu helgi en hann er einmitt gef-
inn út í tilefni hlaupsins.
„Við erum að nota tækifærið út af
Kvennahlaupinu til að koma þessu á
framfæri en þetta er eitthvað sem er
að gerast víða. Það er verið að vekja
meðvitund kvenna um að þær eigi
að drífa sig af stað en ekki bara að
hvetja karlana til að fara þó að þeirra
einkenni séu oft og tíðum óljósari og
lúmskari,“ segir Guðrún Jóna Guð-
laugsdóttir að lokum.
Heilbrigt hjarta
Hægt er að draga úr hættunni
á því að fá hjarta- og æðasjúk-
dóma með ýmsum hætti. Hreyf-
ing, reglulegt eftirlit og heilbrigt
líferni skipta miklu máli í því sam-
bandi. Svona er Topp tíu-listinn
fyrir heilbrigt hjarta:
1. Reyktuekki.
2. Hreyfðu þig daglega.
3. Borðaðu hollan mat.
4. Haltu kjörþyngd.
5. Forðastu óhóflega streitu.
6. Láttu kanna blóðþrýstinginn.
7. Láttu kanna blóðsykurinn.
8. Láttu kanna kólesteról.
9. Ráðfærðu þig við lækni.
10. Njóttu lífsins en farðu vel
með hjartað, þú átt bara eitt.
Herja líka á konur Hjarta- og æða-
sjúkdómar herja ekki síður á konur
en karla þó að einkennin séu önnur.
Hægt er að draga úr hættunni með
heilbrigðu líferni og reglulegu eftirliti.
Blaöið/Sverrir
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03
SUMARYOGA
Líkamsæfingar, öndunar-
æfingar, slökun og hug-
leiðsla.
Morgun-, hádegis-,
síðdegis- og kvöldtímar.
Sértlmarfyrirbyrjendurog — ■''tSs-T''-—
barnshafandi konur. www.yogaheilsa.is
Sumarskór
ATH!
opið til kl 21:00
fimmtudag
Stærð 36-41 - Verð 1.995
Litir: svart, silfur, gylltir og brons
Itói
Skóverslun Kringlunni 8 -12 - S: 553 2888
Fjórföldun Alzheimer-tilfella spáð
Meira en 26 milljónir manna
um allan heim eru með Alzheimer-
sjúkdóminn en sú tala kann að fjór-
faldast fyrir árið 2050 samkvæmt
spá sérfræðinga við John Hopkins
háskólann í Bandaríkjunum.
Meira en 40% þessara rúmu
100 milljóna Alzheimer-sjúklinga
verða enn fremur með sjúkdóminn
á síðari stigum og munu því þurfa
á mikilli aðhlynningu að halda.
Þessi þróun mun jafnframt hafa
umtalsverðan kostnað í för með sér
fyrir aðstandendur og heilbrigðis-
kerfi heimsins.
Ron Brookmeyer, sérfræðingur
í lýðheilsufræðum, sem stjórnaði
rannsókninni sagði í viðtali við
AP-fréttastofuna að ef hægt yrði að
ná minniháttar framförum í barátt-
unni við sjúkdóminn eða hægja á
þróun hans myndi það hafa mikil
áhrif á heilbrigðismál um allan
heim.
Spáð er að mesta aukningin verði
í Asíu en núna er nærri helmingur
Alzheimer-sjúklinga í þeim heims-
hluta eða 12,6 milljónir. Af þeim
106 milljónum Alzheimer-sjúk-
linga sem verða í heiminum árið
2050 verða 62,8 milljónir í Asíu.
í Evrópu er talið að aukningin
verði 7,2 milljónir nú í 16,5 milljónir
árið 2050. 1 Bandaríkjunum verða
Alzheimer-sjúklingar 8,8 milljónir
árið 2050 ef marka má spána en
eru núna 3,1 milljón.
Fleiri tilfellí Spáð er verulegri
fjölgun Alzheimer-tilfella í heim-
inum á næstu áratugum.