blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 9
blaóió HEIMILl HÖNNUN |23
Litaval
Ást við fyrstu sýn!
Mikilvægt að
velja rétta litinn
Þegar velja skal liti í herbergi er
margt senr þarf að huga að. Gott er
að taka sér góðan tima til að velja
rétta litinn. Því litir geta haft mikið
að segja um stærð og lögun herberg-
isins. Grunnreglan varðandi litaval
er sú að dökkir litir minnka rýmið
og ljósir litir stækka rýmið. Þegar
litir eru valdir þarf að hafa í huga
að lýsing og birta í rýminu hefur
mikil áhrif á litatóninn. Það er líka
nauðsynlegt að vita að litir verða
dekkri á stærri fleti. Því getur það
verið hentugt að velja daufari liti á
stærri fleti og sterkari liti á minni
fleti. Val á litum fer þó alltaf eftir
smekk hvers og eins.
Litir sem hafa áhrif á
matarlystina
Það er oft mikil hugsun á bak við
litaval. Á veitingastöðum er rauður
oft mjög áberandi. Það er engin til-
viljun því að rauður litur hefur örv-
andi áhrif á matarlystina. Rauður
er lika orkumikill litur og því er
hann líka hentugur þar sem margir
koma saman. Ef velja skal rauðan
lit á herbergi þá þarf að vanda
valið vel til dæmis i eldhús. Það
er mjög mikilvægt að velja rauðan
lit í réttum litatón, því flestir vilja
skapa hlýju í herbergið en ekki hafa
inn góð áhrif á matarlystina
Fallegur litur Hér má sjá stofuvegg
í sterkum lit
rauða litinn of áberandi og æpandi.
Ef fólk vill mála herbergi sem er
lítið í rauðum lit þá er best að nota
rauðan í ljósum tón. Það gæti þó
verið áhrifameira í litlum her-
bergjum að mála einn vegg rauðan
eða hengja málverk með rauðum
litum upp á vegg.
Aðrir litir sem hafa góð áhrif á
matarlystina eru appelsínugulur og
gulur. Bleikir og fjólubláir litir hafa
róandi áhrif á matarlystina og eru
þeir því ekki hentugir á stöðum þar
sem fólk borðar eða skemmtir sér.
Blár litur hefur ekki örvandi áhrif
á matarlystina en hann er þó mjög
góður þar sem fólk kemur saman.
Því blár litur er þ'ekktur fyrir að
hafa hvetjandi áhrif á samskipti
fólks. Réttur litur getur dregið fram
það besta í herberginu og það er því
mjög mikilvægt að velja réttan lit.
Ertu aö leita aö aðlaöandi, þolgóðum og ábyggilegum félaga
sem tekur vel á móti þér í lok dags?
sœtir sófar
Smiöjuvegur 9 • Kópavogi * S: 564 1475
Græna byltingin er hafin!
Sjáið kynningarmyndband á www.endurvinnslutunnan.is
Við sækjum blöð, pappír, pappa, málma,
plast, fernur og rafhlöður heim til þín.
Hringdu í okkur í síma 535 2510
og pantaðu Endurvinnslutunnuna!
Við spörum þér sporin
og auðveldum flokkun
7 flokkar
í sömu
Cb
GÁMAWÓNUSTAN hf.
BÆTT UMHVERFI - BETRIFRAMTÍÐ
Súðarvogi 2 • 104 Reykjavík • Sími: 535 2500
gamar@gamar.is • www.gamar.is