blaðið - 15.06.2007, Side 26

blaðið - 15.06.2007, Side 26
blaöiö Fínlegir úrvals leðurskór í staerðum 36-42 á kr. 6.950,- Flottir leðurskór í stœrðum 36-42 á kr. 6.950,- Smart og sœtir leðurskór í stœrðum 36-41 á kr. 6.950,- Misty, Laugavegi 178 Sími 551 2070 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Lokað á laugardögum í sumar SMÁAUGLÝSINGAR blaðiða SMAAUQLYS1NGAR@BLADID.NET Then Your Nörmal Life í sumar: -Mynd/6u6mindur Jan Mayeri qefur út So Much . ■ Týndust í sköpunarferli Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@bladid.net „Stemningin er full eftirvæntingar vegna þess að við ætlum að gefa út plötu í sumar,“ segir Valgeir Gests- son, söngvari og annar gítarleikari hljómsveitarinnar Jan Mayen. „Við stefnum á að hún komi út strax í byrjun ágúst. Vinnuheiti plötunn- ar var Lick My Baby Jesus, en við enduðum með að nefna hana So Much Better Then Your Normal Life.“ Jan Mayen hefur látið litið fyrir sér fara undanfarið, en sveitin gaf út breiðskífuna Home of the Free Indeed árið 2004. Skífan hlaut góð- ar viðtökur gagnrýnenda og Lög eins og Nick Cave og On a Mission klifu hátt á vinsældarlistum út- varpsstöðva. Sveitin hyggst senda lagið Joyride í spilun í næstu viku. Vinna með Eberg „Við erum búnir að vera heillengi að taka upp,“ segir Valgeir. „Við byrjuðum sjálfir fyrir ári síðan og ætluðum að taka upp plötu. Svo hættum við við að gera þá plötu og fórum að gera nýja. Við fengum með okkur í lið mann sem kallar sig Eberg til þess að hjálpa okkur að taka upp.“ Valgeir segir tvísýnt hvort platan sem byrjað var á í upp- hafi muni nokkurn tíma heyrast. „Við nýttum smá af henni, en hent- um restinni sem verður gefin út á Anthology-plötunni." Skífan sem Jan Mayen byrjaði á en henti er að sögn Valgeirs ástæð- an fyrir því að þfjú ár líða frá því sveitin gaf út þá síðustu. „Við týnd- umst í einhverju sköpunarferli. Platan átti að fjalla um eitthvað endalaus mannleg vandræði en við hættum við og ákváðum að fjalla um Reykjavík samtímans í aðgengi- legri popptónlist, sem er okkar að- alsmerki Fjalla um ranghugmyndir fólks Valgeir segir nýju skífuna hanga saman á hugtakinu um daglegt líf og venjulegar ranghugmyndir fólks í Reykjavík, hvaða ranghugmyndir þetta eru vill Valgeir ekki fara nán- ar út í. „Fólk heyrir það bara þeg- ar það heyrir plötuna, en það eru messíasa-complexar og grillur um ódauðleika. Þetta er ekki ádeila, heldur frásögn. Heimild um lifið á íslandi, mjög samtímaleg plata.“ Talið berst að íslenskri tónlist er- lendis, en sveitir á borð við Reykja- vík! og Trabant hafa látið töluvert fara fyrir sér á erlendri grund. Val- geir segir Jan Mayen ekki vera með hugann við að spila erlendis. „Það er ekki forgangsatriði á meðan við erum að klára plötuna," segir hann. „Kannski nýtum við okkur einhver tilboð sem við fáum, en við erum ekki að stíla plötuna á Bretlands- markað. Hún er stíluð á íslenskan markað." Hafa kynnst gestrisni norðurlands Jan Mayen hefur ekki troðið upp á tónleikum í háa herrans tíð og Valgeir man hreinlega ekki hvenær sveitin steig síðast á svið. Tónleikar eru ekki fyrirhugaðir hjá sveitinni fyrr en í sumar. „Við ætlum að bíða fram i júlí með að taka törn, en taka þá góða törn,“ segir Valgeir. „Það er heilmikið vit í því að taka hringferð. Allar bestu rokksögurn- ar gerast on the road.“ Landsbyggðin er meðlimum Jan Mayen hugleikin og sveitin hyggst ekki skilja hana út undan í tónleika- haldi framtíðarinnar. „Það er nóg af stöðum sem við eigum eftir að fara á,“ segir Valgeir. Akureyri hef- ur verið vinsæll aðkomustaður ís- lenskra hljómsveita og Valgeir seg- ir alltaf hafa verið gaman að spila þar. „Þeir hafa alltaf boðið í góða veislu, við höfum fundið fyrir gest- risni Norðurlands." Svanasöngur Mínuss? Háværu strákarnir í Mínus er mættir með nýja afurð: The Great Northern Whalekill (TGNW). Skífan er, eins meðlimir Mínuss hafa sagt, hörku rokkskífa. Stælarnir og klisjurnar frá níunda áratugnum blandast skemmtilega við stílinn sem Mínus kynnti fullmótaðan á snilldarverkinu Halldóri Laxness og úr verður þéttleiki þykkasta málms. Samanburðurinn við síðustu breiðskífu Mínuss, Halldór Laxness, er óumflýjanlegur, þar sem sú er ein magnaðasta skífa íslenskrar rokksögu - og þótt víðar væri leitað. TGNW er því miður ekki eins spenn- andi, ekki eins hættuleg, ekki eins tilraunakennd og ekki eins góð og Halldór Laxness. Ég hef samt á tilfinningunni að TGNW sé allt það sem hún á að vera. Hljómur skífunnar er framúr- skarandi og hún inniheldur mörg frábær lög. Cat’s Eyes er pottþétt Mínus The Great Northern... Eftlr Atla Fannar Bjarkason atli@bladid.net lag til að byrja plötu, virkilega grúví. Throwaway Angel er skemmtilega frábrugðið öðrum lögum plötunnar og Not Afraid er frábært, ekta Mínus-slagari. Þá er vert að nefna að trommuleikur Bjössa er magn- aður. Hann sannar enn á ný að enginn á landinu stendur honum framar í listinni að lemja trommur. Á TGNW hefur Mínus kosið að gera skífu sem er hvorki meira né minna en rokk og ról. Þó skífan sé vissulega í ætt við þá síðustu er miklu meiri keyrsla, þyngri gítarriff og meiri málmur hér á ferð. Það hefur bæði kosti og galla. TGNW á það til að vera einhæf, sönglín- urnar renna stundum saman og einstök lög virka veikburða ein og sér þó þau gangi upp sem hluti af heildinni. The Great Northern Whalekill er góð skífa, en samt vonbrigði. Væntingarnar til Mínus er miklar og skifan stendur ekki undir þeim þrátt fyrir góða spretti. Neistinn sem einkenndi Halldór Laxness er horfinn og ég ætla spá því að TGNW endi sem svanasöngur einnar bestu rokksveitar sem ís- land hefur átt. THROWAWAY ANGEL Æla til Englands Keflvíkingarnir í hljómsveitinni Ælu halda til Englands í dag í stutta tónleikaferð. Sveitin kemur fram á fimm tónleikum dagana 16. til 23. júní og spilar meðal ann- ars á 17. júní-skemmtun ásamt hljómsveitunum Trabant og hinni bresku Tim Ten Yen. „Tilkoma þessarar ferðar er vegna vel heppnaðrar tón- leikaferðar til Englands í mars síðastliðnum sem var styrkt af Reykjavík Loftbrú. f ferðinni í mars kynntist hljómsveitin mikið af fólki í tónlistargeiranum og fór í viðtöl m.a. við South London Press og hjá fulltrúa Reykjavík Grapevine í London,” segir í til- kynningu frá sveitinni.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.