blaðið - 15.06.2007, Síða 6

blaðið - 15.06.2007, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 blaðiö INNLENT Minni afli í maí en i fyrra Heildarafli íslenskra skipa í maí var 11 prósentum minni en í maí í fyrra og það sem af er árinu hefur hann dregist saman um þrjú prósent miðað við sama tímabil 2006, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn var 142.064 tonn í maí en 180.631 tonn í maí í fyrra. ATVINNA Atvinnulausum fækkar Skráð atvinnuleysi í maí var 1,1 prósent sem jafngildir því að 1.759 manns hafi að jafnaði verið atvinnulausir í mánuð- inum. Hefur atvinnulausum fækkað um 107 að jafnaði frá því í apríl. Atvinnuleysið var 0,8 prósent meðal karla, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. KYNNINGARVERÐLAUN Reykjavík fær viðurkenningu Höfuðborgarstofa hlaut evrópska viðurkenningu fyrir markaðsstarf og kynningu á Reykjavík. Verðlaunin voru veitt af samtökunum European City Marketing sem samanstanda af 130 borgum í Evrópu. Viðurkenningin er veitt í fyrsta skípti. Vatíkanið: Amnesty sett út í kuldann Páfagarður hefur hvatt kaþól- ikka heimsins til að stöðva allar styrkgreiðslur sínar til mann- réttindasamtakanna Amnesty International, vegna jákvæðrar afstöðu samtakanna til fóstur- eyðinga. Amnesty segjast þó ekki hvetja til fóstureyðinga, heldur styðja rétt kvenna til að geta staðið frammi fyrir vali í þessum efnum, sér í lagi fórnar- lömb sifjaspella og nauðgunar. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- inni WHO er um 45 milljónum fóstra eytt árlega og um 70 þús- und konur látast af völdum óör- uggra fóstureyðinga á ári hverju. LÍFRÆNIR SAFAR Fæst í heilsubúðum og helstu matvörumörkuðum landsins Dreifing: Yggdrasill, S5444270,Suðurhraum12b,(jarðabæ Lokaverkefni unnin í samráði við stórfyrirtæki: Boðin vinna eftir verkefnavinnuna ■ Starfsferill nemenda athugaður ■ Sérvaldir fyrir verkefnið Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net „Talsvert er um að fyrirtæki leiti til nemenda og öfugt þegar kemur að vali á lokaverkefni úr grunn- eða framhaldsnámi,“ segir Ingjaldur Hannibalsson formaður viðskipta- skorar Háskóla íslands. „Dæmi eru um að fyrirtæki leiti til kennara og biðji þá um að benda sér á nemendur sem gætu unnið tiltekin lokaverkefni fyrir þau. Eins athuga ég hvar nemandi hefur unnið og hvort hann hafi einhver persónuleg sam- bönd þegar velja skal lokaverkefni.“ Fyrirtækin leita til skólanna Fjölmargir háskólanemar hafa starfað í atvinnulífinu ýmist fyrir eða með námi og hafa þannig ágæt tengsl inn í fyrirtæki landsins. Það virðist þó bera meira á því að nem- endur í viðskiptatengdum fögum svo sem hagfræði, viðskipta- og verk- fræði vinni lokaverkefni sín annað- hvort fyrir tilstilli fyrirtækja eða að þeirra eigin frumkvæði. Helst eru það fjármálafyrirtæki sem fá nem- endur til að vinna fyrirframákveðin verkefni fyrir sig og ráði þá einstak- linga jafnvel í ffamtíðarstörf að þeim loknum. Heiðrún skoðaði ímynd Magasin Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir vann mastersverkefni við viðskipta- og hagfræðideild á sviði markaðsfræða og alþjóðaviðskipta í tengslum við stórfyrirtæki. „Ég gerði rannsókn á ímynd Mag- asin búðarinnar í Kaupmannahöfn í samráði við Baug. Ég hafði unnið eitt sumar hjá fyrirtækinu og hafði í kjölfarið áhuga á að skrifa eitthvað í tengslum við það.“ Heiðrúnu var bent á að skrifa um Magasin þar sem verslunin hafði nýlega fengið slæma útreið í könnunum. „Ég fór til Kaupmannahafnar, gerði mikla rannsókn og sendi meðal annars spurningalista á 3.000 manns." Heiðrún telur að nemendur vinni lokaverkefni ýmist úr grunn- eða framhaldsnámi í samstarfi við fyr- irtæki frekar ef þeir þekkja áður til innan þeirra eða er með hugmyndir að rannsóknarefnum. Ingi inn sem sumarstarfsmaður Ingi Þór Wium er einn þeirra háskólanema sem vinnur að BS-rit- gerð sinni fyrir fjármálastofnun í bænum. „Ég réð mig sem sumar- starfsmann inn á ákveðið sérsvið fyrirtækisins og fékk síðar það verk- efni að skrifa um ákveðinn hlut sem vantaði. Ég er að klára hagfræði- nám þannig að það liggur beinast við að samnýta nám og starf. Einnig þekkti ég til yfirmannsins og vissi að hverju var verið að leita.“ Þannig má samnýta lokaverkefni vinnunni. „Það eru líka til dæmi um það Magasin Heiðrún kannaði ímynd Magasin í Kaupmannahöfn fyrir Baug. að fyrirtæki séu með fyrir fram tilbúin verkefni og óski eftir út- skriftarnemum til þess að vinna þau.“ Aðspurður hvort þetta gæti verið framtíðarvinnustaður sinn segir Ingi að það gæti vel verið. „Ég myndi allavega skjóta á það í dag.“ Ingi nefnir að talsvert algengt sé að nemendur vinni lokaverkefni sitt í samvinnu við vinnustað, en það fari þó talsvert eftir því að hverju námið snýr. Hæstiréttur: Tvö ár fyrir Krónu-rán Hæstiréttur hefur dæmt tæp- lega tvítugan karlmann, Arthur Geir Ball, í tveggja ára fangelsi fyrir rán í verslun Krónunnar í Mosfellsbæ síðasta sumar. Með dómnum mildaði Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sem var þriggja ára fangelsi. Með brotinu rauf Arthur Geir skilorð, en hann gerðist sekur um að hafa farið inn í verslunina með hulið andlit, ógnað af- greiðslustúlku með löngum fjað- urhníf, skipað henni að afhenda sér peninga úr sjóðsvél versl- unarinnar og halt á brott með sér tæpar 100 þúsund krónur. Dæmdir fyrir fíkniefnabrot Karlmaður á sextugsaldri, Arnar Theódórsson, var í gær dæmdur í Hæstarétti í átján mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Arnar faldi 700 grömm af kókaíni í fíkniefnum í tölvu sem hann flutti frá Orlando í Banda- ríkjunum sem flugfarþegi, en efnin fundust við leit í farangri hans á Keflavíkurflugvelli. Þá staðfesti Hæstiréttur fimmtán mánaða fangelsisdóm yfir hinum þrítuga Elimari Tómasi Reynissyni fyrir þjófn- aði og fíkniefnabrot. Hann missir ökuréttindin í fimm ár. Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Sverrir Einarsson Hermann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftkcr • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar (fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Ltkflutningar Hæstiréttur dæmir mann fyrir fjölda brota: Dæmdur í þriggja ára fangelsi í; v !'?:/■ I i !' i I n : ’ %| Tm f." ú t m - % t i' 1 Hæstiréttur Dæmir j mann í þriggja ára fang- elsi fyrir fjölda brota. Hæstiréttur dæmdi í gær ívar Smára Guðmundsson í þriggja ára fangelsi. ívar Smári var sakfelldur fyrir fjölda brota sem hann framdi á ár- inu 2006. Hann var sakfelldur fyrir tvö ránsbrot, líkamsárás, fjársvik, þjófnað, húsbrot, eignaspjölí, fíkni- efnalaga- og umferðarlagabrot. Með dómi sínum staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms en mildaði refsing- una um eitt ár. ívar Smári réðst meðal annars á þrjár konur og sló þær í andlitið með krepptum hnefa þegar hann framdi ránsbrot sín. Jafnframt lagði hann hendur á talsverð verðmæti í öðru ráninu og svo var einnig er hann braust inn í söluskála á Fáskrúðsfirði. ívar Smári hefur tvívegis áður verið dæmdur fyrir auðgunarbrot og var refsing hans var í bæði skiptin skilorðsbundin og stóðst hann skil- orð fyrri dómsins. Þá hefur hann tvívegis gengist undir sátt og einu sinni verið sviptur ökuréttindum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.