blaðið - 15.06.2007, Page 12

blaðið - 15.06.2007, Page 12
blaði Útgáfufélag: Ritstjórar: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árog dagurehf. Ólafur Þ. Stephensen Trausti Hafliðason Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Mistök annarra Það var einkennilegt að sjá Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi utanríkis- ráðherra, í ræðustól Alþingis fyrr í þessari viku spyrja forsætisráðherra hvort stuðningur íslenskra stjórnvalda við innrásina i Irak hefði verið afturkallaður og þá í hvaða formi. Valgerður héfði betur setið í sæti sínu en að rjúka upp í ræðustól á Alþingi og nefna íraksstríðið á nafn. Fyrirspurn hennar varð einungis til að minna ræki- lega á skömm Framsóknarflokksins í því máli. Þjóðin er ekki búin að gleyma að það var Framsóknarflokkurinn sem stóð að því ásamt Sjálfstæðisflokki að lýsa yfir stuðningi við Íraksstríðið. Svo alls sannmælis sé gætt verður að halda því til haga að ákvörðunin var tekin af tveimur mönnum, formanni Sjálfstæð- isflokksins, Davíð Oddssyni, og formanni Framsóknarflokksins, Halldóri Ás- grímssyni. Hlutskipti þingmanna þeirra var að kyngja þessari ákvörðun og þeir gerðu það flestir mótmælalaust. Þessi ákvörðun formannanna tveggja flýtti mjög fyrir pólitískum dauða þeirra en varð afdrifaríkari fyrir Framsóknarflokk en Sjálfstæðisflokk. Stjórn- málaflokkur sem skilgreinir sig sem hófsaman miðjuflokk hefur ekki efni á að leggja blessun sína yfir innrásarstríð enda kallaði þessi yfirlýsing á fjölda- flótta frá Framsóknarflokknum. I Sjálfstæðisflokknum er hefð fyrir því að fylgja Bandaríkjamönnum að málum með þeirri röksemdarfærslu að Banda- ríkin séu vinaþjóð sem beri að styðja 1 einu og öllu. Þá gleymist að það er aldrei gæfulegt að fylgja vinum í blindni. Nú eru nýir tímar og í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er íraksstriðið harmað. TJtanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur gert banda- ríska sendiherranum hér á landi grein fyrir þessari stefnubreytingu. Lengra þarf Samfylkingin ekki að ganga. Samfylkingin gaf fyrir kosningar fyrirheit um að ísland yrði tekið af lista hinna vígfúsu þjóða kæmist flokkurinn í ríkisstjórn. Þetta hljómaði satt að segja aldrei sérlega trúverðuglega og markaðist sennilega meir af óskhyggju en raunsæju mati. Menn segja stundum svo miklu meira í pólitík en þeir geta nokkru sinni staðið við þegar kaldur raunveruleikinn blasir við þeim. Það verður ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að stuðningurinn var veittur. Það er ekki svo auðveldlega hægt að fara aftur í tímann, draga fyrri yfirlýsingu til baka og telja sig þannig vera búinn að leiðrétta mistök annarra. Það yrðu ein- ungis marklaus orð, máttlítil seinni tima afsökun sem þjónar litlum tilgangi. Samfylkingin virðist vera búin að gera sér grein fyrir þessu og tekur skynsam- lega afstöðu i málinu. Samfylkingin getur ekki heldur sífellt horft í baksýnisspegilinn í samstarfi sínu við Sjálfstæðisflokk. Formannsskipti hafa orðið í Sjálfstæðisflokknum og Geir Haarde er ekki sami vígamaðurinn og Davíð Oddsson var og er. Þegar ríkisstjórnin lýsir yfir harmi vegna fraksstríðsins er hún um leið að senda þau skilaboð að ákvörðun um stuðning við það stríð hafi að hennar mati verið misráðin. Um leið ber að hafa í huga að íslenska þjóðin þarf ekki að vera eilíf- lega grátbólgin vegna ákvörðunar tveggja manna um stuðning við Íraksstríðið. Hörðustu andstæðingar Íraksstríðsins tala stundum eins og íslenska þjóðin hafi sent her til Iraks og orðið að þola mannfall. Raunveruleikinn er bless- unarlega ekki á þann veg. Stuðningsyfirlýsingin var hins vegar mikil mistök tveggja manna. Af þeim mistökum má margt læra. öbJ r 6 Kolbrún Bergþórsdóttir & Gott til endurvinnslu Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins 12 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 blaöiö TjrUfl!?...© THl§ SoMt-tiE 1M lMClZ.olC.ms li JA«.GÍSIAl)5íTlP>. CfliLinG ICíU\ND...Ple/jS£ C/UiMe SoLLA Viv h^A A/IeGJNErUM Í|Þ PÆLA ME{> FENNWUlSm, EFJjSTA SfOm WLLA.EÍ/I HVoTír HWM S'E TíL HEg MRNa VEIT M/HXiRí- flLLA VEfifl Wf ÐU/M H9 §?íl í WoRJ Vlf ættua/i Notacuf? m i®i $m>7v§r Limua m e/nS os wm irr* r .... HAllí... Hfi.LU...?.... Háskólarnir í prófi Háskólarnir eru nýkomnir úr prófum. Nemendur luku sínum prófum fyrir nokkru en nú var sem sé komið að háskólunum sjálfum. Einkunnirnar voru að koma í hús. Ríkisendurskoðun birti í vikunni skýrslu um kostnað, skilvirkni og gæði háskólakennslu. Alveg eins og nemendur sem blða í nagandi óvissu eftir vitnisburði um frammi- stöðu sína höfum við sem störfum í umræddum háskólum beðið spennt eftir einkunn Ríkisendur- skoðunar. Að vísu voru aðeins þrjár námsdeildir metnar að þessu sinni, viðskiptafræði, lögfræði og tölvun- arfræði. Sjálfur starfa ég í félagsvís- indadeild við Háskólann á Bifröst svo þessi úttekt nær nú ekki til mín. Samt var ég orðinn ansi spenntur. Sem kennari er ég vanur því að nemendur kvarti yfir einkunnum, reyni að toga þær upp með alls konar afsökunum og tuði, jafnvel hótunum í einstaka tilvikum. Það hefur aldrei gengið. Á sama hátt hafa stjórnendur háskólanna reynt að hífa upp einkunn sína í sam- tölum við fjölmiðla undanfarna daga. Það er svo sem eðlilegt. En alveg sama hvað menn spinna í fjöl- miðlum þá er erfitt að breiða yfir þá einkunn Ríkisendurskoðunnar að háskólarnir á Islandi standa sam- bærilegum erlendum háskólum nokkuð að baki. Fjárframlög til þeirra eru einfaldlega of lítil. Þetta þurfum að laga. Akademískt ágæti Fjölmiðlar slógu því upp að Há- skóli Islands hafi fengið hæstu ein- kunn í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Það er vissulega rétt að ákveðnu leyti, en ekki öllu. Margir af reynd- ustu og virtustu fræðimönnum landsins starfa við þennan elsta og stærsta háskóla landsins. Háskóli Islands er sannarlega flaggskip há- skólaflórunnar á íslandi og hefur í gegnum tíðina staðið sína plikt vel, - komið þessari þjóð til mennta. Rík- isendurkoðun gaf skólanum hins vegar falleinkunn á ýmsum öðrum sviðum en því sem snýr að akadem- ísku ágæti. Til að mynda eru þar allt of margir nemendur á hvern kenn- ara, aðstaða er léleg og allt of margir hrökklast úr námi. Laun eru líka svo lág að margir kennarar neyðast til að verja hluta af starfsorku sinni fyrir utan skólann til að eiga fyrir salti í grautinn. Ánægja í einkaskólunum Þrátt fyrir að einkareknu skól- arnir, Háskólinn í Reykjavík og Há- skólinn á Bifröst, fái lægri einkunn en HÍ þegar kemur að akademískri stöðu þá eru nemendur við þessa skóla ánægðari með námið sitt og telja þjónustu kennara og annars starfsfólks betri. Fyrir okkur á Bifröst er margt jákvætt í skýrslu Ríkisendurskoðunnar en þar eru einnig ábendingar um margt sem þarf að laga. Til að mynda er hlut- fall kennara með doktorspróf ekki nógu hátt en á móti kemur að rann- sóknarafköst kennara á Bifröst er með hæsta móti, enda eru þar starf- rækt ýmis fræðasetur. Háskólinn á Bifröst er dýrastur og starfsmanna- kostnaður á hvern fullskráðan nemanda hæstur. Það kemur til af þeirri stefnu skólans að kenna í litlum hópum. Á Bifröst eru fæstir nemendur á hvert akademískt stöðugildi. Hver kennari hefur því meiri tíma fyrir hvern nemenda í Bifröst heldur en í öðrum háskólum á Islandi. f-mS ' ' ■ Fræðineru víða Lengi vel varfræðastarf á Islandi svo til allt unnið innan veggja HÍ. Undanfarin ár hefur fræðasamfé- lagið hins vegar sprengt utan af sér veggina og fræðimenn farnir að starfa út um allar trissur. Vöxtur einkaskólanna hefur verið með hreinum ólíkindum og fræðasamfé- lög verið mynduð víða. Til að mynda starfa tugir fræðimanna innan vé- banda Reykjavíkurakademíunnar. Hér má til gamans nefna að Háskóla- setur Vestfjarða stendur nú um helg- ina, ásamt fleirum, fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um þjóð og hnattvæðingu á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Fræðin eru víðar og fjölbreytnin blessunar- lega miklu meiri en áður. Höfundur er stjórnmálafræðingur Klippt & skorið GuðniGíslason, rítstjórí Fjarðarpóstsins í Hafnarfirði, vandar ekki nýkjörnum þingmanni kjördæmísins, Gunnari Svavarssyni, kveöjurnar f pistli stnum í blaði sínu. ,Ekki hef ég oft heyrt um að fólks sé skammað fyrirað vinna heimavinnuna sína. Þetta upplifði ég þegarég hlustaði á Gunnar Svavarsson, á bæjarstjómar- fundi, hneykslast á að Rósa Guðbjartsdóttir skyldi leyfa sér að láta arkitekt skissa upp hugmyndir að endurbótum í Hellisgerði sem hún lagði svo fyrir i afmælis- nefnd bæjarins. Hver gaf Gunnari Svavarssyni rétt til þess að dæma um það hvaða aðferðir eru réttar og hvaða aðferðir eru rangar?" spyr Guðni en honum mun hafa ofboðið hroki þingmanns- ins gagnvart bæjarfulitrúanum sem sýndi þó lit í að vilja veg Hellisgerðis sem mestan. Svava Johansen, kaupmaður hjá NTC, leggur til að reist verði verslunarmið- stöð í miðbænum, enda geti kaupmenn þar ekki keppt við Kringl- una og Smáralind. I nýlegri könnun Capacent kom fram að almenningur lítur ekki á miðbæinn sem verslunarstað. (langan tíma voru fáar versl- anir í miðbænum en þess meira af kaffihúsum og veitingastöðum. Líklegast varð það til þess að fólk flýði miðbæinn, enda lítið þar að finna. Þetta hefur hins vegar verið að breytast mikið að undanförnu og nú eru margar góðar og skemmtilegar verslanir í miðbænum. Korta- þjóðinni finnst þó súrt í broti að þurfa að eiga klink I stöðumæli og það fælir örugglega frá. Krafan hlýtur þv( að vera kortagjaldmælar við bílastæðin eða frítt í þau. Pétur Gunnarsson greinir frá því á bloggsíðu sinni að hætt hafi verið við ráðningu skrifstofustjóra nýrrar skrifstofu barna- og fjölskyldumála (félags- málaráðuneytinu vegna umfangsmikilla verkaskiptinga ráðuneyta. (því Ijósi hefur félagsmálaráðherra ákveðið að falla frá ráðningu og hefur sent I umsækjendum bréf þess I efnis. Alls sóttu 24 um I stöðuna, þar af voru 22 »■ - konur en 2 karlar. Meðal umsækjenda eru þekktir jLj. samfylkingarmenn eins ■ og Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaöur, og Drífa Kristjánsdóttir á Torfastöðum. elin@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.