blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 5
Allt í Ijósu, innan sem utan
Talað er um að húsið lýsi innri
manni eiganda þess. Vont er ef
satt reynist ef marka má Jónas
Aðalsteinsson, málarameistara hjá
Málarasmiðjunni. Hugmyndaflug
fólks þegar kemur að litavali hefur
minnkað til muna undanfarin ár
og áberandi litir eru á hröðu undan-
haldi, hvort heldur innanhúss eða
utan.
„Innanhúss er maður nánast
eingöngu að mála hvítt. Það er litur
sem heitir S0500 og það má segja
að hann sé allsráðandi. Utanhúss
eru þetta nánast allt sömu litir. Þá
erum við að tala um marmara-
hvítt, málarahvítt, silkigrátt og
þess háttar. Oft eru húsin í sama
lit að innan og utan, meira að segja
gluggar og þakkantar líka,“ segir
Jónas.
Hér áður fyrr var mikið í tísku
að mála húsin dökkum eða jafnvel
skærum og áberandi litum, en það
er alveg dottið út í dag, segir Jónas.
„Fólk lenti oft í því þegar það var að
mála í mjög dökkum litum að þeir
veðrast meira en þeir ljósu. Rauði
liturinn var kannski orðinn bleikur
eftir eitt ár og blár orðinn ljósblár.
Fólk fór því að hverfa yfir í ljósu
litina. Litirnir koma samt aftur því
þetta gengur í bylgjum."
Jónas segist vart muna hvenær
hann málaði síðast hús í mjög áber-
andi litum, líklegast séu einhver
átta ár síðan. Þá var það dökkblátt
hús með leirpottabrúnum gluggum
og köntum. „Það er einhver einfald-
leiki í arkitektúrnum núna og fólki
þykir það flott í dag. Þetta er einfalt
og stílhreint, kannski svolítið
stofnanalegt.“
Það skiptir miklu að vanda til
verka áður en ráðist er í að mála.
Jónas ráðleggur fólki sérstaklega
að huga vel að tréverkinu sem verði
að fylgjast með reglulega, ekki síst
þar sem mesta álagið er af veðrinu.
„Sólin fer einna verst með timbrið.
Ef það er grámi í viðnum, sem er í
raun bara fúi, þá þarf hann að slíp-
ast í burtu. Svo þarf að grunna með
viðargrunni og mála helst tvær til
þrjár umferðir."
Þegar málað er utanhúss þarf
að byrja á að háþrýstiþvo steininn
og gera við sprungur, séu þær til
staðar. Svo er blettað í beran stein
með terpentínuþynnanlegri akrýl-
málningu áður en hægt er að mála
tvær umferðir með hefðbundinni
plastmálningu.
Það er ekki ofsögum sagt að
veðrið hafi leikið við landsmenn
undanfarna daga, ekki síst hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Góðviðrið kemur
sér einkar vel fyrir málara sem eru
töluvert háðir veðrinu. „Þetta er
búið að vera algjör draumur síðustu
vikurnar. Maður trúir því varla að
það sé ekki farið að rigna enn þá.“
Bjartir litir í tísku Jónas málar
einbýlishús í Björtuhlíð i Mosfells-
bæ. Líkt og flestir að undanförnu
þekur hann Ijósan lit yfir dökkan.
afsláttur
Gæða þakgluggar á sérstöku tilboði
á meðan birgðir endast.
Fást í eftirfarandi stærðum:
55x78 • 55x98 • 66x118
78x98 • 78x140 • 94x140
Álevokkavmál ÁLYAK
Stórhöfða 33 • 110 Reykjavík • Sími: 577-4100 • www.altak.is
KAUR4/SELIA
| SMÁAUGLÝSINGAR 5103737 blaðið—iB
[ ___SMAAUQLYSiNGAR@BUD10.NET
ALLT FYRIR TJARNIR OG GOSBRUNNA!
Tilbúnar
Graníteiningar
Tjarnardukar
Dælur
Lækjareiningar
GOSBRUNNAR.IS
-alltfyrir tjamargerð, gosbrunna og vatnsflæði.
Sýningarsalur og verslun Langholtsvegi 109, bakvið - s: 517-4232 - Opið 13-18