blaðið - 15.06.2007, Page 25

blaðið - 15.06.2007, Page 25
blaðiö FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 33 viðtal FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA notar hann ræðuhæfileikana einvörð- ungu við sölu auglýsinga fyrir veftíma- ritið og við gerð viðskiptasamninga þar að lútandi. „Ræðulistin hefur verið lögð á hill- una. Svo er ég eiginlega ekkert fynd- inn lengur! Nei, ég segi nú bara svona - ég er mjög fyndinn maður. Til þess að hafa góðan móral á skrifstofunni á ég það til að brydda upp á hinum ýmsu skemmtilegheitum og koma fólki í góðan gír. Þegar menn eru eitt- hvað að slaka þá bara klæði ég mig úr fötunum og peppa það upp með nekt minni,“ segir Björn og skellir upp úr en snýr sér þó aftur að alvörunni. „Að öllu gríni slepptu þá er þetta mjög skemmtilegt starf og auðvitað frábært að geta verið svolítið sinn eigin herra og ráða ferðinni sjálfur. Svo er nátt- úrulega afar ánægður með viðtökurn- ar. Við erum með um tuttugu þúsund lesendur á viku og ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með það.“ Léttmeti en ekki heilalaust Björn hefur háleit markmið varð- andi Panama.is og kveðst vilja styrkja vefsiðuna frá degi til dags. „Ef maður gerir hlutina vel og er með góðar hug- myndir þá getur þetta gengið. Það er auðvitað fullt af fjölmiðlum hér á landi en það eru þeir hæfustu sem lifa. Ég vil meina að við séum með fullt af skemmtilegum og frumlegum hug- myndum í gangi ogþað er auðvitað að- algrundvöllurinn að þessu öllu,“ segir Björn og bætir því við að hann vilji að sem flestir fái eitthvað fyrir sinn snúð á vefnum. „Þetta á að vera ein- föld afþreying sem fólk getur gluggað í við vinnuna, f skólanum eða á kvöld- in. Þarna eru ekki þungar pólitískar greinar heldur meira léttmeti án þess að þetta sé eitthvað heilalaust.“ Að lokum segist Björn ætla að eyða síðustu ævidögunum á Panamaþegar fram í sækir. „Það var góður maður sem fræddi mig um landið Panama um daginn. Landið er víst á topp fimm lista yfir vinsælustu staði fyrir fólk til að enda ævina á í ellinni. Það er vel við hæfi að enda ævina þar.“ halldora@bladid. net Elektrónísku álfarnir í Múm Hljómsveitin Múm fær afbragðs- dóma á heimasíðunni drowned- insound.com en gagnrýnandinn, Elsa Grassy, gefur bandinu 9 af 10 mögulegum fyrir tónleika sem sveitin hélt nýverið í París. Segir Grassy upplifunina hafa verið töfrum líkasta og talar um að elektrónísku álfarnir, eins og hún kýs að kalla hljómsveitarmeðlimi, hafi lagt álög á tónleikagesti sem yfirgáfu svæðið méð sælusvip á andliti. Að sögn Örvars Smárasonar eins forsprakka Múm, gengu tón- leikarnir vonum framar. „Við spil- uðum síðasta laugardag í ótrúlega fallegu tónleikahúsi sem er eins og hálfgert sirkustjald. Tónleik- arnir voru í garði sem heitir Park Vilette í París en þetta er á svæði þar sem áður voru risastór slát- urhús sem voru rifin og svæðið nýtt í þennan garð. Þarna er þessi tónleikastaður, ásamt söfnum og rennibrautum sem gerði þetta mjög skemmtilegt. Það var frábær stemning, alveg æðisleg. Enda uppselt og því fullt af fólki sem allt kom til þess að hlusta og njóta." Örvar segir hljómsveitina aðal- lega hafa verið að taka lög af nýrri plötu sem væntanleg er í verslanir í september. „Það getur verið svolítið erfitt að spila lög sem fólk hefur ekki heyrt áður og þekkir ekki. Þess vegna vorum við mjög þakklát fyrir viðtökurnar í París þar sem fólk var svona þolinmótt og rólegt. Svo er næst á döfinni að túra meira. Við vorum í Barcel- ona áður en við fórum til Parísar og síðan verðum við aftur á Spáni í júlí og förum síðan til Aþenu og Moskvu. Eftir það tökum við frí fram í október og túrum svo þétt eftir að platan er komin út en þá byrjum við á því að fara til Banda- ríkjanna. Þannig að það eru spenn- andi tímar framundan.“ hilda@bladid.net Aniston syngur í söngleik um fanga Leikkonan Jennifer Aniston hyggst framleiða og leika í söngleik byggðum á sögu átta kvenna sem afplánuðu fangels- isdóm f Texas á fjórða áratug síðustu aldar. Söngleikurinn ber heitið Goree Girls og fjallar um líf kvennanna, sem meðal annars stofnuðu fyrstu kvenna- hljómveitina og hösluðu sér völl víðs vegar í Bandaríkj- unum vegna tónlist- arinnar. Aniston og meðframleið- andi hennar, Kristin Hahn, leita nú að leikstjóra fyrir handritið og má því vænta þess að Ani- ston muni á næstu misserum hefja raustina í fangabún- ingnum. Starfandi Heílbrigðisritarar Enn er hægt að bæta við nemendum í nám fyrir starfandi heilbrigðisritara. Um er að ræða síðdegisnám sem stendur yfir í tvær annir, 20 einingar. Námið er í samvinnu við Fræðslusetrið starfsmennt. Þeir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði eiga kost á að sækja um þetta nám. "einstaklingar sem orðnir eru 22 ára og hafa að baki að minnsta kosti 4 ára starfsreynslu sem hjúkrunar- og móttöku- ritari eiga þess kost að fá metið nám og starfsreynslu sem hluta af námi á hjúkrunar- og móttökuritarabraut. Viðkomandi þarf að hafa lokið 120 tíma sérhæfðri fræðslu sem nýtist í starfi eða starfstengdum námskeiðum stéttarfélags og/ eða stofnunar." Umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans á umsóknareyðublöð- um sem þar fást. Einnig er hægt að prenta blaðið út af heimasíðuskólans, www.fa.is eða heimasíðu Fræðslusetursins starfsmennt, www.smennt.is . Umsóknum skulu fylgja starfs- og námsskeiðsvottorð. Nánari upplýsingar veitir Kristrún Sigurðardóttir kennslustjóri, netfang run@fa.is eða skólayfirvöld. FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA Vilt þú verða lyfjatæknir? Enn er hægt að bæta við nemendum á lyfjatæknabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla/Heilbrigðisskólans. Fjölbrautaskólinn við Ármúla/Heilbrigðisskólinn er kjarnaskóli í heilbrigðisgreinum. Nám á lyfjatæknabraut er 162 einingar sem skiptist í eins og hálfs árs almennt nám og þriggja ára sérnám, þar af 14 vikna starfsnám í apóteki. Sérgreinar lyfjatæknabrautar er einungis hægt að taka í Heilbrigðisskólanum. Nám í lyfjatækni veitir lögverndað starfsheiti skv. reglugerð heilbrigðisráðuneytisins. Starfsvettvangur lyfjatækna er apótek, lyfjaheildsölur, lyfjaframleiðslufyrirtæki og aðrar stofnanir lyfjamála. Nám í sérgreinum lyfjatækni er lánshæft hjá LÍN. Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi. Þeir sem lokið hafa stúdentsprófi geta hafið nám í sérgreinum brautarinnar. Auðvelt er að bæta við lyfjatæknanámið og Ijúka stúdentsprófi af starfsmenntabraut. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans á umsóknareyðublöðum sem þar fæst. Einnig er hægt að prenta eyðublaðið út af heimasíðu skólans, www.fa.is. Umsókn skal fylgja prófskírteini. Nánari upplýsingar veitir Bryndís Þóra Þórsdóttir kennslustjóri (binna@fa.is) eða skólayfirvöld. Skólameistari

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.