blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 2
HEiMILI HONNUN
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007
Gler-rennibrautir
Hawa Junior 80 eru glæsilegar
rennibrautir fyrir 8-10-12 mm
hert gler eöa timburhurðir.
Eigum einnig rennibrautir frá
i rl ^ =i fyrirskápaog
tréhurðir.
Útvegum hert gler eftir máli..
v# mnu%ihkii
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur lh.
Barkarvogsmegin. -104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
r
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld
(element), hitastillar, hitastýringar,
rafhitarar til húshitunar og flest
annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu
sem við kemur rafhitun. Við bjóðum
einungis úrvalstæki sem hafa sannað
sig með áranlangri reynslu.
Rafhitun
Kaplahrauni 7a • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • www.rafhitun.is
V____________________________________________________________J
Rafhitarar fyrir
heita potta
Flott hönnun
- snjallar útfærslur
Danir eru miklir listamenn þegar
kemur að hönnun á nytjahlutum.
Hér eru nokkur dæmi um fallega
hönnun, sumt gamalt og klassískt,
annað nýtt. Þessir hlutir eiga það
allir sameiginlegt að þeir hafa náð
miklum vinsældum víða um heim.
Espresso-kaffikanna
Bodums hefur í 50 ár framleitt
kaffikönnur, hitakönnur og ým-
islegt fallegt fyrir eldhúsið. Nú
hefur fyrirtækið sent frá sér nýja
espresso-kaffikönnu sem er bæði
falleg í útliti og notendavæn. Fram-
leiðendurnir segja að það þurfi ríkt
hugmyndaflug til að búa til kaffi-
könnu sem sameinar bæði frábær
gæði og frábært kaffi og þeim hafi
tekist það. Könnuna er hægt að fá í
nokkrum litum.
i
r *-r
Öðruvísi herðatré
Orgo-herðatrén eru úr plasti en
þau eru bæði vel hönnuð og til í fal-
legum litum. Hönnuður er Karim
Rashid. Frá Normann Copenhagen.
Umhverfisvænir uppþvottaburstar
Þessir uppþvottaburstar frá Menu
spara uppþvottalög og eru umhverf-
isvænir auk þess sem þeir eru mjög
flottir á vaskborðinu. Vatn er sett í
gúmmískálina undir burstanum og
örfáum dropum af uppþvottalegi
bætt út í. Með því að þrýsta burst-
anum ofan í skálina framleiðir hann
froðu í uppþvottinn. Handfangið
á burstanum er úr gúmmíi, það er
mjúkt og stamt þannig að gott er að
halda utan um það jafnvel þótt hend-
urnar séu blautar. Hægt er að kaupa
bursta þegar skipta þarf út nýjum
fyrir gamlan.
' /
j\ ■ *7:' '
Loftljós gert úr 69 bitum
Þetta glæsilega og fallega hann-
aða loftljós er gert úr 69 bitum
en ekki þarf neitt lím til að setja
þá saman. Hönnuðurinn, Simon
Karkov, var í langan tíma að
finna réttu tökin til að fá þessa
útkomu en efnið þolir vel hita og
hnjask og einfalt er að setja ljósið
saman. Þessi ljós eru seld í yfir 46
löndum og hafa náð miklum vin-
sældum, enda hefur ljósið unnið til
hönnunarverðlauna.
Vinsæl í 30 ár
Stelton-hitakannan sem hönnuð
er af Erik Magnussen er fyrir löngu
orðin klassík en nú eru 30 ár frá því
hún kom fyrst á markað. Kannan
var mjög í tísku í kringum 1980 og
er aftur meðal vinsælustu hitak-
anna. Nú er svarti og hvíti liturinn
vinsælastur og hnappurinn á hlið-
inni fæst nú í nýjum litum, gulum,
appelsínugulum og ljósbláum.
Stelton-hitakannan hefur tvívegis
verið verðlaunuð, hún fékk Dansk
Designpris árið 1977 þegar hún kom
á markað og aftur nú í ár. Friðrik
krónprins afhenti verðlaunin fyrr á
þessu ári.
Lítið egg
Eggið, hinn klassíska hönnun
Arne Jacobsen, fæst nú í fallegri
mini-útgáfu, sem lítur alveg eins
út og hinn upprunalegi stóll. Hæð
16.5 cm, breidd 14.0 cm og dýpt
13.5 cm. Stóllinn er handgerður
og útbúinn á sama hátt og hinn
upprunalegi.
Lítill maur
Maurinn, hinn frægi stóll Arne
Jakobsen, er einnig fáanlegur í mini-
útgáfu. Stólinn er 13 cm hár.
Nýtt og flott
Flott útfærsla á skálum sem hægt
er að setja undir konfekt, ólífur,
ýmis mauk, sósur, snakk eða til að
geyma kryddjurtir. Gert úr tekki og
postulíni og framleitt hjá Skagerak.