blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 blaðið Skilorð fyrir ofbeldi í Eyjum Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann í 45 daga fangelsi vegna líkamsárásar. Ákærða var einnig gert að greiða sakarkostnað og læknisvottorð, samtals rúmar hundrað þúsund krónur. Hinn dæmdi réðst að manni við salernisaðstöðu í Herjólfsdal á Þjóðhátíð og sparkaði af miklu afli í höfuð hans. Maðurinn missti í kjölfarið meðvitund, hlaut heiíahristing og mar. Hinn dæmdi hefur áður verið sviptur ökurétti og greitt sekt vegna fíkniefnabrots. bm Sænsk lyf á þriðjungsverði miðað við íslensk Ódýr lyf markmið heilbrigðisráðuneytis Netlyf íslenskir lyfjaframleiðend- #ur eiga nú í samkeppni við lyf keypt í gegnum Internetið „Ég fagna ódýrum lyfjum svo lengi sem þau uppfylla fagleg skilyrði," segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra aðspurður um sænsk lyf sem kaupa má í gegnum vefsíðuna www.minlyf.net, á þriðj- ungsverði miðað við sams konar ís- lensk lyf. „Það er ekki mitt að kveða upp úr um hvort þetta sé löglegt, til þess eru eftirlitsaðilar." Guðlaugur segir að það sé mark- mið að lækka lyfjaverð á íslandi með því að opna markaði enn frekar og auka samkeppni að uppfylltum fag- legum kröfum. Þuríður Hjartardóttir, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtakanna, tekur í sama streng og Guðlaugur. ,Við fögnum lágu lyfjaverði og höfum lengi hvatt stjórnvöld til þess að leita leiða til þess að lækka það.“ Þuríður segir ennfremur aðgang Islendinga að netvörum mikilvægan. „Að geta keypt vörur á heimsmarkaðsverði í gegnum Netið er íslenskum neyt- endum mjög mikilvægt.“ Guðlaugur segir að skoðun á for- sendum fyrir lyfjalækkun sé á dag- skrá í heilbrigðisráðuneytinu. „Það er mannanna verk hvernig markað- urinn er uppbyggður og auðvitað er nauðsynlegt að hann sé sem opn- astur þannig að hér sé hægt að selja góð og ódýr lyf og það er eitt af því sem ég hef einsett mér að beina kröftum að.“ Á heimasíðu Neytendasamtak- anna kemur fram að Lyfjastofnun sé að kanna hvort fyrrnefnd lyf stand- ist íslensk lög. „Ef þetta er ólöglegt þarf einfaldlega að breyta nú þegar úreltum lögum. Því verður ekki trúað fyrr en á reynir að heilbrigðis- ráðherra vilji skerða möguleika neyt- enda til að kaupa lyf á lægra verði en boðið er upp á í apótekum hér á landi,“ segir ennfremur á heimasíðu samtakanna. bjorg@bladid.net Hryðjuverka- maður ekki hér Ekkert bendir til þess að meintur hryðjuverkamaður sé staddur hér á landi, samkvæmt upplýsingum greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Málið var til skoðunar hjá lögreglunni í gær. Netúgáfa indverska dagblaðsins The Hindu greindi frá því í gærmorgun að indverskur maður, Kafeel Ahmed, sem talinn er tengjast sprengjutilræð- unum í Englandi og Skotlandi fyrir skemmstu, væri staddur hér á landi. Hann er talinn náinn vinur eða ætt- ingi tveggja lækna sem eru í haldi í Ástralíu og Bretlandi vegna málsins. 1 tilkynningu ríkislögreglustjóra er sérstaklega tekið fram að greining- ardeildin hafi kannað sannleiksgildi fréttarinnar og ekkert bendi til að maðurinn sé á íslandi. wmvt-xfíjj Súpersól til Búlgaríu 9. og 16. júlí frá kr. 29.995 Terra Nova býður nú síðustu sætin til Golden Sands í Búlgan'u í júlí á ótrúlegum kjörum. Griptu tækifærið og skelltu þér til þessa vin- sæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. Kr. 29.995 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn i hótelher- bergi/ stúdíð/íbúð í viku. Súpersól tilboð, 9. og 16. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann. Kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli i viku. Súpersól tilboð, 9. og 16. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann. (% Terra Nova PRIMEfíA GROUP Skógarhlið 18-105 Reykjavík Simi: 591 9000 • www.terranova.is . Akureyri sími: 461 1099 Stóriðjuumræða hækkar íbúðaverð íbúðaverð hækkar hraðar þar sem líkur eru á álveri ■ Fullyrt að stóriðjuumræðan hafi áhrif Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net íbúðaverð í þéttbýliskjörnum sem hafa verið orðaðir við að fá álver við bæjarfótinn hækkar hlutfallslega meira en í nágrannabæjum þeirra. 1 Vogum á Vatnsleysuströnd hefur íbúðaverð til að mynda hækkað um 87,5 prósent síðan 2004 ef miðað er við meðalfermetraverð sérbýla og fjölbýla. Keilisnes, sem tilheyrir Vogum, hefur þrálátlega verið nefnt sem mögulegur staður fyrir nýtt ál- ver á undanförnum misserum. Samkvæmt úttekt sem Fasteigna- mat ríkisins gerði fyrir Blaðið var meðalfermetraverð í Vogum 91,1 þúsund krónur árið 2004. Það mæld- ist 170,8 þúsund fyrstu sex mánuði ársins í ár og kostar íbúðarhúsnæði í Vogum um 23,6 milljónir króna að meðaltali í dag. I nágrannasveitarfélaginu Grinda- vík hefur fermetraverðið ekki hækkað jafn hratt á sama tímabili, eða um 54,5 prósent. Þar kostar íbúð- arhúsnæði um 18,7 milljónir króna að meðaltali, 26 prósentum minna en í Vogum. Til frekari samanburðar hefur íbúðarverð í Reykjavíkhækkað um 71 prósent frá 2004 og kostar íbúð- arhúsnæði í höfuðborginni að meðal- tali tæpar 33 milljónir króna. Róbert Ragnarsson, sveitarstjóri i Vogum, segist þó telja að umræða um mögulegt álver á Keilisnesi sé ekki ástæða þessara miklu hækkana. „Ég held að það sé ekki hægt að tengja þetta við stóriðju heldur fyrst og fremst að það er búið að byggja hér upp mikið af húsnæði. Við höfum svo verið að veita mjög góða þjón- ustu, sérstaklega fyrir fjölskyldufólk. ■ Reykjavík I Akureyrl 250 | ‘ Grindavik Meðal kaupverð íbúða árin 2004 til 2007, í þúsundum króna pr. fermetra verðið hafi einfaldlega verið of lágt hér áður fyrr. Það hefur átt sér stað leiðrétting á því og markaðurinn brugðist við henni.“ Róbert segir nálægðina við höfuð- borgarsvæðið og Reykjanesbæ einnig skipta miklu máli. „Samgöngur hingað eru miklu greiðari en annars staðar. Það er enginn fjallvegur og tvöföldun nánast alla leiðina hingað.“ Umræður um álver á Bakka við Húsavík hafa staðið yfir árum saman. Þar hefur íbúðaverðið hækkað um 80,4 prósent frá árinu 2004. Á Akur- eyri, sem er fjölmennasti þéttbýlis- kjarni Norðurlands, hefur hækkunin ekki verið jafn hröð, en þar hefur ibúðaverð hækkað um 62 prósent á sama tímabili. Guðbjartur Ellert Jónsson, stað- gengill sveitarstjóra í Norðurþingi sem Húsavík tilheyrir, segist viss um að stóriðjuumræðan hafi haft áhrif.,„Ég held að ég geti alveg full- v1pJáfMhhafi haftáhrif. Það eru FASTEIGNAVERÐ W. íbúðaverð hækkar hraðar í ^ bæjum sem tengjast mögu- legri álversuppbyggingu W Hefur hækkað um 87,5 ™ prósent í Vogum og um 80,4 prósent á Húsavík frá 2004 W Á sama tíma hefur það " hækkað um 54,5 prósent í Grindavík og 62% á Akureyri ákveðnar væntingar sem hafa átt sér stað frá árinu 2004 sem tengjast klárlega stóriðjuumræðunni. Það er þó ekki eingöngu hún sem orsakar þetta því breytingar á lánum og lána- fyrirkomulagi hafa náttúrlega líka áhrif hér eins og annars staðar. Mér skilst engu að síður að það hafi alltaf gengið vel að selja húsnæði á Húsa- vík, óháð því hvort verðið á því er hátt eða lágt.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.