blaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 11
blaóiö
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNl 2007
HEIMILI HÖNNUN
25
Ertu að spá í að selja?
Litlu hlutirnir
skipta máli
Þegar þú setur íbúðina þína á sölu er mjög gott að huga að
ýmsum þáttum sem geta aukið sölumöguleikana. Það þarf ekki
endilega að taka allt í gegn fyrir miklar fjárhæðir. Hægt er að
gera fínt með smávægilegum breytingum. Spáðu í hvernig þú vilt
koma að íbúð sem þig langar til að kaupa.
Eldhúsið og baðið þurfa að líta vel út. Þeir sem eru í íbúðarhug-
leiðingum taka fyrst eftir þessum tveimur hlutum hússins. Gott
er að setja allt dót sem venjulega er á borðum í eldhúsi ofan í
kassa á meðan íbúðin er í sölu. Hluti sem eru í mikilli notkun
ætti að setja inn í skáp en annað dót má fara ofan í kassa og getur
verið þar þangað til flutt er.
Sama á við um stofuna. Því meira dót á borðum og í hillum því
meira fráhrindandi er aðkoman að íbúðinni. Hún sýnist minni
og fólk sem er óvant því að hafa mikið dót í kringum sig missir
strax áhugann. Setjið því mestallt dótið ofan í kassa og hafið fáa
hluti uppi við.
Ef það er langt síðan íbúðin var máluð borgar sig að fara að
minnsta kosti eina umferð yfir hana áður en hún er sett í sölu. Ef
sprunga er í vegg borgar sig að gera við hana.
Ekki hafa þung og dimm gluggatjöld fyrir gluggum. Hleypið birt-
unni inn. Bjartar íbúðir eru vinsælli en dimmar. Passið einnig að
lofta vel út áður en ókunnugir koma að skoða. Allt skiptir þetta
máli fyrir þann sem ætlar að kaupa sér íbúð.
I forstofunni tekur þú á móti gestunum. Settu alla skó inn í skáp
eða í kassa, séu þeir ekki í notkun. Hafðu forstofuna hreina.
Mjög nauðsynlegt er að baðherbergið líti vel út. Með því að þrífa
það vel og skipta út handklæðum má gera það mjög fínt. Fallegar
sápur, kerti og jafnvel blóm gera baðherbergið aðlaðandi. Það
getur borgað sig að fjárfesta í nýrri baðmottu og handklæðum
í stíl og setja upp þegar von er á íbúðarkaupendum í heimsókn.
Veljið fallegan lit sem passar vel við flísarnar og gluggatjöldin.
Nú tíðkast að hafa svokölluð opin hús þegar íbúðarhúsnæði er
sett í sölu. Ef þú ætlar að hafa opið hús þarftu að líta mjög gagn-
rýnum augum á heimili þitt. Taktu mynd af hverju herbergi fyrir
sig og veltu því fyrir þér hvað þarf að laga. Settu sjálfan þig í spor
kaupanda. Kaupandinn þarf að sjá sjálfan sig í húsakynnunum
þannig að þú skalt ekki hafa of mikið af fjölskyldumyndum uppi
við. Það ruglar fólk í ríminu og það sér annað fólk sem passar inn
í heildarmyndina, eftir því sem bandarískur söluráðgjafi segir.
Mundu að kaupendur elska að forvitnast. Þeir opna allar skúffur
og skápa svo ekki gleyma að hafa allt í röð og reglu. Drasl í
skápum sýnir þinn innri mann. Ef allt er vel skipulagt í skáp-
unum fær kaupandinn á tilfinninguna að þú hugsir vel um allt
sem þú átt svo íbúðin hljóti að vera í góðu lagi.
Mjög mikilvægt er að hafa alla glugga hreina, innan sem utan.
Skítug gler gera alla íbúðina skítuga. Allt krórn, stál og þess
háttar á að skína af hreinlæti. Hreinsaðu ísskápinn því efvond
lykt kemur frá honum þá hefur það áhrif á kaupandann. Bónaðu
gólfin því þá virðast þau nýrri. Stattu fyrir utan dyrnar og horfðu
inn. Er íbúðin hrein og glansandi? Býður hún nýjan íbúðareig-
anda velkominn í bæinn?
Það er afar áríðandi að hafa allt hreint og fínt ef þú ætlar að hafa
opið hús hjá þér til að trekkja að kaupendur.
j^Hafðu^sarnband^og^fáðu gott pláss
fyrir auglýsinguna þina i vióeigandi sérblaói
blaði
Auglýsingasímar:
Katrín Laufey 510-3727
Kolbrún Dröfn 510-3722