blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 4
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum I skúffum.Einning sjálflímandi filt
tilað klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og
silfur-plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM I PÓSTKRÖFU.
SJALFLIMANDI HNIFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
[agnaða moppuskaftið
Dagar gömlu skimngarfötunnar eru taldir
' •
i * Skúringarfatan úr sögunni
• Alltaf tiJbúið til notkunnar
‘ • Gólfin þorna á augabragði
• Fljótlegt og þægilegt
Sölustaðir:
Húsasmiðjan - Byko
Pottar og prik Akureyri - Rými
Áfangar Keflavík - Eyjatöivur Vestmannaeyjum
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Fjarðarkaup - Litabúðin Ólafsvík
Parket og gólf - SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki
Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupstað. Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.
.
Fyrir vinnustaði eða heimili • Stílhneint og snyrtilegt
Lokan gluggum án þess að tapa náttúnulegri birtu
Ýmis mynstun í boði
18 HEIftrtlLI HÖNNUN miðvikudagur 27. júní 2007 blaöið
Væntanlegar vörur
Tæknin mun
auðvelda lífið
Eins og klisjan segir þá líður
tíminn hratt á gervihnattaöld
og svo mikið er víst að tækninni
fleygir fram á ljóshraða. Nú til dags
er það orðið þannig að um leið
og vörur koma á markaðinn eru
þær orðnar úreltar, svo miklar eru
framfarirnar. Á hverjum degi koma
óteljandi nýjar vörur á markaðinn
og oft er erfitt að hafa undan við að
fylgjast með. Til þess að auðvelda
fólki aðeins lífið er rétt að líta
aðeins á hvað framtíðin mun færa
okkur.
Matvæli skönnuð
Örbylgjuofnar hafa breyst mikið
frá því að þeir komu fyrst á mark-
aðinn. Nú hafa örbylgjuofnar með
innbyggðum skanna fyrir strika-
merki farið að ryðja sér til rúms og
frumgerð á einum slíkum hefur nú
komið fyrir almenningssjónir. Þessi
nýi örbylgjuofn frá RH Hall, sem
hefur hlotið gælunafnið Maestro-
wave, er sérstakur fyrir þær sakir
að hann hefur ekki einn einasta
takka. Þess í stað hefur hann ein-
faldan skanna sem les inn vörurnar
af strikamerkinu og stillir tíma og
styrk eldunar eftir því. Þetta mun
án efa hjálpa mörgum piparsvein-
inum við eldamennskuna og mun
án efa flýta fyrir matreiðslu hjá
þeim sem nærast á örbylgjuréttum.
Þessi forláta ofn er enn á þróunar-
stigi en talið er líklegt að ofninn
muni koma á almenningsmarkað
fyrrihluta næsta árs.
Smekklegt veður
Það er ekkert leyndarmál að
Islendingar eru veðursjúkir, enda
erum við þjóð sem í gegnum tíðina
hefur átt allt sitt undir góðsemi veð-
urguðanna. Á mörgum heimilum er
hægt að finna forláta loftvogir sem
þjóna vel sínu hlutverki þó svo að
útlit þeirra passi ekki endilega inni
á nýtískuheimili. Nú er væntanleg
á markaðinn mjög svo smekkleg
veðurstöð sem mun fræða fólk um
veðrið og um leið líta framúrstefnu-
lega út. Það er fyrirtækið Oregon
Scientific sem er að setja á mark-
aðinn þennan snyrtilega glerkassa
sem búið er að grafa í tákn fyrir sól,
ský og úrkomu. Þessi tákn munu
síðan lýsast upp eftir því sem við
á. Klukka er á botni veðurstöðv-
arinnar og með því einu að veifa
hendinni fyrir framan veðurstöð-
ina þá birtist hitastigið. Þessi forláta
veðurstöð verður fáanleg í lok árs.
Tæknivædd burstun
Tannburstinn er aldagömul upp-
finning en alltaf er rúm fyrir endur-
bætur. Rafknúnir tannburstar eru
hættir að teljast til nýbreytni en
segja má að nær annað hvert manns-
barn eigi nú rafmagnsbursta. Það
sem er hins vegar að eiga sér stað
núna er að framleiðendur eru að
reyna að finna leiðir til að auðvelda
fólki að bursta vel og rétt. f því
skyni er verið að markaðssetja tvo
tannbursta sem gætu gjörbylt tann-
hirðu. Fyrst ber að nefna Tooth Tu-
nes frá leikfangaframleiðandanum
Hasbro en sá ágæti tannbursti
spilar tveggja mínútna lagstúf
meðan á burstun stendur en þá eru
engar líkur á því að burstað sé of
stutt. Önnur vara sem væntanleg er
á markaðinn er nýi Triumph-tann-
burstinn frá Oral-B en burstinn sá
skartar LCD-skjá ásamtþví sem
hann er samtengdur við lítinn skjá
sem hægt er að festa á baðherbergis-
spegilinn. Sá skjár gefur til kynna
hvar skuli bursta og hversu lengi en
einnig lætur hann vita ef verið er að
bursta of fast.