blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 7

blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 7
blaðid MIQVIKUDAGUR 27. JUNi UUO/ ■ ■mHpnrr Svefnherberginu breytt Hótelherbergi heima fyrir Þegar gestir koma inn á heims- klassahótel þá er oft grípandi hversu aðlaðandi hótelherbergin eru. Sumir óska þess jafnvel að svefnherbergi þeirra myndi líkjast þessu ágæta hótelherbergi. Það vex hins vegar mörgum í augum að innrétta svefnherbergið sitt í hótelstíl enda hefur fólk kannski áhyggjur af kostnaði og fleiru í þeim dúr. Malinda Zimmerman hefur um árabil hannað hótel- herbergi fyrir margar virtar hótelkeðjur og hún leysti frá skjóðunni á dögunum og gaf netverjum góð ráð um hvernig hægt sé að innrétta svefnherbergi á jafn smekklegan máta og fimm stjörnu hótelin gera. Þegar herbergi eru hönnuð fyrir hótel er reynt að gera sem flestum til hæfis. Þegar svefnherbergið í heimahúsi er hannað þarf hins vegar að hafa þarfir og óskir mun færri aðila í huga og því ætti verkið að vera mun auðveldara. í hótelher- bergjum er takmarkað rými og það er sett upp þannig að það geti sinnt öllum þörfum gesta. Slíkt hið sama er hægt að gera í svefnherberginu. Fólk þarf að gera upp við sig hvað það vill geta gert í svefnherberginu, fyrir utan að sofa í því. Hægt er að setja tvo þægilega stóla, skrifborð til að geta unnið við eða kaffikrók. Malinda segir að það mikilvæg- asta sem fólk fjárfestir í á lífsleið- inni sé rúmið og því borgar sig ekki að skera við nögl þegar kemur að vali á rúminu. Rúmfötin eiga einnig að vera í hæsta gæðaflokki, hvort sem það eru lökin, sæng- urnar eða koddaverin. Púðar á rúminu gefa aukinn lit og kraft í svefnherbergið. Að lokum leggur Malinda til að ljós og ljósarofar séu staðsett þar sem við á, þríþættur ljósarofi við við innganginn, les- lampar við hvora hlið rúmsins og síðast en ekki síst á að setja ljós- deyfi, dimmer, á öll ljós. Tónlist, leikur og leti Þegar sumarið gengur í garð er þess að gefa fólki hugmyndir um rétt að láta hendur standa fram hvernig sé best að verja frítím- úr ermum og drífa sig út fyrir anum heima fyrir er rétt að benda hússins dyr. Það er margt sem á nokkra hluti sem verða að flokk- hægt er að dunda sér við og til ast sem ómissandi í sumar. Hvernig sem á það er litið slær ekkert út hengirúmin fyrir þessa heitu sumar- daga. Það er fátt sem jafnast á við það að slaka á í hengirúmi með góða bók og kaldan drykk. Krokket er van- metin tómstunda- iðja sem flestir ættu að grípa í að minnsta kosti einu sinni yfir sumartím- ann. Þetta er leikur sem ungir sem aldnir geta leikið og því kjörin leið til að brúa ky nslóðabilið, svo lengi sem afi hættir að svindla. Tónlistin er ómiss- andi þáttur í tóm- stundum nútíma- mannsins og því ætti að vera til að minnsta kosti einn MP3-spilari, á borð við iPod, á hverju heimili. Hvort sem fólk vill hlusta á léttmeti eða argasta graðhestarokk þá er tónlistarspilarinn málið í sumar. 510 3744 blaðið. Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrir auglýsinguna þína í viðeigandi sérblaði Auglýsingasímar: Katrin Rúnarsd. 510-3727 kata@bladid.net Kolbrún Dröfn 510-3722 Sólskálar Svalalokanir -Stofnað 1984- www.solskalar.is Sími: 554 4300 Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ GLUGGARIÍ& ARÐHÚSlIehf Svalaskjól Gluggar Rennihurðir

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.