blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 1
15% Þjóðhátíðar afsláttur til 17. júní trippen mœttu www.trippen.is mátaöu upplifðu Rauöarárstíg 14 sími: 551 5477 *o 1 Konan PRIÐJUDAGUR 12. JUWI AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 • AUGLYSINGAR@BLADID.NET 18 Heilsurækt í sumar 20 Stelpur spila víst tölvuleiki 21 Flott verslun í Kringlunni 22 Hvaða bílar eru konum að skapi? 23 Heimagerðir andlitsmaskar Kvennahlaup ÍSÍ: Hreyfing er hjartans mál Kvennahlaupið í Garða- bæ Fjöldi kvenna tók þátt í Kvennahlaupinu á síðasta ári. 24 Litið vel út á efri árunum Kvennahlaup ISl verður þreytt í átjánda sinn laugardaginn 16. júní. Kvennahlaupið er án nokkurs vafa út- breiddasti og fjölmennasti íþróttavið- burður sem haldinn er hér á landi og ár hvert taka fleiri þúsundir kvenna þátt í hlaupinu. Þetta árið fer hlaupið fram á 8o stöðum um allt land en einnig mun Kvennahlaupið fara víða fram erlendis og nægir þar að nefna lönd á borð við Namibíu, Danmörk, Israel, Lúxemborg, Kanada og Banda- ríkin. I Kvennahlaupinu fer hver á sínum hraða og tilgangur hlaupsins er ekki að koma fyrst í mark heldur að taka þátt. Konum stendur til boða að hlaupa allt frá tveimur upp í tíu kíló- metra en tíu kílómetra hlaupið er ný- breytni og verður það hlaupið í fyrsta sinn í Garðabæ þar sem fjölmennasta hlaupið fer fram. Upplýsingar um alla hlaupastaði Kvennahlaupsins er hægt að finna á www.sjova.is. Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðs- stjóri almenningsíþróttasviðs hjá íþrótta- og ólympíusambandi Is- lands, segir að tilgangurinn með Kvennahlaupinu nú, sem og árin á undan, sé að hvetja konur til að hreyfa sig. „Tilgangur er fyrst og fremst að hvetja konur til að hreyfa sig og setja heilsuna í forgang. Und- anfarin ár höfum við átt samstarf við hagsmunasamtök og þetta árið erum við í samstarfi við Hjarta- vernd og yfirskrift hlaupsins er Hreyfing er hjartans mál.“ Hún segir að með þessu sé verið að beina sjónum að konum og kransæðasjúkdómum. „Hreyfing er mikilvægasta forvörnin og ef konur hreyfa sig reglulega þá geta þær dregið úr líkunum á að fá kransæða- stíflu um þrjátíu prósent.“ Það er því um að gera að sem flestar konur taki þátt í Kvenna- hlaupinu á laugardaginn kemur því hreyfing er vissulega hjartans mál. Greiðslukjör í allt að 36 mánuði Sjóntækjafræðingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga §Gleraugað Bláu húsin við Faxafen Suðurlandsbraut 50 108 Reykjavík Sími: 568 1800 (visa/euro) Engin útborgun gleraugad@simnet.is www.gleraugad.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.