blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 20
ÖSTUDAGUR 6. JÚLí 20U7 bíaúið LÍFSSTÍLLHELGIN helgin@bladid.net Við ætlum að sjá til þess að allir gestir írskra daga muni eiga ánægjulegar stundir á Skaganum um helgina. UMHELGINA írskir dagar á Akranesi miklum fjölda í ár þar sem veður- guðirnir virðast ætla að vera okkur hliðhollir. Það er nýbúið að gera tjaldsvæðið upp og við getum tekið á móti fleiri hundruð manns,“ segir Tómas. Mikil gæsla Mikil gæsla verður á Akranesi meðan á hátíðinni stendur. „Það hefur oft loðað við svona hátíðir að eftir að skipulagðri dagskrá lýkur taki við gleðskapur ungmenna. Við leggjum mikla áherslu á að hérna verði ekkert unglingafyllirí og ætlum að koma í veg fyrir svoleiðis uppákomur með góðri og skipu- AKRANES - Akranes fékk kaupstaðar- réttindi árið 1942. W. Strætó gengur á milli Akra- ness og Reykjavíkur. 6123 íbúar eru á Akranesi. lagðri gæslu. Við ætlum að sjá til þess að allir gestir írskra daga eigi ánægjulegar stundir á Skaganum um helgina," segir Tómas og bætir við að frítt sé á alla viðburði nema Lopapeysuballið. • Akureyri I Ketilhúsinu verða haldnir föstudagshádegistón- leikar með Hlöðver Sigurðssyni tenór, Þórunni Marinósdóttur sópran og Antoníu Hevesi pí- anóleikara. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.00. • Snæfellsjökul! Helgiganga undir jökli dagana 6.-7. júlí. Gangan er á vegum þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Ingjaldshóls- kirkju. Leiðsögumenn verða með í för. • Jet Black Joe Á laugardaginn mun stórhljómsveitin Jet Black Joe troða upp á Gauknum. Ballið byrjar klukkan 23.00. • Goslokahátíð Eyjamenn halda goslokahátíð um helgina. Hátíðin hefst á föstudag og lýkur á sunnudag. Boðið verður upp á fjölskyldudagskrá alla helgina. • Bolungarvík Markaðsdagar verða á Bolungarvík um helgina. Sölubásar, tónleikar og dans- leikir eru meðal þess sem boðið verður upp á. • Players Gleðisveitin Grei- farnir mun spila á Players á föstudagskvöldið. Dansleikur- inn byrjar klukkan 23.00. • Fornleifaskóli Börnum á aldrinum 6-12 ára gefst tækifæri til að reyna fyrir sér í hlutverki fornleifafræðinga. Þetta hefst klukkan 13.00 við Furulund á Þingvöllum. • Stykkishólmur Sumartón- leikaröð í Stykkishólmskirkju. TRES-Tríó Reynis Sigurðssonar leikur frábæran djass, grípandi tangó og suðræna sveiflu. Tón- leikarnir eru á sunnudaginn og hefjast kl 16.00. • Metalkvöld Helstu þunga- rokkshljómsveitir landsins munu leiða saman hesta sína í allsherjar metalkvöldi á Gauknum. Tónleikarnir eru í kvöld og hefjast klukkan 22.00. Ekkert unglingafyllirí Akranesbær býður upp á hátíð sem ber yfirskrift- ina írskir dagar. Hátíðin er haldin í sjöunda sinn um helgina. Eftir Lovísu Hilmarsdóttur lovisa@bladid.net Irskir dagar á Akranesi verða haldnir í sjöunda skipti í ár og hefur hátíðin vaxið og dafnað með hverju árinu. Gestum fer stöð- ugt fjölgandi og á síðasta ári var algjört metár hvað það varðar. I ár ætla Skagamenn að leggja enn meiri áherslu á afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Að sögn Tómasar Guðmundssonar, markaðs- og at- vinnufulltrúa Akranesbæjar, hefur umfang hátíðarinnar tvöfaldast á milli ára. „Áherslurnar eru með aðeins breyttu sniði þetta árið. Við ætlum að virkja gestina. Flestir við- burðir miðast við að fólk taki þátt í þeim frekar en að standa og horfa á. Með þessum breytingum erum við að gera hátíðina meira lifandi og eft- irminnilegri fyrir fólk. Miðbærinn verður miðpunktur hátíðarinnar í ár, aðalgatan verður lokuð og þar mun fara fram skipulögð dagskrá. Einnig verður mikið um að vera á Langasandi og á íþróttaleikvöllum," segir Tómas. Rauðhærðasti íslendingurinn Tómas segir að landsþekktir lista- menn muni skemmta í bland við leiki og ýmsa aðra afþreyingu. Það verður skipulögð dagskrá víðs vegar um bæinn alla helgina, körfubolta- mót fyrir ömmur, þyrluútsýnisflug, sandkastalakeppni, leikjadagur og kvöldvaka með Stuðmönnum svo eitthvað sé nefnt. Sú hefð hefur myndast að á hverju ári er valinn rauðhærðasti Islendingurinn og myndast alltaf skemmtileg stemn- ing í kringum það. Hápunktur há- tlðarinnar er á laugardagskvöldinu þegar hið svokallaða Lopapeysu- ball verður haldið á bryggjunni. Þar munu Bubbi Morthens, Raggi Bjarna og Buffið skemmta fólki fram eftir nóttu. Brottfluttir Skagamenn Að sögn Tómasar eru brottfluttir Skagamenn meirihluti gesta á há- tíðinni. „Þessi hátíð er mikið sótt af brottfluttum Skagamönnum, en það hefur aukist til muna að gestir komi alls staðar að af landinu. Bæj- arfélagið tvöfaldast á meðan hátíðin stendur yfir og við búumst við sv*- Kátína á írskum dögum „Flestir viðburðir miðast að því að fólk taki þátt í þeim frekar en að standa og horfa á.“ Þjóðlagahátíð á Siglufirði Þjóðlagahátíðin á Siglufirði er alhliða tónlistarhátíð sem á rætur sínar i þjóðlagaarfinum. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 2000 og hana sækja hundruð innlendra og erlendra gesta. Á hátíðinni hefur tónlist fjölmargra þjóða verið kynnt. Gestir munu meðal annars koma frá Armeníu og kvnna þjóðlagatónlist sína. Ingibjörg Ásgeirsdóttir er i hópi aðstandenda hátíðarinnar og hún segir hana verða vinsælli með hverju árinu. „Hátíðin byrjaði á miðvikudag- inn og mun standa fram á sunnudag. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er Rlma og koma kvæðamenn á alla tónleika og kveða rímur. Auk tónleika er boðið upp á fjölmörg námskeið, bæði í tón- list og handverki, gömlu og nýju. I ár er boðið upp á sérstakt námskeið í gyðingatónlist. Við verðum með glímunámskeið í fyrsta skipti, þar sem gestum er boðið upp á að kynn- ast íslenskri glímu,“ segir Ingibjörg. Aðspurð segir Ingibjörg að tilgangur hátíðarinnar séað hvetja til varð- veislu íslenskra þjóðlaga, stuðla að ný- sköpun íslenskrar tónlistar og varpa ljósi á menningararf íslendinga og annarra þjóða. I gegnum árin höfum við fengið gesti víðsvegar að úr heim- inum sem hafa sett skemmtilegan svip á hátíðina,” segir Ingibjörg og bætir við að reynt sé að höfða til allra fjölskyldunnar á þjóðlagadögum. j Þjóðlagasetrið á Siglufirði Ymislegt I verður í boði á þjóðlagahátið, meðal i annars glímunámskeið og gyðingatónlist —.__________iii-:., • Gljúfrasteinn Hafdís Vigfús- dóttir flautuleikari og Kristján Bragason píanóleikari munu spila á stofutónleikum á Gljúfra- steini. Tónleikarnir eru á sunnu- daginn og hefjast klukkan 16.00. LÁTTU VITA Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net +

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.