blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 26
í miðnæturgolfi „Ég var eiginlega bara í því að berjast við illgresi alla helgina,“ segir Haraldur Örn Sturtuson trommuleikari hljómsveitarinnar Úlpu. „Það þurfti að rífa þetta allt upp með rótum í garðinum þannig að það tók sinn tíma. Svo spilaði ég golf og fór í útskrift- arveislu og svona eitthvað hefð- bundið. Ég man nú varla hvað ég gerði á föstudagskvöldið, ég held að ég hafi bara verið rólegur. Svo var ég í veislu hjá Gísla félaga mínum sem var að útskrifast frá Bifröst á laugar- dagskvöldið. Það var fullt af fólki og mikið stuð. En ég fór í mið- næturgólf á sunnudagskvöldið þannig að ég er svolítið þreyttur eftir það. En það var Ijúft að spila golf í góða veðrinu og ég er svona eiginlega úthvíldur eftir þessa rólegheita helgi.“ Gekk vel 1 tökum Vegvisir að ibúðnni minni Dansari í Vesturbænum Eldhúsborö hússins er einn af uppahaldsstóoum minum í ibúðinni. Það er kringum 30 ára gam- alt, á sér góða sögu og í kringum það hefur ýmislegt átt sér stað. Mér finnst ofsalega kósý að sitja við það með vinum mínum og narta i eitt- hvað Ijúffengt langt fram á nótt.'1 Emilía Benedikta Gísladóttir er kona víðförul og alls ekki ókunn danslistinni en hún er meðlimur í íslenska Dans- flokknum. Hún hefur sinnt því starfi í þrjú ár en tvö þeirra hafa verið samningsbundin. „Ég er nýkomin úr sýningar- ferðalagi dansflokksins til Kína, síðan er ég á leið til Finnlands en þar mun ég ásamt þremur öðrum taka þátt í danshöfunda- keppni með verk eftir Ólöfu Ing- ólfsdóttur danshöfund. Verkið er rosalega dramatískt en samt sett upp á spaugilegan hátt.“ [ haust verður dansflokkurinn einnig á faraldsfæti og hyggst sýna Bandaríkjamönnum nær og fjær íslenska danslist. Emilía er nú búsett í Vestur- bænum en þrátt fyrir stutta viðveru þar líkar henni það ein- staklega vel. „Þetta er frábær staðsetning og það má segja að ég fíli Vesturbæinn alveg í botn. Hverfið er rótgróið og þess vegna er lítið um vinnu- vélalæti. Svo er auðvitað stutt í bæinn en líka út í náttúruna.” bjorg@bladid. net jtáUk Flott safn Á heimilinu má finna ágætis- safn hressra vídjó-myndbanda sem Em- ilia hefur tekið upp ásamt vinkonu sinni þegar þær skella sérsaman til útlanda. i*s§s Mögnuð lygasaga skíthæls „Helgin hjá mér var stórfín," segir María Heba Þorkelsdóttir leikkona. „Ég var að vinna, var í tökum fyrir Pressu hjá honum Óskari Jónassyni bæði á laug- ardag og sunnudag. Svo var ég róleg heima hjá mér með drengnum mínum á föstudags- kvöldið en á föstudeginum var ég eitthvað að stússast með henni ömmu minni af því að hún er að flytja. En tökurnar hjá Skara gengu vel á laugar- deginum enda góður og glaður hópur sem er í þessu. A sunnu- dag náði ég að eiga smástund með fjölskyldunni minni og fór í göngutúr niður í bæ. En hápunktur helgarinnar var þegar ég kom heim á laugardaginn eftir vinnu og maðurinn minn var ég búin að kaupa nýja skó handa mér, ég var ótrúlega ánægð með það.“ Eftir að bókaforlag hættir við að gefa út skáldsögu Clifford Irving sér hann ekki annað í stöðunni en að búa til eina mögnuðustu lygasögu allra tíma. Irving lýgur því að millj- arðamæringurinn Howard Hughes hafi veitt honum leyfi til að skrifa ævisögu sína, en Hughes var sérvit- ur mjög og hafði nánast eingöngu samband við fólk í gegnum ráðgjafa sína. The Hoax er góð mynd. Hún er vel gerð, vel leikin, fyndin, spennandi og sagan er skemmtilega útfærð. Það liggur fyrir að þrátt fyrir að myndin sé byggð á sannsögulegum atburðum hefur Hollywood fengið að fara nokkuð frjálsum höndum um atburðarásina. Úr verður prýði- legasta ræma. Richard Gere er stórkostlegur sem skíthællinn Clifford Irving, sem lýgur ekki aðeins að bókaútgáf- Skithæll Richard Gere er stór- kostlegur sem Clifford Irving. unni heldur einnig að vini sínum og eiginkonu. Alfred Molina er ekki verri sem vænisjúki barnabókahöf- undurinn Dick Susskind. Samleikur þeirra er frábær og gefur myndinni nauðsynlegan trúverðuleika. Þá er Marcia Gay Harden mjög góð sem eiginkona Irvings og Stanley Tucci á góða innkomu sem einn af topp- unum í bókaútgáfunni sem Irving sveik svo illilega. The Hoax gerist hægt og heldur sér nokkuð vel á floti. Einstaka sinn- um missir hún þó dampinn og verð- The Hoax Regnboginn Lasse Hallström Richard Gere, Alfred Molina, Marcia Gay Harden Atli Fannar Bjarkason atli@bladid.net Kvikmyndir ★ ★★★ ur langdregin, en aldrei svo að hún verði leiðinleg. Handritið er nokk- uð skothelt og leikstjórnin hentar myndinni fullkomlega þar sem mik- ið er treyst á Gere og Molina til að stýra skipinu í þessari farsælu ferð. The Hoax er stórskemmtileg mynd og enn eitt skot og mark fyrir kvik- myndaklúbbinn Græna ljósið. Fyrir ekta íslenska sumarblíðu Við kynnum Rán Light, léttan barnafatnað sem er vatnsheldur, ófóðraður og andar vel. Rán light byggir á Rán fatnaöinum sem var svo vinsæll hjá okkur í vetur. Verð: Jakki Buxur Stígvél 5.500 3.700 2.500 Stígvél (fóðruð) 3.000 Fæst í gráu, appelsínugulu og svörtu. Ný sending! Fást í bleiku og grænu. 66 NORÐUR HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ: Smáralind Kringlan Bankastræti 5 Faxafen 12 . Miðhraun 11, Garðabæ AKUREYRI: Glerárgata 32 www.66north.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.