blaðið - 15.06.2007, Side 1

blaðið - 15.06.2007, Side 1
8 68 68 28 32 HELGIN » ORÐLAUS » 17-24 » SÉRBLAÐ 09. tölublaö 3. argangur fostudagur 15. jum 2007 pizza með 3 áleggjum 1.190,-k„ FRJALST. & OKEYPIS/ Fjölbreytt þjóðhátíð Meðhjalparinn Lax í Pverá 2 lítra gos á 99 /“kr með sóttri pizzu Benony Ægisson hja Hinu husinu segir aö dagskrá þjóðhátíðar- innar á sunnudag sé svipuð k í sniðum og fyrri ár en þó | verði hún fjölbreyttari með L hverju ári. Eyþór Arnalds hefur tekið við störfum sem meðhjáip- ari í Selfosskirkju hjá sr. Gunnari Björnssyni. Hann segist vera trúaður og ánægður með nýja starfið. Hallgrimur Gunnarsson fékk annan laxinn í sumar í Þverá, en hann var sjö pund. Þverá opnaði fyrradag. £*ioo% Mfslenskur wstur / Mjódd / Dalbraut 1 Afnám tekjuskerðingar hjá 70 ára og eldri: Eðlilegra að vinna lengur ■ Hefði átt að ná til 67 ára ■ Viðmót atvinnulífsins jákvæðara Dráttarvextir til lögreglu prófmál Hæstiréttur Islands viöurkenndi í gær skyldu íslenska ríkisins til að greiða dráttarvexti af vangoldnum launupi lögreglumanns. Hæstiréttur staðfesti því dóm héraðsdóms og segir Sveinn Ingiberg Magnússon, formaður Lands- sambands lögreglumanna, málið mikinn sigur og lítur á það sem prófmál. FRÉTTIR » 2 Nemar sérvaldir fyrir fyrirtækin „Talsvert er um að fyrirtæki leiti til nemenda og öfugt þegar kemur að vali á lokaverkefni úr grunn- eða framhalds- námi,“ segir Ingjaldur Hannibalsson formaður viðskiptaskorar Háskóla Islands. „Dæmi eru um að fyrirtæki leiti til kennara og biðji þá um aö benda sér á nemendur." FRÉTTIR » 4 Ríkið á Þórsmörk og Goðaland Hæstiréttur úrskurðaði í gær að Þórs- mörk og Goðaland séu þjóðlendur í eign ríkisins. Óbyggðanefnd og Héraðsdómur Suðurlands höfðu áður komist að sömu niðurstöðu. Ragnar Aðalsteinsson sem fór með málið fyrir hönd Rangárþings eystra segir dóminn hugsanlega fara til Mannréttindadómstólsins í Strasbourg. FRÉTTIR »10 Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Frá og með 1. júlí munu atvinnu- tekjur sjötugra og eldri ekki skerða greiðslur almannatrygginga. Þetta á við tekjutryggingu, vasapeninga, vist- unarframlag auk þess sem tekjurnar hafa ekki áhrif á greiðsluþátttöku á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Ár- legur kostnaður er áætlaður 560 til 700 milljónir króna. Margrét Margeirsdóttir, for- maður Félags eldri borgara, fagnar niðurstöðu Alþingis og segir það vera þó nokkra búbót fyrir þá sem það nær til. Hún furðar sig þó á því af hverju það nái ekki til þeirra sem eru 67 ára og eldri. „Að sjálfsögðu teljum við þetta vera spor í rétta átt. Það er hins vegar ekki nóg að miða þetta við 70 ára og eldri. Það hefði átt að miða aldurinn við 67 ára, því að það er sá aldur sem fólk fær rétt á ellilífeyri frá Tryggingastofnun. En það hlýtur að vera næsta skref, ég vona það alla vega.“ Sigurður Gylfi Böðvarsson verður 69 ára í næsta mánuði og hefur starfað í Húsasmiðjunni í tæp tvö ár. ,Ég reyndi að hætta þegar ég varð 67 ára, en gat það ekki. Eg kunni ekki við að hafa ekki neitt að gera. Það er ágætt að vera innan um fólk og það er mjög fínn mannskapur hérna. Ég ætla vinna hérna þar til ég verð rek- inn,“ segir Sigurður og hlær. Hann er óviss um hvort breytingin verði til þess að hann framlengi starfs- ferilinn. Eins og er fær Sigurður rúm- lega 20 þúsund krónur i ellilífeyri og segir hann atvinnutekjur sínar skerða sinn lífeyri umtalsvert. Hann telur þess ekki langt að bíða þar til af- nám skerðinga nái til 67 ára og eldri. „Er þetta ekki eitthvað sem koma skal?“ spyr Sigurður og segir að það jákvætt að eldra fólk sé lengur úti á vinnumarkaðnum. „Menn verða að lengja starfsaldurinn meira en hann hefur verið. Mér finnst það eðlilegra að menn vinni heldur en að setjast í helgan stein. Fyrir mig er þetta ekki of lágur aldur, það eru kannski aðrir sem verða að hætta að vinna.“ Húsasmiðjan auglýsti fyrir nokkru eftir eldri borgurum í hlutastörf og reyndist það mjög vel að sögn Guð- rúnu Kristinsdóttur, starfsmanna- stjóra í Húsasmiðjunni. „Við höfum ekki gert það nýlega en þegar við aug- lýsum, þá auglýsum við eftir fólki á öllum aldri. Þetta er frábært fólk. Það hefur víðtæka reynslu og stundar sína vinnu af miklum áhuga,“ segir Guðrún. Þær ráðningarskrifstofur sem Blaðið hafði samband við sögðu að viðmót atvinnulífsins gagnvart eldri borgurum væri mun jákvæðara nú en áður. Enn sem komið er væru ekki margir eldri borgarar á skrá. Liðhlaupar í landsliði Kúbu Tveir leikmenn landsliðs Kúbu í knattspyrnu virðast hafa gerst liðhlaupar, fyrir leik liðsins gegn landsliði Hondúras í Houston í Texas á miðvikudaginn. (netútgáfu Houston Chronicle segir að framherj- inn Lester More hafi horfið þegar liðið var saman komið í East Ruther- ford í New Jersey og að miðjumaður- inn Osvaldo Alonso hafi ekki skilað sér aftur eftir verslunarferð liðsins í Houston. „Þessir tveir leikmenn létu sig hverfa. Þeir skiluðu sér ekki aftur,“ segir einn þjálfara liðsins, sem neit- aði að gefa upp nafn, eftir leikinn við Honduras sem tapaðist 5-0. Lands- lið Kúbu keppir nú í Gullbikarmótinu, móti þar sem knattspyrnulandslið Mið- og Norður-Ameríku etja kappi. NEYTENDAVAKTIN Verð á ólifuolíu Verslun Krónur Hagkaup 420 Spar Bæjarlind 440 Melabúðin 449 Samkaup -Úrval 450 Kjarval 469 Þín verslun Seljabraut 498 Verð var á Filippo Berio ólífuolíu í 500 ml. umbúðum Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 63,39 -0,37 ▼ StS GBP 124,80 -0,56 ▼ 55I DKK 11,34 -0,30 ▼ • JPY 0,52 -0,91 ▼ ■1 EUR 84,39 -0,31 ▼ GENGISVlSITALA 114,72 -0,4 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.165,07 0,7 A VEÐRIÐ Í DAG VEÐUR » 2 NÚ standa yfir SU**4fíHú NÚSTANDA' ÖGeNDUR-FELLIhIsAEíGENDUBA^- y 9TADO CWarcð A/ Reykjavik. Mork.. Akureyii: Hofsbót Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15 s 4()2 3504 Egilsstaöii Miðvangur 1, s 471 2954

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.