blaðið - 15.06.2007, Síða 20

blaðið - 15.06.2007, Síða 20
28 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 blaðið helain helgin@bladid.net Jogvan 1 Smaralind Færeyski söngfuglinn Jógvan fagnar útkomu nýjustu plötu sinnar í Vetrargarðinum í Smára lind á laugardag kl. 15. Hann mun taka lagið | og árita diskinn fyrir gesti og gangandi. I ■■■ I ■ A móti sól Magni Ásgeirsson og félagar hans í hljómsveitinni Á móti sól leika fyrir dansi á skemmtistaðnum Gauki á Stöng í kvöld. UM HELGINA Buíf og Matti Gleðisveitin Buff ásamt Matta sem gjarnan er kenndur við Pap- ana leikur og syngur á Gauki á Stöng laugardagskvöldið 16. júní. Klúbbakvöld á Nasa Plötusnúðurinn Desyn Masiello leikur ásamt landsliði íslenskra plötusnúða á klúbbakvöldi á skemmtistaðnum Nasa laugar- dagskvöldið 16. júní. Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju Rússneski organistinn Daniel Zaretesky leikur tónlist eftir Bach, Böhm og Buxtehude á tónleikum í Hallgrímskirkju laugardaginn 16. júní kl. 12. Styrktartónleikar Aflsins Aflið, systursamtök Stígamóta á Norðurlandi, stendur fyrir styrktar- tónleikum á 1929/Capone í kvöld og hefjast þeir kl. 20. Fram koma meðal annars Helgi og hljóðfæra- leikararnir, Skátar, Bloodgroup, Eyþór Ingi og Unnur Birna. Sumardjass Kvartett Hauks Gröndal kemur fram á þriðju tónleikum sumartón- leikaraðar veitingahússins Jómfrú- arinnar við Lækjargötu, laugar- daginn 16. júní kl. 15. Dagskráin er helguð saxófónleikaranum Lester Young og tónlist hans. Ópera á Hvolsvelli Ópera Skagafjarðar leggur land undir fót og flytur valdar perlur úr óperunni La Traviata í Sögusetr- inu á Hvolsvelli í kvöld kl. 21. Mið- aðverð er kr. 3200. Miðapantanir eru í síma 487 8043. Hreingjörningur Anna Richards- dóttir fremur alheimshreingjörn- ing í Þorgeirs- kirkju í Ljósavatns- skarði í kvöld kl. 21. Henni til halds og trausts verður tónlistarkonan Ragnhildur Gísla- dóttir. Finnskur kórsöngur Karis-kórinn frá Finnlandi heldur tónleika ásamt kvennakvartett- inum Alla Breve og litla karla- kórnum Vástkvartetten í Reyk- holti í Borgarfirði laugardaginn 16. júní kl. 16. Aðgangseyrir er 1000 krónur en frítt fyrir börn yngri en 14 ára. Svona eru menn Síðasta sýning sumarsins á Svona eru menn með þeim KK og Einari Kárasyni í Landnáms- setrinu í Borgarnesi verður laugar- dagskvöldið 16. júní. Sýning I Vjelasmiðjunnni Ný sýning verður opnuð á Tækni- minjasafni Austurlands á Seyð- isfirði, laugardaginn 16. júní kl. 15. Sýningin verður í Vjelasmiðju Jóhanns Hanssonar sem er alda- gömul á þessu ári. Blöðrur, fánar og þjóðbú Það munu án efa margir klæðast þjóðbúningum, blása upp blöðrur og veifa fána á sunnudag þegar þjóðhátíðardagur rennur upp. Efnt verður til hátíðarhalda víða um land en að venju fara stærstu og viðamestu hátíðarhöldin fram í höfuðborginni. Framkvæmd há- tíðarhaldanna er í höndum Hins hússins eins og fyrri ár. Hefðbund- in morgundagskrá verður á Aust- urvelli en síðdegis skrúðgöngur og barna- og fjölskylduskemmtan- ir á sviðum. Skrúðganga verður farin frá Hlemmi niður Laugaveg að Ing- ólfstorgi kl. 13:40 og um líkt leyti verður önnur farin frá Hagatorgi í Hljómskálagarð. Uppákomur á götum og torgum 1 Tjarnargörðunum verða leik- tæki, íþróttasýningar og ýmsar sýningar og götuuppákomur verða víðs vegar um miðbæinn. Þá verð- ur efnt til tónleika og dansleikja um kvöldið þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þannig verða hefðbundnir rokktónleikar á Arnarhóli, harmóníkuball í Ráð- húsinu, dansiball á Ingólfstorgi og diskótek að hætti Páls Óskars í Lækjargötu. Benóný Ægisson hjá Hinu hús- inu segir að dagskráin sé svipuð i sniðum og fyrri ár en þó verði hún fjölbreyttari og viðameiri með hverju ári. „Hún hefur tilhneig- ingu til að vaxa. Það er stemningin. Það vilja allir hafa þetta flottara en í fyrrasegir hann. Hvers kyns götuuppákomur setja . svip sinn á hátíðarhöldin að þessu sinni og segir Benóný að þeim hafi fjölgað á undanförnum árum. „Skapandi sumarhópar Hins húss- ins taka allir þátt. Þeir eru reyndar færri í ár en þeir hafa verið undan- farin ár en þessum götuuppákom- um hefur fjölgað mikið aðallega með tilkomu þeirra “ segir hann. Rigning á það til að setja svip | sinn á þjóðhátíðardaginn í gegnum | tíðina og eitt er víst að veðrið getur | haft áhrif á hátíðarskap margra og I reikna má með að fleiri leggi leið fi sína í bæinn ef vel viðrar. Benóný I segir að lítið þýði að hugsa um veðr- I ið. „17. júní kemur náttúrlega og verð- | ur haldinn hvernig sem veðrið verð- 1 ur. Við höfum svo sem lent I ýmsu | en mér skilst að það líti ágætlega út Imeðveðrið núnasegir hann. Fjallkonan fríð Fjallkonan erjafnómissandi þáttur í þjóðhátídarhöldum og fánar og sykurfraud. Ætíð ríkir mikil leynd yfir því hver tekur að sér hlutverk fjallkonunnar. Kvosin lokuð fyrir umferð Götur I Kvosinni verða meira og minna lokaðar um eftirmið- daginn vegna hátíðarhaldanna og verður leiðum og stoppistöðv- um strætisvagna um miðbæinn breytt lítillega. Strætisvagninn er góður kostur fyrir þá sem ekki komast fótgangandi niður í bæ. Þeir sem koma á bíl mega gera ráð fyrir því að þurfa að leita lengi að bílastæði. „Það verður náttúrlega bara erfitt eins og þegar það eru svona stórar uppákomur. Það sem er kannski sniðugast fyrir fólk að byrja dag- inn á að fara í skrúðgöngurnar og leggja þar og svo er hægt að rölta og sækja bílinn annaðhvort uppi á Hlemmi eða út við Hagatorg,“ segir Benóný. í nágrannasveitarfélögum borg- arinnar verður einnig blásið til hátíðarhalda í tilefni dagsins. I Kópavogi munu brassbönd úr Föstudagsfiðrildi Skapandi sumarhópar Hins húss- ins verða á ferð í miðborg Reykjavík- ur í dag milli kl. 12 og 14 og gleðja gesti og gangandi með ýmsum hætti. Þeir munu síðan setja svip sinn á bæjarlífið í allt sumar. Þeir sem eiga leið um bæinn á morgun geta kynnt sér dagskrána hér að neðan: Lækjartorg: Tepoki spilar. Fjöllistahópurinn Götulif kynnir hvítt hyski. Iðnó - utandyra: Filmuklukka. Ljósmyndasaga við Iðnó. OB leíkhópur flytur verkið Heldri borgarar. Austurvöllur/Túnið við MR: Danshópurinn Samyrkjar skella sér í lautarferð og bjóða upp í dans. Austurvöllur: Danshópurinn Hnoð dansar með Djáknanum á Myrká. Hönnunarhópurinn Títa prjónar til styrktar Neistanum (Styrktarfélag hjartveikra barna). Ingólfstorg: Rafhljómsveitin Rafhans 021 spilar rafmagnaða tóna. Nakti apinn, Bankastræti 14: Xavier og Mcdaniel sýna afrakstur samstarfs þeirra um samband tón- listar og videolistar. Kaffi Hljómalind: Slefberi sýnir Ijósmyndir og heldur tónleika kl. 12 og kl. 16. Reiðhjólagengið Ræbbblarnir verða með hádegismat, hjól til sýnis og kvikmyndasýningu. Miðbærinn: Vinir Láru breiða út boðskap Þór- bergs Þórðarsonar í Miðbænum. Götuleikhús Hins hússins gleður gesti og gangandi á förnum vegi. Götuleikhús i Reykjavik , Skapandi hópar Hins húss- f ins setja svip sinn á miðborg I ina i sumar eins og fyrri ár. - w r

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.