blaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 1
123. tölublað 3. árgangur
Fimmtudagur
5. júlí 2007
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
íslenskt teiknimyndablað
Eina íslenska teiknimynda-
sögublaðið, Neo-Blek,
hefur komið út árlega
frá1996. Það má
að stærstum hluta
þakka teiknaranum
Jean Antoine.
FÓLK»38
Nýr Fiskmarkaður
Hrefna Sætran matreiðslu-
maður er eina konan í
landsliði kokka en hún er
að undirbúa opnun nýs
veitingastaðar, Fisk-
markaðarins, sem á að
vera mjög íslenskur.
MATUR»26
ORÐLAUS>S
Vatnsbyssubardagi
Heiðar Austmann út-
varpsmaður er einn af
aðstandendum vatnsbyssu
bardaga sem fram fer um
helgina, en til stendur
aðskrá heimsmethjá
Guinness.
Síbrota-
menn í
sumarfrí
■ Lausir úr gæslu vegna dráttar á dómi
■ Taldir líklegir til að halda brotum áfram
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Tveimur síbrotamönnum, Davíð
Þór Gunnarssyni, 19 ára, og ívari
Aron Hill Ævarssyni, 20 ára, var á
mánudag sleppt úr haldi eftir að
hafa setið í síbrotagæslu frá því í
janúar. Þeir tilheyra þrettán manna
hópi sem er ákærður fyrir fjölmörg
auðgunar-, fíkniefna-, umferðarlaga-
og þjófnaðarbrot auk fjölda annarra
afbrota í alls 76 ákæruliðum.
Aðalmeðferð málsins hófst 27. apríl
en dómur hefur enn ekki verið kveð-
inn upp. Því þótti Hæstarétti ekki
tækt að halda mönnunum lengur i
gæslu þrátt fyrir að komið hafi fram
í greinargerð lögreglustjóra að þeir
hafi báðir verið í mikilli óreglu, án
atvinnu, eigi samfelldan brotaferil
að baki og að mat lögreglustjóra sé
að þeir muni halda áfram að fremja
afbrot verði þeir látnir lausir.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höf-
uðborgarsvæðisins, segir lögregluna
hafa klárað öll sín mál gegn mönn-
unum tveimur og að ástæðan fyrir
því að þeim sé sleppt sé að of langt sé
um liðið frá dómtöku málsins.
Guðmundur L. Jóhannesson, dóm-
stjóri Héraðsdóms Reykjaness, segist
reikna með að dómsuppkvaðningin
fari fram áður en dómstólar fara í
sumarleyfi 18. júlí. „Þetta er daga-
LANGUR BROTAFERILL
►
Annar maðurinn gekk laus
í rúman mánuð í desem-
ber en framdi þá svo mörg
afbrot að hann var settur
inn aftur.
► Hinn var úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald í
janúar. Hann var gripinn
í Varmahiíð eftir flótta úr
fangelsinu á Akureyri
spursmál og verður annaðhvort í lok
þessarar viku eða í byrjun þeirrar
næstu.“
Þó að dómur falli er ekki þar með
sagt að mönnunum verði stungið í
fangelsi því til þess þarf endanlegan*
dóm. Ef þeir áfrýja niðurstöðunni
ganga þeir lausir þangað til Hæsti-
réttur tekur afstöðu til áfrýjunar-
innar, svo lengi sem þeir gerast ekki
brotlegir við lög. Það þarf alls ekki að
verða á næstunni því samkvæmt upp-
lýsingum frá skrifstofu Hæstaréttar
er áfrýjun Davíðs vegna fyrri dóms
sem kveðinn var upp í febrúar ekki
komin með fasta dagsetningu á dag-
skrá. Sú áfrýjun verður líklega ekki
tekin fyrir fyrr en seinni hluta árs.
Davíð mun því ganga laus fram að
þeim tíma áfrýi hann næsta dómi.
drAttur HJA DÓMSTÓLUNUM »6
Ellefu ára athafnamaður
Upphafið að viðskiptaveldi
Bjarni Þórarinsson, sem er 11 ára gamall, býðst til að slá garða hjá fólki í
sumar fyrir 500 krónur. „Ég er að fara til Danmerkur og ákvað að prófa
þetta til að safna fyrir ferðinni. Það gengur mjög vel,“ segir Bjarni, sem
neitar því ekki að framtakið gæti verið upphafið að næsta viðskiptaveldi Is-
lands. „Ég leigi garðsláttuvélina af pabba og ætla að halda áfram með þetta
í sumar og jafnvel næstu sumur.“
ImWPwm
Stresslosun
með sleggju
Hótel í miðborg Madrídar
á Spáni bauð fjörutíu hótel-
gestum upp á að rústa herbergi
hótelsins með sleggjum. „Til
stóð að gera hótelið upp og við
vildum leyfa fólki að fá útrás
með þessum hætti,“ segir
hótelstjórinn. „Ný rannsókn
sýnir að margir íbúar borg-
arinnar eru haldnir miklu
stressi. Okkur bárust rúmlega
þúsund umsóknir eftir að við
buðum upp á þetta.“
Leigubílstjórar og grunnskóla-
kennarar voru meðal þeirra
sem rústuðu herbergin og
lýstu allir hótelgestirnir yfir
mikilli ánægju með tiltækið.
aí
NEYTENDAVAKTIN j l JvS
Útprentun á stafrænum myndúm
Fyrirtæki Krónur
Hans Petersen 29
Hraðfilman 29
Myndhraði 29
Úlfarsfell 29
Myndval 34
Filmverk 35
Framköllun m.v. 51-100 stk. (10x15) Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
BH USD 62,29 0,23 ▲
ÍÚS GBP 125,53 0,16 ▲
5S DKK 11,40 O ro ro ►
• JPY 0,51 0,02 ▲
H EUR 84,85 0,23 ▲
GENGISVÍSITALA 114,93 0,22 ▲
ÚRVALSVlSITALA 8541,49 1,6 A
Níðingar nálgast
sumarleyfismyndir
Lögregla í Svíþjóð hefur varað
barnafjölskyldur við að birta
ljósmyndir úr sumarfríi sínu í
myndaalbúmum á Netinu, vegna
hættu á að barnaníðingar nálgist
myndir af fáklæddum
börnum og dreifi þeim.
Fjörutíu lán á 90
prósenta reglunni
í byrjun júní hafði íbúðalánasjóður
veitt 40 lán á höfuðborgarsvæðinu
á þessu ári sem ná 90% hlutfalli.
Heildarfjárhæð þessara lána er
537 milljónir króna. Talsmaður
sjóðsins segir þensluna «■ m
ekki honum að kenna. I
Aðstaða kvenfanga
verður betri
„I nýju fangelsiskerfi verða minni
einingar þar sem hægt verður að
hafa konur. Eins og aðstaðan er í
fangelsunum í dag er ekki hægt að
hafa konur sér,“ segir Erlendur Bald-
ursson, afbrotafræðingur \ : jm
hjá Fangelsismálastofnun. T1
MínLyf góð
fyrir neytendur
Matthías Halldórsson landlæknir
telur starfsemi vefsíðunnar sem
kallast MínLyf geta verið til bóta
fyrir neytendur. Hann er mjög
ánægður með það framtak Aðal-
steins Arnarsonar að bjóða
upp á ódýrari lyf frá Svíþjóð. J I O
VEÐRIÐ I DAG
VEÐUR. 2
Barnahúsgögn sem stækka
4IUUiH(íND JUimiUD
Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti
12 ára
6 ára
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is