blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 8
Vertu klár
rir sumarið!
Hvert er þitt
uppáhaidseldhúsáhald?
Loftkœlar og varmadœlur
fyrir skrifstofur
og tölvurými.
ÍS-hÚSÍð 566 6
töframassinn
Án skaðlegra efna • Fitu- og kýsilleysandi
Fyrir
Eftir
Húðvænt • Náttúrulegt • Mjög drjúgt
Ótrúlega góður árangur
Svampur fylgir með
Hreinsar, fægir og verndar samtimis. Hentar vel til
þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfrfu stáli,
silfri, áli, gulli, kopar, messing, glerl, plasti,
lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni ofl. ofl.
Sölustaðin Húsasmiðian - Byko - Fjarðarkaup - Verslanir Rönnlng
Tengi - Melabúðin - Verkfasralagerinn - Miðstöðin Vestmannaeyjum
Eyjatöivur (Brimnes) Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri
Rafsjá Sauðárkróki - Skipavík Stykkishóimi - Áfangar Kefiavfk
Heiidsöludreifing: Ræstivörur ehf
Margir eiga sitt uppáhaldseld-
húsáhald og geta ekki komist
í gegnum daginn án þess að
nota það. Hvort sem um er að
ræða kokka eða áhugafólk um
eldamennsku, þá eiga allir sitt
uppáhaldseldhúsáhald. Blaðið
hafði samband við fjóra þekkta
kokka og matreiðslumenn og
spurði þá hvað væri þeirra uppá-
haldseldhúsáhald. Það stóð
ekki á svörunum og þeir voru
alveg með það á hreinu hvaða
hlutur væri nauðsynlegur í
eldhúsið.
Hnífurinn, pískarinn
og brettið
Úlfar Eysteinsson var ekki lengi að ákveða
hvað væri hans uppáhaldseldhúsáhald. „Mín
uppáhaldseldhúsáhöld eru hnífurinn, pískar-
inn og skurðarbrettið. Það er ekki hægt að vera
án þessara hluta. Ég nota blátt bretti fyrir fisk,
rautt fyrir kjöt og grænt bretti fyrir grænmeti.
Þetta er lykillinn varðandi hreinlæti. Ég gæti
alveg sleppt því að vera kokkur ef að ég hefði
ekki þessi áhöld.“ Úlfar sagðist ekki komast af
án þessara hluta.
Töfrasprotinn leysir
allan vanda
Ragnar segir að uppáhaldsáhaldið sitt sé
töfrasprotinn. „Það er alveg nauðsynleg græja,
annars gæti ég ekki gert helminginn af því
sem ég er að gera. Ég nota töfrasprotann í allar
sósur. Þegar þarf að þykkja eitthvað með hveiti
er mjög gott að nota þetta tæki. Ég get notað
þetta tæki í allt. Ég get til dæmis búið til
chutney og gert froðu. Ef ég lendi í vandræðum
þá get ég alltaf bjargað mér með töfrasprot-
anum. Hann leysir allan vanda,“ segir Ragnar.
ikið úrval af grillum
Verð 49
900
Sláttuvélamarkaðurinn
Wfverslun á Vagnhöföa 8
10 Rvk, S. 517-2010
Búinn að eiga
hníf síðan 1989
„Mitt uppáhaldseldhúsáhald er Sabepier-
hnífurinn góði sem ég er búinn að eiga síðan
árið 1989. Þetta er hnífur sem ég keypti i Paris
á sínum tíma og ég legg hann varla frá mér.
Hann hefur nýst alveg endalaust. Stálið endist
vel og hnífurinn heldur mjög góðu biti.“ Leifur
segist nota hnífinn í vinnunni og hann er því í
stanslausri notkun alla daga. Leifur bætir við
að hnífurinn sé notaður í ýmislegt. Þetta er sax-
hnífur og hentar vel til að skera grænmeti.
Töfrasprotinn er
algjör skyldueign
Eggert Þór var ekki í nokkrum vafa hvert
væri hans uppáhaldsáhald í eldhúsinu. „Það
er töfrasprotinn. Hann er lítill og handhægur
og það er hægt að nota hann á marga vegu. Ég
nota hann til að blanda sósur, mauka, þeyta
og margt annað. Þetta tæki er ómissandi á
hverju heimili og algjör skyldueign.“ Eggert
Þór segist nota töfrasprotann jafnt í vinnunni
sem heima hjá sér.
Heimasíður fyrir fagurkera
Hefurðu gaman af fallegri
hönnun? Margt fallegt fæst í versl-
unum hér á landi og kannski engin
ástæða til að leita langt yfir skammt.
Þó er alltaf skemmtilegt að skoða
netsíður þar sem hægt er finna eð-
alhönnun jafnt á smærri sem stærri
hlutum. Hér á eftir eru nokkrar
slóðir að fallegri hönnun:
www.alessi.com
www.scandinaviandesign.com
www.italydesign.com
www.finnishdesignshop.com
www.nova68.com
www.philippe-starck.com
www.lambert-home.de
www.molteni.it
www.montana.dk