blaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 1
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKF'"'i$! Þorgerður brák Brynhildur Guðjóns- dóttir vinnur að einleik um Þorgerði brák. Charlotte Boving leikstýrir og frum- sýning eráætluð milli jóla og nýárs. KOLLA»14 Fiskisúpa Odds Sjónvarpsmaðurinn Oddur Astráðsson gefur uppskrift að forláta fiski- súpu í sérblaði um mat sem fylgir með Blaðinu í dag. Fleiri frægir koma þar einnig viðsögu. SÉRBLAл22 Vatnsverksmiðja vill ekki álver í nágrennið SS Sveitarfélagið Ölfus skuldbindur sig til að leyfa ekki starfsemi sem hefur neikvæð áhrif Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Ragnar Birgisson, forstjóri Icelandic Water Holding, segir aðspurður að það yrði mjög slæmt að fá álver við túnfótinn hjá átöppunarverk- smiðju fyrirtækisins. Ef Alcan ákveður að byggja upp álver í Þorlákshöfn verður það sjö kilómetra sunnan við átöppunarverksmiðjuna. „Þetta snýst um það að það verði haft samráð við okkur um það sem verður í næsta nágrenni við okkur,“ segir Ragnar, aðspurður um ákvæði sem er í samningi IWH við sveitarfélagið Ölfus vegna nýrrar átöppunarverksmiðju fyrirtækisins. I samningnum segir: „Sveitarfélagið Ölfus mun ekki samþykkja starfsemi í nágrenni við átöppunarverksmiðjuna að Hlíðarenda sem getur BAKGRUNNUR ► Undirbúningur að byggingu áltækni- garðs á vegum Arctus um 8 km fyrir utan Þorlákshöfn er langt kominn. ► Icelandic Pure Water starfrækir nú þeg- ar átöppunarverksmiðju í Þorlákshöfn og leggur mikla áherslu á hreinleika og gefur sig út fyrir að vera umhverfisvænt. ► Fulltrúar Alcan hafa átt viðræður við bæjaryfirvöld um möguleikana á því að fyrirtækið byggi þar upp álver. haft neikvæð áhrif á vatnsvinnslu fyrirtækisins enda verður ekki ráðist í slíkt nema í samráði við forsvarsmenn IWH.“ „Þegar menn byggja á ímynd um hreinleika og tærleika þá vilja menn náttúrlega ekki fá hvern sem er við túnfótinn,“ segir Ragnar en bætir við að enn sé ekki komið á hreint hvort álver verður byggt við Þorlákshöfn og ekki heldur hvar. Umdeiid staðsetning álvers Samkvæmt heimildum Blaðsins ræddu yfirvöld í Ölfusi mögulega staðsetningu álvers Alcan við Þorlákshöfn þegar forsvarsmenn fyrirtækisins komu í heimsókn á dögunum. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir álveri um það bil tvo kílómetra vestan við bæinn. Sú staðsetning er um sjö kílómetra suður af fyrirhugaðri átöppunarverk- smiðju IWH við Hlíðarenda. Kunnugir segja að þessi staðsetning gæti orðið mjög umdeild. Innflutt matvæli hækka á næstunni Erlendir birgjar hafa boðað hækk- anir á matarverði vegna uppskeru- brests og aukinnar eftirspurnar. Hækkunin skellur á seinni hluta ársins eða í byrjun næsta árs. Inn- flytjendur skoða möguleika á að flytja inn frá Asíu. JL Getur stangast á við samkeppnislög Viðskipti með 15% hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja og framsal til Orkuveitu Reykjavíkur gætu stangast á við samkeppnislög. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins m segir kaupin verða skoðuð. Tuttugu þúsund tonn af malbiki „Þurrt og hlýtt veður kjöraðstæður til malbikunar" Aðstæður til malbikunar hafa verið með eindæmum góðar undanfarna daga, enda myndar þurrt veður og hlýtt kjöraðstæður til að stunda þessa karlmannlegu iðju. 20.000 tonn af malbiki verða lögð á götur borgarinnar í sumar. Blaðið kortleggur í dag og á morgun hvaða malbiksframkvæmdum megi búast við í borginni næstu vikur. MALBIKSFRAMKVÆMDIR8 Kvarta yfir verkefnaleysi Rúmlega þrjátiu kenískir að- stoðarráðherrar hafa skrifað forseta landsins bréf þar sem þeir kvarta yfir verkefnaleysi. „Ég mæti í vinnuna, les blöðin og hef ekkert að gera,“ segir aðstoðarsjávarútvegsráðherr- ann, Abu Chiaba. Starfsbróðir hans í ferðamálaráðuneytinu segist vera meðhöndlaður eins og skuggi og hann fréttir af ákvörðunum stjórnvalda i gegnum fjölmiðla. Forseti landsins fjölgaði aðstoðar- ráðherrum landsins verulega þegar hann tók við völdum árið 2002 og eru þeir nú fimm- tiu talsins í 33 ráðuneytum. aí NEYTENDAVAKTIN fesfS Kornax-hveiti í 2 kg pokum mi * Fyrirtæki Krónur Kaskó 75 Melabúðin 111 Samkaup-Strax 136 Nótatún 139 Hagkaup 145 Kjarval 149 Upplýsingar Irá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % Wm USD 62,35 -0,81 ▼ £H§| GBP 125,70 -0,14 ▼ SS DKK 11,42 0,40 A • JPY 0,51 0,10 A ■1 EUR 84,990 0,38 A GENGISVÍSITALA 115,08 0,04 A I ÚRVALSVÍSITALA 8.317,45 0,20 A r L. biloland.is Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.