blaðið - 15.06.2007, Page 18

blaðið - 15.06.2007, Page 18
26 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 blaðið ithrottir@bladid.net MARKA munur þarf aö vera niðurstaðan íslandi í vil á sunnudagskvöldið kemur þegar seinni undanspilsleikur (slands og Serbiu fer fram í Laugardalshöll. Serbar unnu fyrri leikinn með einu marki. Sigurvegarinn fer í Evrópukeppnina. ThierryHenry # er kominn ® með annan fótinn frá Arsenal en væri fáan- legur til að endurskoða afstöðu sína geri Wenger rósir fljótlega á leikmannamarkaðnum. Hefur tilaðmyndalekiðútaðDavid Trezeguet sem laus er mála hjá Juventus hafi áhuga að slást í Arsen- al-hópinn og það hefði mikil áhrif á Henry enda þeir tveir miklir félagar. Varaforseti AC Milan, hinn litríki Adriano Galliani, sem jafnan talar í fyrirsögn- um hefur að líkind- um fengið skömmí hatt sinn frá Berlusconi eiganda því í stað þess að fara mik- inn um væntanleg stórkaup fyrir næsta vetur lýsti Galliani því yfir að alls óvíst væri að Milan keypti nokkum skapaðan mann. Ef af yrði yrði það hins vegar risastjarna... Þó Gareth Southgate, stjóri Middlesbro- ugh, vinni seint hæfileikakeppnir á neinu sviði er Middlesbrough orðið það félag sem hvað mest kveður að í leik- mannakaupum. * Tyrkinn Tuncay Sanli hefur samið við félagið en þar er á ferð bona fide skorari. Þá hafa fjölmiðlar á Spáni og í Hollandi skýrt frá áhuga félagsins á þarlendum leikmönnum og kannski á loks að blása til sóknar á Teesside næsta vetur í stað þess að setja markið við meðalmennsku. Aðdáendur Real Madrid telja nú niður í kveðju- samkvæmi til handa David Beckham sem heldur af landi brott fljótlega eftir helgina og sest að í glysborginni Los Angeles. Kapp- inn hefúr hlotið uppreisn æru með góðum leilgum siðustu vikur og svo mjög að stjómar- mennsjánúeftir að hafa selt hann. Verður mikið húllumhæ, grátur og gnístran tanna þegar flautað verður til leiksloka á sunnudaginn burtséð frá hvort liðið vinnur titilinn eður ei. nrnrn ?annnn oDoao □ □ .□□ □ □ □ □ □ □□ □ □□ □ □ □ □□paQVQaWí □□Bp□aBnnl □□□mmapaa fi Bpgi Opna bandaríska meistaramótið í golfi: Woods og Mickelson ekki til stórræðanna Tíu sérfræðingum Golf.com í Bandaríkjunum þykir lítið til Tiger Woods og Phil Mickelson komaþessa dagana sem merkist best á að f hópi þeirra líklegustu til að sigra mótið að mati fræðinganna er hvorugur þeirra. Tiger Woods þykir einfald- DAVIS LOVE III Hæglátur, vand- virkur og skiptir aldrei skapi. Da- vis hinn þriðji er fyrir löngu búinn að sanna að hann er meðal hinna bestu. Einn risatitill til viðbótar kemur honum kyrfilega á spjöld golfsögunnar. Hefur leikið varlega í vetur en á alltaf möguleika. PADRAIG HARRINGTON írinn þarf á stórtitli að halda enda eitt af stóru nöfnunum sem ekki hafa unnið stórmót. Átti mögu- leika á síðasta ári en guggnaði á lokametrunum. Hefur lært lexíu og spilað glimrandi í vetur. ADAM SCOTT Ástralinn hefur lengi verið mesta lega ekki hafa verið nógu sannfær- andi í vetur auk þess sem hugur hans er væntanlega hjá ófrískri konu sinni sem á að eiga sitt fyrsta barn eftir þrjár vikur. Mickelson er meiddur og þrátt fyrir mannalæti fer hann seint í bækur fyrir að vera harður við efni Ástrala en tími til kominn að hrista það af sér og sanna sig endanlega. Hefur enn ekki lent í niðurskurði og er jafnan ofarlega á blaði en vantar þennan herslu- mun sem kemur nú á Oakmont. JIM FURYK Þrautreyndur og nákvæmur og róleg keyrsla á Oakmont hentar honum vel. Bull- andi baráttuglaður og á fjölmarga aðdáendur þó ekki sé nema út af einni merkilegustu sveiflu sem sést hefur. Nái hann góðri byrjun verður hann með fremstu mönnum. VIJAY SINGH Ekki jafn kappsfullur og áður var en er enn að bæta leik sinn og farið að hungra (stóran titil á ný. Aðeins einu sinni lent neðar en 30. sæti í síðustu tólf mótum sjálfan sig enda engin þörf á. Honum verður fyrirgefið dragi hann sig úr mótinu vegna þess. Ólíklegt er að stutta spilið gangi vel með úlnliðinn allan vafinn og tjónaðan. Þess vegna eru sjö aðrir nefndir til sögunnar sem líklegir kandídatar: og sjö skipti af þeim verið meðal efstu tíu. Með hin stórstirnin ann- ars hugar er tækifærið nú. ZACH JOHNSON Þráðbeinn og nákvæmur og það er galdurinn á velli þar sem brautir eru þröngar eins og nálarauga og sandglompur svo stórar að Skeiðarársandur bliknar. Johnson hefur einnig taugar til eftir sigur sinn á Masters-mótinu fyrr í ár. STEVE STRICKER Þessi 40 ára kylf- ingur er óþekkt stærð en er að spila sitt besta golf á ferilinum. Hreinn og beinn og fantagóður með pútterinn og hefur verið nálægt sigrum á stór- mótum áður. Kvennalandsliðið mætir Frökkum á laugardag: Evrópukeppnin raunhæfur möguleiki íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir á laugardaginn kemur franska landsliðinu í þriðja riðli undankeppni Evrópukeppninnar 2009. Riðillinn er erfiður en það eru íslensku stelpurnar líka og eiga þær ágæta möguleika að komast í keppnina. Slíkt yrði stórkostleg stund fyrir íslenskt landslið ef tækist en karlalandsliðinu hefur einmitt mistek- ist hrapallega að ná sama markmiði. Þær frönsku eru taldar sterkastar í riðlinum þar sem einnig leika Grikkir, Serbar og Slóvenar auk Islendinga en eitt stig eða fleiri gætu aldeilis sett góðan byr í segl stúlknanna í næstu leikjum. Miðaverð er þúsund krónur en ókeypis er fyrir alla yngri en 16 ára á leikinn. Sætaval er frjálst og ólíkt öðru ónefndu landsliði landans eiga stelpurnar skilið að fá allan þann stuðriing sem hægt er. Áfram ísland! Olafur hinn þriðji Ólafur Stefánsson varð þriðji í vali handboltaleikmanns ársins að mati World Handball. Efstur varð Króatinn Ivano Balic í karlaflokki og hin þýska Nadine Krause í kvennaflokki. ’OÍ Skammt stórra... Lewis Hamilton er ekki fyrr bú- inn að kyngja kampavíninu eftir sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 en að næsta keppni er hafin. Keppt verður í Indianapolis í Bandaríkj- unum, mekka kappaksturs þar, en skammur tíminn til undirbún- ings gæti haft einhver áhrif á stöðu mála. Auðveldur drattur Stúlkurnar úr KR fengu tiltölu- lega auðvelda mótherja þegar dregið var í 8 liða úrslit bikar- keppni kvenna í knattspyrnu. Mæta þær sameiginlegu liði Þórs/KA fyrir norðan en þrátt fyrir að norðanstelpur geti sannarlega bitið frá sér ættu Vesturbæjarstúlkurnar ekki að eiga mikið í vandræðum með að landa sigri. Öliu jafnari verður slagur Vals og Breiðabliks. 6 mánaða bann Sigurður F. Gunnarsson körfu- knattleiksmaður með Grindavik hefur verið dæmdur til sex mánaða keppnisbanns eftir að ólögleg efni fundust við eftirlit eftir leik UMFG og Skallagrím fyrr í vetur. (1 i"S ^ ! Slök þjónusta Sökum mikilla anna á golfvöllum höfuðborgarsvæðisins hafa allmargir klúbbar gert samninga við minni klúbba um aðgang félagsmanna sinna þegar svo liggur á. Nokkrir kylfingar úr golfklúbbi Keilis fengu kaldar kveðjur á „vinavelli“ sínum hjá golfklúbbi Vatnsleysustrandar og var gert að bíða meðan félagsmenn gengu fyrir þrátt fyrir að eiga pantaðan rástíma samkvæmt kúnstarinnar reglum. Er þetta ekki í fyrsta sinn. ’ií.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.