blaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 1
Viðurkennir átröskun Fyrsta ameríska Idol-stjarnan, Kelly Clarkson, hefur viðurkennt J að hafa barist við lotugræðgi K eftir að hafa verið hafnað um hlutverk í söngleik sem 'Mm skólinn hennar setti upp. j|s Hálendisgæsla Ingólfur Haraldsson hjá Lands- björgu og hundrað aðrir björgun arsveitarmenn munu aðstoða menn á hálendinu 29. júní til 12. ágúst og eru þeir með fimmbila. Tveir snillingar Einar Kárason og Kristján Krist- jánsson, KK, eru saman meö vinsælan útvarpsþátt á Rás 1 á laugardögum þar sem þeir blanda saman tónlist og skemmtilegu spjalli. 114. tölublað 3. árgangur föstudagur 22. júní 2007 FRJALST, OHAÐ & OKi Æðstu embættismenn ríkisins eiga afturvirka kröfu til eftirlaunagreiðslna: Eiga rétt til eftirlauna fjögur ár aftur í tímann ■ Eiga eftirlaunarétt þótt þeir þiggi ekki lífeyri ■ Níu fyrrum ráðherrar undir 65 ára eiga réttinn Eftir Þórð Snæ Júliusson thordur@bladid.net Æðstu embættismenn íslenska ríkisins geta gert kröfu til að fá eftirlaun sín greidd allt að fjögur ár aftur í tímann, hafi þeir ekki nýtt rétt sinn til eft- irlaunanna frá þeim tíma sem þeir gátu gert slíkt. Það þýðir að ráðherra sem hefur mátt þiggja eftir- launin frá 6t árs aldri getur byrjað að þiggja þau 65 ára en gert kröfu á að fá undangengin fjögur ár greidd að auki, samkvæmt upplýsingum frá Lífeyr- issjóði starfsmanna ríkisins. Það skiptir því litlu máli hvort þeir fyrrum ráðherrar, alþingismenn og hæstaréttardómarar sem fengu stóraukin eftirlaunaréttindi með um- EFTIRLAUNALÖGIN ■ Voru lögð fram af öllum stjórnmálaflokkum sem sitja á Alþingi í desember 2003. ■ Með setningu þeirra fengu æðstu embættismenn ríkisins lífeyrisréttindi sem eiga sér enga hliöstæöu í íslensku samfélagi. ■ Eftirlaunagreiðslur þeirra eru hærri, þeir geta hafið töku eft- irlauna fyrr og þegið þau þrátt fyrir að sinna öðrum störfum. deildum lögum í desember 2003 þiggja eftirlaunin í dag. Þeir geta beðið með að þiggja eftirlaunin í nokkur ár og þá gert þessa afturvirku endur- greiðslukröfu samkvæmt þriðju grein laga um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda frá ár- inu 1905 og almennum reglum. Níu fyrrum ráðherrar undir 65 ára aldri eiga rétt á töku eftirlauna í dag. Miðað við fjögurra ára endurgreiðslukröfu geta þeir að lágmarki fengið eftirlaun sín greidd frá 61 árs aldri. Af þessum níu fyrrum ráðherrum undir 65 ára aldri eru sex í opinberum störfum, einn starfar á almennum vinnumarkaði og tveir hurfu nýlega frá stjórnmála- störfum og þiggja biðlaun vegna þeirra. í Blaðinu á morgun, laugardag, verður ítarleg út- tekt á eftirlaunalögunum, hver réttur fyrrum ráð- herranna er til töku eftirlaunanna og hverjir það eru sem eiga rétt á að þiggja þau. Grípa til lokanar á göngudeild SÁÁ Göngudeild SÁÁ í Reykjavík og meö- ferðarheimilunum aö Vík og staðarfelli í Dölum verður lokað í allt að sex vikur í sumar vegna fjárskorts. Eftirmeðferð skjólstæðinga gæti seinkað af þessum sökum. , FRÉTTIR » 2 Keilisnes virðist eini kosturinn Einkaréttarsamningur Arctuss við sveitarfélagið Ölfus, um byggingu ál- tæknigarðs í Þorlákshöfn, virðist útiloka að Alcan geti byggt þar upp. Yfirmaður álsviðs Alcan segir æskilegt að Alcan reki álver á tveimur stöðum á Islandi. FRÉTTIR » 4 j MYND/FRIKKI Arsins lengsti dagur liðinn Lengsti dagur ársins var í gær þegar sól reis klukkan 2.54 og settist ekki fyrr en fjórar mínútur yfir miðnætti. Börn úr Náttúruleik- skólanum Hvarfi héldu upp á sumarsólstööuhátíðina þar sem mikið var um gleði og gaman. Krakkarnir tóku lagið, voru málaðir sem alls kyns verur í framan og fengu heimsókn frá persónum úr Dýrunum í Hálsaskógi. Hoppukastali var settur upp á þessum lengsta degi ársins þar sem æskan skemmti sér konunglega. Litað hár og bartar bannaðir Undirbúningur Ólympíuleikanna í Peking á næsta ári tekur á sig ýmsar myndir og nú hafa kínverskir lögregluþjónar fengið nýjar reglur í hendurnar með boðum og bönnum hvað varðar útlit og framkomu. Lög- regluþjónum er nú bannað að vera meö undarlega litaö hár, naglalakk, skegg, barta og að mæta með skart- gripi í vinnuna. Öryggismálaráðherra landsins segir reglurnar ætlaðar „til að bæta ímynd þjóna fólksins". Karlkyns lög- regluþjónum er nú bannað að vera krúnurakaðir, með sítt eða krullað hár og konum er bannað að vera með síðara en axlarsítt hár. Yfirvöld [ Peking bönnuðu fyrr á árinu kven- kyns leigubílstjórum að lita hár sitt rautt eða gult, auk þess að skarta stórum eyrnalokkum. NEYTENDAVAKTIN Verð á fatahreinsun Efnalaug Krónur Efnalaugin í Grafarvogi 1540 Drífa, ef nalaug og þvottahús 1600 Kjóll og hvitt, Kringiunni 1590-1800 Fatahreinsun Kópavogs 1650-1895 Efnalaugin Björg, Mjódd 1790-2595 Efnalaugin Glitra (Rauðarárstig) 1990 Verð á fatahreinsunum á kápu/frakka Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA m USD SALA 62,60 % 0,47 ▲ ®Sí GBP 124,74 0,42 ▲ ■ ■n ■ ■■ DKK 11,27 0,26 ▲ • JPY 0,51 0,34 A HB EUR 83,91 0,24 ▲ GENGISVÍSITALA 114,07 0,35 A ÚRVALSVÍSITALA 8.191,45 0,10 ▲ VEÐRIÐ í DAG VEÐUR » 2 SOFADAGAR! Allir sófar á afslætti cMarcð Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15 OÖ Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504 Egílsstaðir: Miðvangur 1. s: 471 2954 Reykjavík: Mörkin 4

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.