blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 2
FRETTIR FÖSTUDAGUR 6. JULI 2007 blaöiö Félagsmálaráðherra styrkir átaksverkefni Héraðsdómur Reykjavíkur Sýknaður af nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær ungan erlendan karlmann af ákæru um nauðgun, sem hann var sakaður um að hafa framið á sal- erni í kjallara Hótels Sögu í Reykja- vík aðfaranótt 17. mars síðastliðins. Maðurinn hefur verið í gæsluvarð- haldi allt frá handtöku, en hann hélt því fram að mök hefðu farið fram með vilja stúlkunnar. í ákæru segir að hann hafi með ofbeldi þröngvað stúlkunni til samræðis og annarra kynferðis- maka með því að ýta henni inn á salernisbás og halda henni þar meðan hann kom fram vilja sínum. Dómurum þótti hins vegar ekki sýnt að maðurinn hefði þröngvað konunni til samræðis. aí Færeyjar Kirkjan verður sjálfstæð Færeyska kirkjan verður sjálfstæð þjóðkirkja þegar færeyska lög- þingið kemur saman á Ólafsvöku þann 27. júlí næstkomandi. Karl Sig- urbjörnsson biskup segir færeysku kirkjuna verða sjöttu þjóðkirkjuna á Norðurlöndum. „Hún hefur verið hluti hinnar dönsku, en hér er stigið skref í sjálfstæðisferli Færey- inga sem er áhugavert fyrir okkur íslendinga að fýlgjast með. Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist á Grænlandi.“ Færeyska þjóðkirkjan verður ein minnsta þjóðkirkja í heimi, en um 85 prósent Færeyinga munu tilheyra henni. aí STUTT • HIV og alnæmi I fyrra greind- ust hér 11 sjúklingar með HlV-sýk- ingu. Þar af voru átta karlar og þrjár konur. Tveir karlar og ein kona greindust með alnæmi og einn karlmaður lést af völdum sjúkdómsins á árinu. Þessar tölur benda til þess að HlV-sýking og alnæmi sé enn sjaldgæfur sjúkdómur hér á landi en þó Iandlægur. • Jarðskjálftarannsóknir Island og Indland hafa undirritað fyrsta áfanga samstarfssamnings um jarðskjálftarannsóknir. Islensk tækni við jarðskjálftamælingar gæti bjargað fjölda mannslífa ef hægt yrði að nota hana í öðrum löndum þar sem mannskæðir jarð- skjálftar eru tiðir eins og Indlandi að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings. * Öryggisráðið Utanríkisráð- herra hefur ráðið Kristínu A. Árnadóttur til að stýra fram- boði íslands til Öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna en kosningar fara fram haustið 2008. Kristín hefur stýrt skrifstofu borgar- stjóra undanfarin ár en hefur fengið leyfi meðan hún sinnir verkefninu. • Lekandi Alls greindist 31 ein- staklingur með lekanda á sýkla- fræðideild Landspítala í fyrra og er það mikil aukning frá árinu 2005. Sýkingin greindist oftast í aldurshópnum 20-24 ára og voru karlmenn í meirihluta. Svo virðist sem meirihluti smitaðra hafi smitast á íslandi og er það nýlunda miðað við fyrri ár. Prófaðu Heimaöryggi í tvo mánuði í sumar - ókeypis! Engín krafa er geró um framhaldsviðskipti, gríptu því tækífærið núna. Tilboðið gildir til 15. júlí og er í boði n þeim þéttbýlisstöðum landsins þar sem Öryggismiðstöðin heftir hinmjstuaðila og sinnír útkallsþjónustu. Hringdu i og kynntu þér málið! Launakjör fatlaðra leiðrétt Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra hefur ákveðið að veita sér- stakan styrk til að leiðrétta launakjör fatlaðra ungmenna í tengslum við átaksverkefni ÍTR og Svæðisskrif- stofu um málefni fatlaðra í Reykja- vík. Jóhanna segir styrkinn hljóða upp á tæpa hálfa milljón króna. „Það er ekki hægt að verið sé að brjóta á fötluðum einstaklingum úti á vinnu- markaði með þessum hætti. Það er afar brýnt að fatlaðir og þroskaheftir einstaklingar fái tækifæri á vinnu- markaði," segir Jóhanna. Fjölmiðlar hafa undanfarna daga vakið athygli á því að fötluð ung- menni hefðu ekki fengið greitt fyrir hluta vinnuviku sinnar. „Eftir að hafa skoðað málið var alveg ljóst að verið var að brjóta á þessu fólki þar sem það fékk ekki greitt í samræmi við vinnuframlag sitt. Það er enginn á vinnumarkaðnum sem getur liðið það að fá ekki greitt í samræmi við vinnuframlag sitt og þá samninga sem búið er að gera. Ef þetta mál hefði fengið að liggja kyrrt væru það slæm skilaboð sem yrðu send út á vinnumarkaðinn,“ segir Jóhanna og bætir við að ráðuneytið leggi ríka áherslu á mikilvægi virkrar þátttöku fatlaðra á vinnumarkaði og starfsendurhæfingar. atlii@bladid.net Hlýtur aÖ rýra álit á Hæstarétti ■ Hæstiréttur sýknar íslenska ríkið ■ Mannréttindadómstóll dæmir íslenska ríkið brotlegt Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net „Þetta er mikill áfellisdómur á vinnubrögð Hæstaréttar,“ segir Eggert Isólfsson, faðir Söru Lindar, níu ára stúlku sem er fjölfötluð vegna umtalsverðs heilaskaða sem hún hlaut skömmu eftir fæðingu. Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði stúlkunni bætur vegna læknamistaka í gær. HéraðsdómurReykjavíkurdæmdi íslenska ríkið til að greiða stúlkunni rúmlega 28 milljónir vegna lækna- mistaka við fæðingu hennar en Hæstiréttur sýknaði ríkið eftir að ný gögn höfðu verið lögð fram af læknaráði. „í september 2004 áfrýj- uðum við málinu til Mannréttinda- dómstóls Evrópu þar sem það hefur verið í vinnslu í 3 ár. Mannréttinda- dómstóllinn óskaði eftir alls kyns álitsgerðum og skýrslum og felldi loks dóm okkur í hag sem er loka- punktur á margra ára. ferli,“ segir Eggert. Hæstiréttur sneri dómi Mannréttindadómstóllinn úr- skurðaði stúlkunni rúmar sex millj- ónir í bætur úr íslenska ríkiskass- anum vegna rangrar málsmeðferðar Hæstaréttar. „Fyllsta hlutleysis var ekki gætt því að Hæstiréttur notaði læknaráð til þess að snúa dómnum sér í hag, sem var annars mjög vandaður og vel rökstuddur MANNRÉTTINDI ► I Mannréttindasáttmálan- um er tekið fram að þegnar aðildarríkja hans skuli fá réttláta meðferð fyrir dómi. ► Árið 2003 taldi Mannrétt- indadómstóll Evrópu að brotið hefði verið gegn rétti þegns íslenska ríkisins þar sem tengsl dómara Hæsta- réttar við hinn málsaðilann gætu haft áhrif á niðurstöðu. frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Það er það sem Mannréttindadómstóllinn er að dæma um frá byrjun, en ekki hversu miklar bætur ríkinu beri að greiða vegna læknamistaka,“ segir Eggert. Hlutleysis ekki gætt Hann segir vinnubrögð lækna- ráðs i hæsta máta undarleg. „Ég furða mig á því að læknaráð, sem skipað er einstaklingum úr sama fyrirtæki og þeir sem mistökin gera, hafi ekki rænu á því að lýsa sig vanhæft.“ Hann segir að eðlilegast hefði verið að fá hlutlausa aðila til að meta málið. Aðspurður umiíðan dóttur sinnar, Söru Lindar, segir Eggert að hún sé mjög ósjálfbjdfga og dvelji nú á heimili fyrir börn á Holtavegi. „Þessi niðurstaoa þýðir að það er fallist á með unibjóðanda mínum að málsmeðferðin sem notast var við í máli hennar uppfyllir ekki þær kröfur sem Mannréttindasátt- málinn gerir,“ segir Heimir Örn Herbertsson, lögmaður Söru Lindar. „Það verður tekið til athugunar í framhaldi hvort ekki sé unnt að rétta hlut hennar til fulls. Hún fær ákveðnar skaðabætur, sem taka þó ekki mið af kröfum sem voru upp- haflega settar fram, sem er umtals- verð viðurkenning." Rigning sunnan til Austan 3-8 m/s, rigning með köflum sunnan til en skýjað norðanlands. Rigning norðaustanlands í kvöld. Hiti yfirleitt 8 til 14 stig. Áfram votviðri Norðaustan 3-8 m/s og dálítil rigning í flestum landshlutum, fyrst norðaustan- lands en síðan suðvestanlands. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast suðvestanlands. VÍOA U(W HfcllVl Algarve 29 Halifax 16 New York 23 Amsterdam 17 Hamborg 20 Nuuk 12 Ankara 37 Helsinki 23 Orlando 24 Barcelona 24 Kaupmannaböfn 15 Osló 19 Berlin 17 London 18 Palma 25 Chicago 27 Madrid 28 Paris . 19 Dublin 13 Milanó 26 Prag 22 Frankfurt 16 liLr.Mdntreal 19 otb2 Stokkbólmur ’ci'l'oS 23 Glasgow 0008-0£^:im'i2 Þórsfófó80^:im12 11 heimsótt Knút Sérstaklega var haldið upp á það í gær að ein milljón manns hefur nú heimsótt ísbjarnarhún- inn Knút í dýragarðinn í Berlín, höfuðborg Þýskalands. Aðsókn í dýragarðinn hefur verið mun meiri í ár en í fyrra og rekja for- svarsmenn dýragarðsins það sér í lagi til Knúts, auk þess sem gott veður hefur ekki skemmt fyrir. ai Leiðrétt Ritstjóm Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera mlssagt'l biaðinu. OöE^-g^gr'éttíngar biriffii48'jafiteS á síðu 2.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.