blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 10
HEIMILI HÖNNUN
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007
Norsk sumarhús dýrari
Norðmenn kvarta nú sáran yfir
verðhækkunum á sumarhúsum.
Verðið á þeim hefur hækkað um 29%
á einu ári. Þó er mismunur á verði
eftir landshlutum. Þannig eru sum-
arbústaðir í Nordland sjö sinnum
ódýrari en í Buskerud. Algengt verð
á góðum sumarhúsum í Noregi er i
kringum 1100 þúsund eða í kringum
12 milljónir islenskra króna. Um
40% af þeim sumarhúsum sem hafa
verið seld á þessu ári hafa farið yfir
eina milljón norskra króna.
Norðmenn hafa alltaf verið áhuga-
samir um sumarhús og það hefur
ekki farið minnkandi þótt verðið
stigi. Salan jókst um 17% milli ára.
Á fyrstu þremur mánuðum ársins
voru 2001 sumarbústaður til sölu í
Noregi.
Þess má reyndar geta að sam-
kvæmt nýlegri könnun dreymir
fjórða hvern Norðmann um að
eignast sumarhús í útlöndum.
Spánn er efstur á óskalistanum yfir
þá staði þar sem Norðmenn langar
að eignast sumarhús, 26% þeirra
sem spurðir voru vildu helst eiga
hús á Spáni, 15% í Frakklandi og 11%
í Grikklandi. Þá eiga margir Norð-
menn sumarhús í Svíþjóð.
Þeir sem ætla að kaupa sér sumar-
hús í útlöndum ættu að huga að því
að stutt sé á ströndina, að auðvelt sé
að komast að staðnum frá flugvell-
inum og að bílaleigubílar séu ekki
mjög dýrir á þeim stað. Einnig þarf
að gæta að því að búðir og veitinga-
staðir séu opnir á vetri ekki síður en
á sumri.
Hreinlæti númer
eitt, tvo og
Eign íslendinga á heitum
pottum hefur aukist gríðarlega
undanfarin ár, enda engin furða
þar sem fátt slær út að slaka
á í heitum potti eftir erfiðan
- vinnudag. Heitir pottar krefjast
þó nokkurs viðhalds þar sem
vatnið í pottunum á það til að
verða skítugt og þá verður potta-
reynslan síður en svo skemmtileg.
Verslunin Poulsen státar af um-
fangsmikilli þekkingu á heitum
pottum og má segja að Kristján
Erling Jónsson, sölustjóri hjá
Poulsen, sé sannkallaður visku-
brunnur um heita potta.
Kristján segir að lykilatriði
varðandi heita potta sé að gæta
fyllsta hreinlætis. „Hreinlætið
er númer eitt, tvö og þrjú, það er
langmikilvægast. Þessir pottar
eru hugsaðir þannig að þeir not-
ast við sama vatnið í lengri tíma,
en við mælum með því að það sé
þó ekki lengra en þrír mánuðir.
Það fer þó mikið eftir því hversu
mikið potturinn er notaður. Ef
potturinn er mikið notaður þá
þarf að skipta um vatn oftar.“
Það gefur auga leið að það er
gríðarlega mikilvægt að hreinsi-
búnaðurinn í pottunum sé góður.
Kristján segir að í pottunum sem
Poulsen selur sé tvíþætt hreinsi-
kerfi, annars vegar sía og hins-
þrju
vegar Ozon-búnaður sem kemur
í veg fyrir gróðurmyndun. „Því
til viðbótar þarf fólk hreinsiefni.
Margir nota klór en við mælum
með efni sem heitir Sofswim. Við
höfum verið að selja það og það
reynist mjög vel. Það er lyktar-
laust og endist vel.“
Kristján segir ennfremur að sí-
una í pottunum þurfi að hreinsa
reglulega með því að fjarlægja
hana og skola með heitu vatni,
því annars nái hreinsiefnin ekki
að vinna á neinu nema því sem
safnast hefur upp í síunni.
í flestum ef ekki öllum heitum
pottum er að finna nuddstúta
sem hægt er að skrúfa frá og fyrir
eftir þörfum. Kristján segir að
mikilvægt sé að skrúfað sé frá
þessum stútum þegar potturinn
er ekki í notkun. „Þegar stútarnir
eru lokaðir þá er ekki nægileg
hreinsun. Þá er það bara hluti
af vatninu sem lendir í hring-
rás og þá getur vatnið sem er í
leiðslunum farið að úldna. Því
skal alltaf hafa skrúfað frá öllum
stútum.“
Ef fólk fer að þessum ráðlegg-
ingum Kristjáns er þeim mun
líklegra að pottareynslan verði
ánægjuleg. Það kærir sig líklega
enginn um að busla um í grænþör-
ungum og slími.
Ostel-hótelið í Berlín
Alvöru kommúnistahótel
Hönnun á sér margar hliðar og
sækir fólk innblástur víða þegar
unnið er að hönnun húsa. I Þýska-
landi er að finna allsérstakt hótel
sem hefur verið hannað til að líta út
eins og dæmigert hótel hefði litið út
í A-Þýskalandi fyrir árið 1989, fyrir
fall Berlínarmúrsins. Ostel-hótelið
er staðsett í Berlín og má með sanni
segja að þeir sem gista á þessu hót-
eli muni svo sannarlega fá menning-
arsjokk þar sem heimsókn á þetta
hótel mun einna helst minna á ferð
aftur í tímann, til tíma fábrotins
kommúnisma.
Öll hönnun hótelsins stefnir á
að fanga það útlit og þá stemningu
sem var ríkjandi fyrir fall Berlínar-
múrsins í Austur-Þýskalandi. Vegg-
fóðrið er brúnt og appelsínugult
og málverk sem prýða veggina eru
áróðursveggspjöld frá Kommúnista-
flokknum. I móttöku hótelsins eru
fjórar klukkur sem sýna tímann
í Moskvu, Berlín, Havana og Pek-
ing, fjórum hornsteinum gömlu
kommúnistaríkjanna.
msm
Það eru tveir fyrrum sirkus-
meðlimir, Daniel Helbig og Guido
Sand, sem höfðu veg og vanda af
hönnun og rekstri hótelsins en þeir
fengu innblástur frá bíómyndum
á borð við Goodbye Lenin og svo
stöðugum vinsældum Trabant-
bíla. Þeir félagar lögðu mikið á sig
við að reyna að bjarga gömlum
húsgögnum, bæði frá heimilum og
gömlum húsgagnabúðum, sem bera
glögg merki gamalla lífshátta.
Það er ekki ofsögum sagt að
inni á Ostel muni fólk sem minnist
tímans fyrir fall Berlínarmúrsins fá
nettan fortíðarfiðring. Til að auka
enn meira á fortíðarþrána þá eru
sýningarbásar í anddyri hótelsins
sem sýna minjagripi frá þessum
tíma. Þar á meðal eru plasteggja-
bikarar, súkkulaðieftirlíkingar af
austurþýskum peningum og sjald-
gæf rúlla af alvöru austurþýskum
ldósettpappír. Þeir sem eru á leið-
inni til Berlínar og vilja fá aðeins
öðruvísi hótelreynslu ættu hiklaust
að kíkja á Ostel-hótelið. Það ætti að
vera forvitnileg sýn inn í fortíðina.
Viðarbrennsluofnar
Kústasett
Hreinsikubbar
Reykrör
Einangruð reykrör á allar gerðir ofna.
Einföld í uppsetningu
fARINVDRUR
Reykrörin eru CE gæðavottuð og samþykkt af Brunamálastofnun Ríkisins
Viöa rbrennsluofna r - Ejölbrunaofnar - Kústasett-H reinsikubbar - Reykrör - Sérsm íöi
K rókhálsi 1 0 - Sí m i 898 1931 - vvw w.a ri n voru r. is