blaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 1
Tíska götunnar Ferðadrottningin Edda Sif Eyjólfsdóttir er í : Helga Dýrfinna Magnúsdóttir hönnunarhóp sem hefur i er á leið til Kína þar sem i brennandi áhuga á tísku. i hún verður fulltrúi íslands Hún er veik fyrir galla- í Miss Tourism Interna- | buxum í öllum litum og á tional-keppninni sem I marga flotta skó í skápnum. i haldin er í fjórða skipti. Lögð í einelti Keppendur í Fegurðarsam- keppni (slands eru sakaðir um að hafa lagt Ungfrú ísland í einelti og framkvæmdastjóri keppninnar segir að það hafi ekki farið fram hjá sér. 107. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 13. júní 2007 FRJALST, OHAÐ & Nautahakk 998 kr. kílóið Opið alla daga frá kl. 10.-20 SPT R Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Lánveitingar íbúðalánasjóðs endurskoðaðar: Bankarnir fái almennu lánin ■ Aukin hlutdeild möguleg ■ Félagslega hlutverkið varið ■ Gagnrýni tekin alvarlega Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Endurskoða á fyrirkomulag almennra lánveitinga Ibúðalánasjóðs á næstu mánuðum samtímis því sem lögð Verður áhersla á að verja félagslegt hlut- verk hans. Til greina kemur að bankar fái aukna hlutdeild í almennu lánunum, að sögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra. ' „Það stendur ekki til að selja Ibúðalánasjóð eða selja hann sem slíkau, Við ætlum að verja félags- lega hlutverkið hvað varðar íbúðalán til fólks á landsbyggðinni, fólks sem er að kaupa í fyrsta sinn, tekjulágra og svo framvegis, og við munum skoða næstu mánuði hvernig það verður gert. Það eru ýmsar leiðir sem koma til greina aðrar en að reka sjóðinn í óbreyttri mynd. Það getur vel verið að bankar fái aukna hlutdeild í almennu lán- unum. Það er eitt af því sem við munum skoða,“ segir Björgvin. Ráðherrann segir að gagnrýni Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins verði tekin alvarlega og að farið verði yfir ábendingarnar. „Þeir segja að íbúðalána- sjóður eigi sök á ójafnvægi í efnahagsmálunum sem ég held að sé ofmælt. Auðvitað hafði það veruleg áhrif þegar bankarnir koma inn á íbúða- lánamarkaðinn og lánshlutfallið var hækkað í 90 prósent. Það olli þenslu og mikilli hækkun á fast- eignaverði. Auðvitað torveldaði það Seðlabank- anum að draga úr eftirspurn og þrýstingi með stýrivaxtahækkunum. En það er samt sem áður ekki ástæða til að segja að íbúðalánasjóður sem slíkur sé valdur að því, heldur þær breytingar sem áttu sér stað.“ 6,2 krónu munur á kílómetra leið Á litlum bletti í kringum Smáralind getur munaö 6,2 krónum á bensínlíternum eftir því hvaða afgreiðslustöð er valin. Þannig kostar bensínlítrinn á Egó-stöö- inni í Hæöarsmára 118,4 krónur. Aðeins um 500 metrum neöar á Egó við Smára- lind kostar lítrinn 122,8 krónur. FRÉTTIR » 2 Enn engin höft á hergagnaflutning Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir rangt að heimild til að fljúga með hergögn um íslenska lofthelgi sé ekki lengur í gildi. „Á meðan heimildin hefur ekki verið afturkölluð er hún í gildi. Valgerður segir orð utanríkis- ráðherra á þingi í síðustu viku röng. FRÉTTIR » 4 Fækkar í Vinnuskóla Reykjavíkur: 300 færri nú en í Stöðugt færri krakkar skrá sig í sumarvinnu hjá Vinnuskóla Reykja- víkur. Guðrún Þórsdóttir, skólastjóri Vinnuskólans, segir ákveðna vel- megun í landinu hafa áhrif á skrán- inguna: „Foreldrar eru ekkert að láta krakkana fara að vinna því í fyrsta lagi hefur fólk það miklu betra og þarf ekki eins og áður að láta börnin vinna. Svo í öðru lagi vilja menn bara fara í löng sumarfrí.“ Um 2.400 krakkar í áttunda, ní- unda og tfunda bekk grunnskóla eru skráðir í Vinnuskóla Reykja- víkur í sumar en í fyrra voru það um 2.700. Guðrún segir að hluti af þeim krökkum sem skrá sig ekki hjá Vinnuskólanum fari að vinna í lágvöruverðsverslunum en þar séu launin hærri. Hjá Vinnuskóla Reykjavíkur fá nemendur í áttunda bekk að vinna þrjá og hálfan tíma fyrra á dag og fá 316 krónur á tímann. Nemendur í níunda bekk vinna í sjö tíma á dag og fá 356 krónur á tímann. Þeir sem eru í tíunda bekk vinna einnig í sjö tíma á dag en þeir fá 474 krónur á tímann. Nemendur í áttunda og níunda bekk mega vinna í 25 daga á tímabilinu 11. júní til 3. ágúst og þeir sem eru í tíunda bekk í 30 daga á tímabilinu 11. júní til 10. ágúst. Var armbandsúri Bush stolið? Blossað hafa upp umræður um hvort aö armbandsúri George Bush Bandaríkjaforseta hafi verið stolið þegar hann heilsaði upp á íbúa Fushe Kruje, norður af höfuðborginni Tirana, um helgina. Myndbandsupp- taka sýnir að Bush var með úr með svartri ól á vinstri úlnlið, sem er svo skyndilega horfið þegar hann er búinn að taka í hendur gesta sem fögnuðu honum eins og hetju. Dana Perino, talsmaður Hvíta hússins, sagði forsetann vera með úrið í sínum fórum, en vildi ekki taka fram hvað kom fyrir það í Albaníu. Bush er fyrstur Bandaríkjaforseta til að heimsækja Albaníu og stendur til að gefa út ný frímerki með mynd af forsetanum og Frelsisstyttunni og endurnefna götu við þinghús lands- ins í höfuðið á Bush. GENGI GJALDMIÐLA SALA % HH USD 63,32 -0,84 ▼ GBP 125,03 , -0,51 ▼ SS DKK 11,33 -1,07 ▼ • JPY 0,52 -0,88 ▼ HB EUR 84,41 -1,04 ▼ GENGISVÍSITALA 114,77 -0,96 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.134,70 0 4 VEÐRIÐ í DAG VEÐUR » 2 r L_ bilolond.is Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.