blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 1
117. tölublað 3. nrgangur miðvikudagur 27. júní 2007 Magni í Simpson Ailt hvítt Sigaunatonlist Magni Asgeirsson talar fyrir Tré Cool, trommuleikara hljómsveitarinnar Green Day, í Simpson-kvik- j myndinni sem verður 1 frumsýnd í surnar og hann er kátur með það. S Jónas Aðalsteinsson malara- meistari segir að nú eigi allt að vera hvítt, utanhúss^^ sem innan. „Oft eru húsin í sama lit að innan og utan." . . /-'Æ' I Narodna Musika fra Bulgariu heldur tónleika á Café Cuitura í Alþjóðahús- inu á fimmtudags- kvöldiðásamt S Hauki Gröndal og H fleirum. FOLK»38 ORÐLAUS»34 Aukavélar til Kanarí um jólin Margar ferðir til Kanaríeyja um jólin eru þegar uppseldar og hefur aukavélum verið bætt við vegna mikillar eftirspurnar. Laufey Jóhannsdóttir, sölustjóri hjá Úrvali-Útsýn, Plúsferðum og Sum- arferðum, segir eftirspurnina 20 til 30 prósentum meiri en í fyrra. „Þetta eru stórir fjölskylduhópar, allt upp í 15 manns,“ *■% segirhún. : Mm Þriðjungur fær mænudeyfingu Á íslandi fá 30 prósent fæðandi kvenna mænurótardeyfingu sem er árangursríkasta verkjameðferðin við barnsfæðingu og hefur sá fjöldi verið óbreyttur í 10 ár. 1 Dan- mörku fá 20 prósent kvenna slíka deyfingu en sú tala var 4 prósent árið 1999. Þá var talið að svokölluð eðlileg fæðing væri hin ákjósanleg- asta fæðing. Nú eru breytt viðhorf í Danaveldi. O Þúsundir flýja heimili sín Þrír hafa látist og þúsundir neyðst til að flýja heimili sín eftir úrhell- isrigningar og flóð í Englandi og Wales síðustu daga. Ástandið er gjörólíkt í suðurhluta álfunnar þar sem á fimmta tug manna hefur lát- ist í hitabylgju. Hitamet hafa fallið í fjölda Evrópulanda auk þess sem kröftugir, þurrir vindar hafa blásið í kjarrelda á Suður-Italíu, «■ sem erfitt er að slökkva. . I V Glæpamenn í felur til Islands ■ Þurfa að dyljast yfirvöldum í eigin heimalandi ■ Eru jafnvel notaðir til að undirbúa glæpastarfsemi hér Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Grunur leikur á að erlendir glæpa- hringir sendi fólk hingað til lands sem fara þarf í felur vegna afbrota í eigin heimalandi. Janfvel leikur grunur á að þeir sendi hingað svo- kallaða sofendur, sem kallast á ensku sleepers. Það eru útsendarar sem hafa það hlutverk að blandast þjóðfélaginu með það að markmiði að kanna og undirbúa jarðveginn fyrir væntanlega starfsemi. „Það virðist kominn grunnur að skipulagðri glæpastarfsemi hér á GREININGARDEILD RLS ► Greiningardeild ríkislög- reglustjóra var stofnuð til að meta hættuna á hryðju- verkum og skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi. ► Deildin gefur reglulega út ógnarmat vegna þessara afbrota. landi, þannig að það er ekki úti- lokað að notaðir séu sofendur,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, yfir- maður greiningardeildar ríkislög- reglustjóra. „Við höfum hins vegar heyrt meira af því að hingað sé sent fólk sem þarf að hverfa tímabundið - sem komast þarf undan yfirvöldum í sínu eigin heimalandi. Það eru þá einstaklingar sem hafa framið alvar- lega glæpi í eigin landi.“ Sigríður segir sterkar vísbend- ingar um að kominn sé vísir að skipulagðri glæpastarfsemi á ís- landi. Skýrslur og opinber gögn bendi til þess og eins handtökur í tengslum við fíkniefnainnflutning. „Glæpastarfsemin er alþjóðleg og teygir anga sína til íslands." SKIPULÖGÐ GLÆPASTARFSEMI»4 Formúlukappi við Smáralind „Viltu núna gefa mér eiginhandaráritun?" Hópur barna hópaðist að Formúluökumanninum Nico Rosberg sem sýndi listir sínar á bílastæði Smáralindar í gær. Áhorfendapallar fyrir sex hundruð manns höfðu verið settir upp fyrir sýninguna, en Rosberg sinnti einnig börnunum og gaf eiginhandaráritanir. Bíllinn sem Rosberg ók er 2007 útgáfa Williams sem notaður er í tilrauna- akstri liðsins fyrir mót. Höfum mikið úrval blöndunartækja TCÍIGI Smiðjuvegi76 Kópavogi Sími 4141000 tengi.is Baldursnesi6 Akureyri Sfmi 4141050 'SSí 0 Lausaganga katta bönnuð Fasteignafélag í sænska bænum Torsby hefur hótað eigendum katta sem ganga lausir utan- dyra brottrekstri úr íbúðum fé- lagsins. „Vilji leigjendur okkar hafa kött verða þeir að hafa hann innandyra. Geti þeir ekki vanið ketti sína á að gera þarfir sínar í kassa, verða þeir að fara með köttinn út í bandi, líkt og um hund væri að ræða,“ segir framkvæmdastjóri félagsins. Leigjendur segjast margir ætla að hunsa bannið og segja fast- eignafélagið ekki hafa neinn rétt til að krefjast þess að kett- irnir séu lokaðir inni. aí NEYTENDAVAKTIN Verð á hrismjólk Fyrirtæki Krónur Nettó 75 Fjarðarkaup 80 Spar Bæjarlind 82 Þín verslun Seljabraut 85 11-11 99 10-11 99 Verð á hrísmjólk m/kanilsósu í 170 g pakkningu Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA ES USD SALA 62,85 % -0,24 GBP 125,67 -0,15 ▼ m mm DKK 11,38 -0,22 ▼ • JPY 0,51 0,10 ▲ m EUR 84,67 -0,21 ▼ GENGISVÍSITALA 114,93 -0,22 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.280,00 0,01 ▲ VEÐRIÐ í DAG r L bilolond.is 1 Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.