blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007
blaðiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Núverandi stýrivextir
veita umtaisvert
aðhald gagnvart
verðbólguþrýstingi.
Kaupþing hækkar húsnæðisvexti
Kaupþing hefur ákveðið að hækka vexti á nýjum íbúðalánum um 0,2;
prósent í dag, úr 4,95% f 5,2%. Vaxtahækkunin tekur aðeins til nýrra
lánveitinga og gildir ekki fyrir þegar veitt lán þar sem þau lán eru með
fasta vexti út allan lánstímann.
í tilkynningu frá bankanum segir að síðasta vaxtabreyting á íbúða-
lánum Kaupþings hafi verið í desember 2006 en frá þeim tíma hafi
verðtryggðir vextir íbúðabréfa á markaði hækkað umtalsvert. Þessi
vaxtahækkun nú sé til að fylgja þeirri þróun eftir. Vaxtabreytingunni
sé einnig ætlað að mæta þeim mikla mun sem myndast hafi á óverð-
tryggðum og verðtryggðum vöxtum í kjölfar lækkandi verðbólgu.
25 milljarða
lánsheimild
Hf. Eimskipafélag íslands hefur
samið um lánsheimild upp á allt
að 300 milljónir evra til fimm
ára eða sem samsvarar um 25
milljörðum íslenskra króna við
ABN AMRO Bank í London. Láns-
heimild þessi er sú stærsta sem
Hf. Eimskipafélags fslands hefur
stofnað til.
Lánsfjármagnið verður nýtt til
frekari fjárfestinga og vaxtar í
flutningastarfsemi og kæli- og
frystigeymslum í samræmi við
stefnu félagsins en fyrir er félagið
leiðandi í hitastýrðum flutn-
ingum á alþjóðavisu.
Alcan lokar aftur
á Alcoa
Forsvarsmenn kanadíska álfyr-
irtækisins Alcan hafa enn einu
sinni hafnað samningaumleit-
unum bandaríska álfyrirtækisins
Alcoa.
Á dögunum gaf bandaríska fyrir-
tækið í skyn að það myndi hugsan-
lega hækka 28 milljóna dollara
fjandsamlegt yfirtökutilboð sitt í
Alcan. Alcoa setti þó þau skilyrði
fyrir hærra tilboði að fulltrúar
fyrirtækisins fengju fyrst aðgang
að trúnaðarupplýsingum og bók-
haldi Alcan.
Samkvæmt vefútgáfu kanadíska
dagblaðsins Globe and Mail eru
einkum tvær ástæður fyrir því að
Alcan vildi ekki frekari samninga-
viðræður við Alcoa. í fyrsta lagi
að Alcoa virðist ekki hafa viljað
skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu
vegna gagnanna og bókhaldsins.
í öðru lagi að fulltrúar Alcan séu
nálægt því að ná samningum við
annað fyrirtæki. í því samhengi
hefur stærsta námafyrirtæki í
heimi, BHP Billiton, helst verið
nefnt. elias@bladid.net
Glitnir eignast 91% í Leimdörfer
Glitnir Property Holding AS lauk í gær kaupum á 91% hlut í Leimdör-
fer Holding AB. Leimdörfer er ráðgjafarfyrirtæki á sænska og finnska
fasteignamarkaðnum. Fyrir kaupin átti Glitnir Property Holding 100%
hlut í Glitni Property Group, sem er ráðgjafarfyrirtæki á norska fast-
eignamarkaðnum með aðsetur í Ósló, samkvæmt tilkynningu.
Glitnir Property Group leggur áherslu á miðlun, sambankalán og fjár-
málaráðgjöf í fasteignaviðskiptum. mbl.is
Kauptu EarPlanes
eyrnatappa med þrýsti jafnara
og njóttu þess að fljúga ón verkja eða
Clæsibæ ' Álfheimum 74 1104 Reykjavík j sími: 568 6880 www.heyrnartaekni.is
Stýrivextir munu
ekki lækka í bráð
H Verðbólga hjaðnar hægar en gert var ráð fyrir B Gengi krónunn-
ar hækkar meira en reiknað var með
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Ekki eru horfur á að stýrivextir
Seðlabanka íslands lækki fyrr en á
fyrri helmingi næsta árs, eigi verð-
bólga að vera við markmið bankans
á því ári og það nást að fullu árið
2009. Þetta kom fram í máli Davíðs
Oddssonar, formannsbankastjórnar
Seðlabanka íslands, á blaðamanna-
fundi í gær í tilefni af vaxtaákvörð-
unardegi bankans. Tilkynnt var að
stýrivextir yrðu óbreyttir í bili, 13,3
prósent. Áður höfðu spámenn gert
ráð fyrir því að stýrivaxtalækkunin
myndi hefjast í lokþessa árs.
Verðbólga hjaðnar hægt
í stefnuyfirlýsingu bankastjórnar
Seðlabankans kemur fram að verð-
bólga hafi hjaðnað hægar en gert
var ráð fyrir í spá bankans frá því
í vor, þrátt fyrir að gengi krónunnar
hafi hækkað meira en reiknað var
með. Verðbólga mælist nú 4 pró-
sent, en áætlað er að undirliggjandi
verðbólga sé um 6 prósent. Mark-
mið Seðlabankans er hins vegar
að halda verðbólgu sem næst 2,5
STÝRIVEXTIR
Seðlabanki íslands: 13,3%
Englandsbanki: 5,75%
Seðlabanki Evrópu: 4%
► Seðlabanki USA: 5,25%
Sænski Seðlabankinn: 3,5%
prósentustigum.
„Verðbólguhorfur til næsta árs
hafa versnað síðan í mars og útlit er
fyrir að verðbólgumarkmiðið náist
síðar jafnvel þótt stýrivöxtum verði
haldið óbrey ttum lengur en reiknað
var með. Spáin nú bendir til þess að
ekki verði unnt að lækka stýrivexti
fyrr en á fyrri helmingi næsta árs
eigi viðunandi horfur að vera á að
verðbólga verði við markmið á því
ári og að það náist að fullu snemma
árs 2009,“ segir í yfirlýsingunni.
Gengi krónu og raunvextir
Davíð Oddsson segir ákvörð-
unina um að halda stýrivöxtum
óbreyttum þrátt fyrir verri verð-
bólguhorfur stafa annars vegar af
háum raunstýrivöxtum og hins
vegar háu gengi krónunnar. „Raun-
stýrivextir eru orðnir háir og hafa
haft vaxandi áhrif á ávöxtun bæði
óverðtryggðra og verðtryggðra
skuldabréfa. Gengi krónunnar
hefur einnig hækkað umfram spár
síðan í mars. Núverandi stýrivextir
veita því umtalsvert aðhald gagn-
vart verðbólguþrýstingi.“
Hækkun í Bretlandi
í gær var einnig vaxtaákvörðun-
ardagur á evrusvæðinu og ákvað
stjórn Seðlabanka Evrópu að halda
stýrivöxtum óbreyttum í 4 pró-
sentum. Síðan í lok árs 2005 hafa
stýrivextir bankans hækkað 8
sinnum, ekki síst sökum launahækk-
ana á svæðinu. Gera sérfræðingar
hjá bandaríska fjármálatímaritinu
Bloomberg ráð fyrir því að enn ein
hækkunin verði í lok sumars, og
muni stýrivextir Seðlabanka Evr-
ópu þá verða 4,25 prósent.
Þá tilkynnti Englandsbanki um
0,25 prósenta hækkun stýrivaxta í
gær. Hækka þeir úr 5,50 prósentust-
igum í 5,75.
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á felandi, 5. júli 2007
Viöskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð i lok dags:
Félög í úrvalsvísitölu verð breyting viösk.verös viðskipta dagsins Kaup Sala
▼ Actavis Group hf. 89,00 -0,67% 5.7.2007 4 498.934 88,00 89,60
A Atorka Group hf. 9,02 4,52% 5.7.2007 33 107.486.272 8,95 9,02
▲ Bakkavör Group hf. 69,70 0,29% 5.7.2007 19 445.131.125 69,50 70,20
▲ Exista hf. 36,30 1,11% 5.7.2007 39 277.141.368 36,10 36,30
▼ FL Group hf. 29,80 -0,83% 5.7.2007 14 168.957.770 29,75 29,80
▼ Glitnir banki hf. 28,80 ■0,35% 5.7.2007 46 160.869.089 28,80 28,85
▼ Hf. Eimskipafélag íslands 39,90 -0,50% 5.7.2007 12 19.903.915 39,65 40,00
▲ lcelandair Group hf. 29,35 1,38% 5.7.2007 4 73.275.000 29,30 29,40
▼ Kaupþing banki hf. 1185,00 -0,42% 5.7.2007 87 713.291.469 1185,00 1187,00
T Landsbanki íslands hf. 38,70 ■1,28% 5.7.2007 67 821.601.303 38,70 38,80
Mosaic Fashions hf. 17,00 5.7.2007 3 11.135.000 17,00 17,30
Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 22,35 5.7.2007 127 1.064.397.158 22,25 22,35
▲ Teymi hf. 5,30 0,95% 5.7.2007 9 15.246.592 5,28 5,30
▲ Össur hf. 108,00 1,41% 5.7.2007 12 32.746.822 107,50 108,00
Önnur bréf á Aðailista
▼ 365 hf. 3,40 -1,45% 5.7.2007 5 2.837.280 3,40 3,42
▼ Alfesca hf. 5,74 ■0,69% 5.7.2007 3 2.493.190 5,74 5,80
▲ Atlantic Petroleum P/F 1067,00 0,09% 5.7.2007 2 634.537 900,00 1067,00
♦ Flaga Group hf. 1,90 0,00% 29.6.2007 - 1,90 1,92
▲ Foroya Bank 236,50 1,50% 5.7.2007 35 12.115.269 230,00 236,50
♦ lcelandic Group hf. 6,40 0,00% 5.7.2007 1 6.400.000 6,35 6,44
▲ Marel hf. 89,60 4,19% 5.7.2007 26 139.646.260 89,60 89,80
♦ Nýherji hf. 19,20 0,00% 21.6.2007 - - 19,80
♦ Tryggingamiðstöðin hf. 39,30 0,00% 20.6.2007 - - 39,25 39,65
♦ Vinnslustöðin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 - - 8,50
First North á íslandi
▼ Century Aluminium Co. 3465,00 ■0,14% 5.7.2007 4 41.490.000 3456,00 3475,00
♦ H8 Grandí hf. 12,00 0,00% 2.7.2007 - ., . 7
♦ Hampiöjan hf. 7,00 0,00% 20.6.2007 1. 7.70
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX
voru með bréf Straums-Burðaráss,
fyrir 1,1 milljarð króna. Næstmest
viðskipti voru með bréf Landsbank-
ans, eða fyrir 800 milljónir.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Atorku, 4,52%. Bréf Marels hækk-
uðu næstmest, eða um 4,19%.
• Mesta lækkunin í gær var á
bréfum 365,1,45%. Bréf ICEQ verð-
bréfasjóðs lækkuðu um 1,30%.
• Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,28% og stóð í 8.519 stigum í lok
dags.
• fslenska krónan styrktist um
0,96% í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitaIan
lækkaði um 0,55% í gær og FTSE-
vísitalan í Bretlandi um 0,6%.
Nikkei-vísitalan í Japan hækkaði
um 1,3%.