blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 12

blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 12
12 FRETTIR FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 blaðiö í varðhald vegna áreitni Loftslagshlýnun hefur áhrif á fiskistofna Bleikjuleysi í Vífilsstaðavatni Héraðsdómur Reykjavíkur úr- skurðaði í gær karlmann á fertugs- aldri í gæsluvarðhald til 13. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu vegna gruns um að hann hefði áreitt fjórar stúlkur á aldr- inum 6 til 11 ára kynferðislega. Maðurinn var handtekinn í Breið- holti í fyrrakvöld þar sem hann hafði lokkað til sín börn með því að nota hamstra til að sýna þeim. Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglu áður en talið er að hann sé andlega vanheill. Gæslu- varðhaldskrafan var sett fram vegna rannsóknarhagsmuna. Engar játningar liggja fyrir. mbl.is Veiðimenn í Vífilsstaðavatni kvarta undan því að lítið annað en smásíli bíti á agn þeirra og sér- staklega hefur bleikjuleysi gert vart við sig. Erla Bil Bjarnardóttir, garðyrkjustjóri Garðabæjar, er um- sjónarmaður vatnsins. Aðspurð um bleikjuleysi í vatninu segir Erla að yfirleitt sé minni veiði í því um miðsumar. „í Vífilsstaðavatn hefur aldrei verið sleppt óviðkomandi fiskistofnum en það er mælt með því við bæjarfélagið að láta veiða úr vatninu til þess að halda jafnvægi.“ Erla segir jafnframt að verið sé að vinna að því að friðlýsa vatnið. „Almennt séð hefur bleikjan verið að láta undan síga,“ segir Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur og deildarstjóri Veiðimálastofnunar, um bleikjuleysi á landsvísu. „Til að mynda er bleikjan 5% af fiskum í vötnum í Svínadal sem hún var 95% af fyrir 15 árum.“ Sigurður Már segir að hugsanlega hrekist bleikjan burt vegna loftslags- hlýnunar. „Hún er fiskur sem vill vera í köldu vatni og plumar sig ein- faldlega ekki eins vel þegar hlý tíma- bil koma.“ bjorg@bladid.net Ferðamaður sviptur leyfinu Lögreglan á Akureyri stöðv- aði ítalskan ferðamann á fimmtugsaldri í gær fyrir ofsaakstur. Maðurinn mældist á 171 km hraða í Hörgárdal. Hann var látinn greiða 112.500 króna sekt á staðnum og var jafnframt sviptur ökuleyfinu. Að sögn lögreglu gátu ferðafé- lagar hans tekið við akstrinum. Bílstjórinn mun ekki hafa verið sériega óánægður með að þurfa að borga sektina, en öllu verra fannst honum að sögn lögreglu að missa ökuskírteinið. mbl.is Dæmdur fyrir dópsölu Karlmaður var í gær dæmdur til þess að greiða 142.500 króna sekt eða sæta tíu daga fangelsi fyrir að hafa haft í fórum sínum 14,94 grömm af amfetamíni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Nýtt þorp rís í haust ■ Leikskóli, verslun og kaffihús fyrir íbúana á gamla vamarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli ■ Risafyrirtækin Yahoo og Microsoft skoða möguleika á gagnageymslum Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Það þarf að þróa ákveðna þjón- ustu á svæðinu í kringum náms- mannaíbúðirnar og koma á lagg- irnar leikskóla, verslun, kaffihúsi og fleira í þeim dúr. Það er meiningin að þetta verði allt komið í gagnið í haust,“ segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, um þær fram- kvæmdir sem standa fyrir dyrum í sumar á því svæði á Keflavíkur- flugvelli sem áður var varnarsvæði. Auglýstar hafa verið til leigu 300 námsmannaíbúðir á svæðinu en umsóknir voru rúmlega 300. Kanna á hvort hægt verði að fjölga leigu- íbúðunum sem verða bæði fyrir námsmenn á vegum háskólans sem tekur til starfa þar í haust og há- skólanema utan svæðisins. Stefnt er að því að á svæðinu verði þekkingarsamfélag og þjónusta við það, að sögn Kjartans. „Þetta skýr- ist betur á næstu misserum. Það eru í gangi samningaviðræður um sölu á ákveðnum byggingum vegna upp- byggingar í tengslum við þekkingu og fleira í þeim dúr. í öðru tilvikinu er um íslenska aðila að ræða og í hinu um bæði íslenska og erlenda aðila.“ Kjartan segir risafyrirtækin Ya- hoo og Microsoft enn vera að hugsa sinn gang en fulltrúar fyrirtækj- anna komu hingað fyrir nokkrum vikum til að kanna möguleikana á að koma upp gagnageymslu á svæð- inu. „Þeir eru núna að skoða fleiri staði en ísland. Við markaðssetn- ingu á svæðinu leggjum við áherslu á nálægðina við flugvöllinn og orkuna sem við getum boðið. Víða um heim er takmarkað rými til STAÐREYNDIR ► Markmið og tilgangur Þróunarfélags Keflavíkur- fiugvallar er að leiða þróun og umbreytingu á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkur- flugvelli. ► Hlutafélagið Keilir var stofnað f maí síðastliðnum um miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Keflavíkur- flugvelli. uppbyggingar við flugvelli en við höfum mikið landrými til frekari þróunar. Sú staðreynd vekur áhuga margra. Þar að auki erum við með orkuver í túnfætinum. Héðan eru bara 15 km í næstu virkjun," bendir Kjartan á. Mörg tilboð bárust í vöruhús og flugskýli sem auglýst voru til sölu fyrr á árinu, að sögn Kjartans. „Til- boðin voru með tilliti til svipaðrar starfsemi og er fyrir, það er dæmi- gerðs iðnaðar og þjónustustarfsemi. Sumir höfðu áhuga á tengingu við háskólann og aðstöðu fyrir ný- sköpun og fleira í þeim dúr.“ Viðræður milli íslenskra yfir- valda og NATO um sambærilega yfirfærslu á eignum og var á eignum bandaríska hersins hefjast mögulega í haust, að þvi er Kjartan greinir frá. „Það eru nokkrar bygg- ingar innan flugsvæðisins, flugskýli og fleira, enn í eigu Nató og einnig nokkrar innan okkar starfsvæðis, vöruskemmaogskrifstofubyggingar. Meirihluti bygginganna er hins vegar kominn í eigu íslendinga.“ ÞEKKIRÞÚTIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Sverrir Einarsson Hcrmann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim tii aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaöur • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Álftanesvegi breytt í vinnusvæði Námuvinnsla við veg er síðasta sort Yfir Álftanesvegi liggur ryk- mökkur þegar vel viðrar vegna grjót- vinnslu og stórtækar vinnuvélar sem teppa umferð eru þar daglegt brauð segir Guðmundur G. Gunnarsson sem situr í bæjarstjórn Álftaness. „Mér finnst rosalegt að verktakar Garðabæjar skuli einfaldlega merkja fjölfarinn veginn sem vinnusvæði, og ekki gera neinar ráðstafanir til að beina umferð eitthvert annað. Um veginn fara ekki bara Álftnesingar, heldur einnig Garðbæingar og Hafn- firðingar sem búa í norðurhluta bæj- arins,“ segir Guðmundur. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan eru vinnvélar staðsettar upp við veginn og mylja grjót sem notað er til uppfyllingar. „Það ekkert óeðli- legt við sjálfa vegagerðina, en að vera með hálfgerða námuvinnslu ofan í veginum finnst mér alveg síðasta sort, og ég er ekki einn um þá skoðun. Og ekki bætir úr skák að þetta skuli, eins og reyndar viðar, vera illa merkt í ofanálag," segir Guðmundur. hlynur@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.