blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 22
22
FOSTUDAGUR 6. JULI 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@bladid.net
En án gríns er auðvitað gaman að keyra
flottan bíi og sjá fólk snúa sig úr háls-
liðnum og rétta upp þumalinn
Sex metra langur
Cadillac blæjubíll
Árni Baldursson er stoltur eig-
andi Cadillac De Ville-blæjubíls,
árgerð 1964, sem hann keypti á
eBay fyrir fjórum árum.
„Ég átti Mustang ‘66 sem var
nokkuð góður þegar ég fékk hann
og þegar ég var búinn að skipta
um klæðningu var ekkert meira
að gera í honum. Þá seldi ég hann,“
segir Árni.
„Mig langaði að fara út í öfgarnar
eins og þær voru mestar á þessum
tíma. Bíllinn er yfir sex metrar á
lengd og með stóra vængi upp að
aftan, eins og var algengt á bílum
frá svona ‘58 og til ‘64 eða ‘65. Þá
var allt öfgakennt og mig langaði
að eiga svoleiðis bíl i smá tíma.“
Cadillacinn snyr sannarlega
höfðum þegar Árni rúntar á
honum á blíðviðrisdögum en það
er fleira merkilegt við bílinn en
útlitið. „Hann er með 429 kúbika
mótor sem er 350 hestöfl. Svo er
allt rafstýrt í honum, rúður og
útvarpsloftnet til dæmis. Ljósin
kvikna sjálfkrafa þegar dimmir
og slokkna aftur þegar birtir. Svo
er miðstöðin þannig að maður
stillir bara inn ákveðið hitastig og
hún heldur loftinu inni í bílnum
þannig. Ég keypti Land Cruiser
2003 með svona miðstöð og fannst
það voðalega fínt, en svo var þessi
bara með svona líka, 43 ára gam-
all,“ segir Árni og hlær við.
Bíllinn var í þokkalegu standi
þegar hann kom til landsins en
Árni þurfti þó aðeins að eiga við
mótorinn í honum. „Svo er ég
að safna að mér krómhlutum,
þeir eru margir farnir að láta á
sjá. Einhvern tíma á næstu árum
stendur svo til að sprauta hann í
upprunalegum lit. Tveimur árum
áður en ég keypti hann var hann
sprautaður perluhvítur en var upp-
haflega búrgúndí-rauður. Annars
liggur ekkert á.“
Aðspurður um fornbílaáhugann
segist Árni stundum segja kon-
unni sinni að hann sé tilkominn
af sýniþörf. „En án gríns er auð-
vitað gaman að keyra flottan bíl og
sjá fólk snúa sig úr hálsliðnum og
rétta upp þumalinn. Svo er gaman
að vera í þessum félagsskap og
manni þarf aldrei að leiðast, verk-
efnin eru alltaf næg,“ segir Árni að
lokum.
: 1
Stórhöfða 26
Sími: 517-1103
Gsm: 867-0187
OG ÞVOTTUR
F
Opel Astra Turbo er
nýjasta viðbótin við
Astra-fjölskylduna.
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@bladid.net
Steraboltinn í fjölskyldunni er
240 hestafla, 2 lítra Astra OPC en
litla barnið er 105 hestöfl með 1,6
lítra vél. Þar á milli er 1,8 lítra vél
sem skilar 125 hestöflum. Turbo-bíll-
inn, sem kreistir 180 hestöfl úr 1,6
lítra vélinni, brúar því 115 hestafla
biL
Að utan
Nýjasta kynslóð Astra er í sann-
leika sagt bara nokkuð álitlegur bíll.
Fyrir utan skarpa línu í mjaðmahæð,
sem er dregin fram eftir hliðum
bílsins og deyr út í framljósunum,
er hans helsta einkenni framend-
inn. Hönnuðir Opel hafa nostrað
töluvert við hann og tekist vel til.
Vélarhlífin er til dæmis með miðju-
brot sem deyr út frá framendanum,
grillið er krómhúðað og umgjarðir
þokuljósanna í stuðaranum mynda
einskonar „V“ utan um framendann.
Stór og margskipt ljóskerin gera líka
ótrúlega mikið fyrir bílinn, rétt eins
og falleg augu gera fyrir andlit.
Að innan
Innréttingin tekur mjög lítið
pláss þannig að bíllinn er þokkalega
rúmur fyrir fjóra, jafnvel fimm full-
orðna. Mín sérviska segir samt að því
fleiri geymsluhólf og flöskuhaldarar
sem eru í bílnum, því þægilegri sé
hann í umgengni. í þessum geira er
Astran ekki að gera stóra hluti en þó
er áfastur armpúði á bílstjórasætinu
með hólfi sem rúmar ýmislegt smá-
legt, eins og myndavél, síma og lykla.
Bíllinn er þó frekar vel búinn.
í GÓÐUM GÍR
Miðstöðin er með loftkælingu,
stýrið með aðgerðarhnöppum fyrir
útvarpið og aksturstölvuna sem er
þægileg aflestrar og sýnir flest það
sem mann langar að vita um eyðslu
og ferðatíma bifreiðarinnar. Inn-
réttingin er áferðarfalleg, með eins-
konar eftirlíkingu af burstuðu stáli,
og virkar traustvekjandi og vel gerð.
Innan við hana er svo allt troðfullt
af öryggisbúnaði.
Fyrir bíl í sínum flokki er Astran
frekar hefðbundin í umgengni og
notkun. Sætin halda þokkalega við
og hægt er að velta framsætunum
þannig að setan hækki eða lækki að
framan.
Akstur
Og þá að alvöru málsins. 180
hestar í Opel Astra, hvernig kemur
það út? Fyrir það fyrsta er feikinóg
afl, í það minnsta. 230 Nm gera það
að verkum að manni finnst bíllinn
vera sneggri í hundrað en þær 8,2
sekúndur sem gefnar eru upp. Með
sport-takka í mælaborðinu er upp-
stillingu á fjöðrun, sem er reyndar
í það stífasta fyrir, og vél breytt
lítillega til að auka á sportlega eig-
inleika. Svo lítillega reyndar að
stærsti munurinn sem ég fann var
á eyðslumælinum. Það gerir samt
ekkert til því bíllinn er með ein-
dæmum sparneytinn miðað við afl
og er með 7,7 lítra uppgefna í blönd-
uðum akstri. Það er líka rétt að geta
þess að miðað við svo kraftmikinn
bíl er mjög auðvelt að halda honum
á löglegum hraða, nokkuð sem vefst
stundum fyrir mér í reynsluakstri
sem þessum.
Nú kann einhver að spyrja sig
hvort öll þessi hestöfl séu nauðsyn-
leg á Islandi, hvar hámarkshraðinn
er aðeins 90 km á klukkustund, og
hvað þá í litlum sætum fjölskyldubíl
eins og Astra. Jú, sjáðu nú til: Með
túrbínunni næst aukið tog út úr vél-
inni sem gerir það að verkum að þú
þarft ekki að spila eins mikið á gír-
ana. Bíllinn er alltaf með nægilegt
afl og þú getur fylgt breytilegum
umferðarhraðanum, innanbæjar
sem utan, án þess að vera stöðugt
að hræra í 6 gíra kassanum. Það
OPEL ASTRA 1,6 TURBO
Feikinóg afl, þægilegur á
þjóðvegum, frábært verð.
Framdrifið höndlar illa aflið, lítið um
geymsluhólf, fjöðrun í það stífasta.
Einar Elí Magnússon einareli@bladid.net
• 1,6 lítra 4 strokka bensínvél með forþjöppu
• 180 hestöfl • 230 Nm • 6 gíra beinskiptur
• Eyðsla í blönduðum akstri: 7,7 lítrar • 6 árekstrar-
púðar • ABS • EBD • ESP • Grunnverð: 2.290.000
• Umboð: Ingvar Helgason
slítur bílnum minna, og auðvitað
bílstjóra líka.
Það er líka nánast sama í hvaða
gír maður er, og hve hratt vélin
snýst, ef maður botnar bensínið
tekur bíllinn kipp og skýst áfram.
En þá kemur einmitt að smá vanda-
máli. Bíllinn er nefnilega ekki alveg
eins góður í stýri og ég mundi vilja,
sérstaklega ekki þegar honum er
gefið mikið inn. Þar sem öllum hest-
unum er beint að framhjólum þarf
mismunadrifið að hamast svolítið
til að koma bílnum áfram og bíllinn
heggur að framan.
Til að minnka áhrif þessa á stýrið
sjálft er það haft frekar þungt, sem
ég kann mjög vel við úti á þjóð-
vegum, þar sem bíllinn er hinn
þægilegasti í akstri.
Niðurstaða
Ef þú ert að leita að kraftmiklum
sportbíl sem leikur í höndunum á þér
á ofurhraða er Astra Turbo kannski
ekki málið. Vanti þig hins vegar vel
búinn og öruggan bíl (Astra skorar
5 stjörnur í árekstrarprófum Euro
NCÁP) sem er þægilegur í akstri,
býr yfir „þessu aukaafli" sem þig
langar stundum í (og ríflega það) er
Astra ekki bara álitlegur heldur líka
sérlega hagkvæmur kostur, á aðeins
2.290.000 kr.
Suzuki-bílar leika í Babylon AD
Það liggur ekki beinlínis í
augum uppi að Þjóðverjar hafi
milligöngu um að japanskir bílar
verði notaðir í mynd sem -—--
er framleidd í Tékklandi, f P
dreift af Bandaríkja-
mönnum og byggð
á franskri sögu.
Engu að síður er
það raunin með
þátttöku Suzuki í
gerð myndarinnar Babylon AD.
Auk Vin Diesel, Michelle Yeoh,
Gerard Depardieu og
MelanieThierrymunu
mótorhjól og bílar frá
Suzuki leika stórt
hlutverk í þessum
framtíðarþriller sem
m - mx er byggður á SÖSU
a| Maurice Dantec.
éí Suzuki Meðai bíla sem
andbreezer
verða notaðir eru Splash, Landbre-
eze og Grand Vitara en af hjólum
má meðal annars nefna hiðspíunku-
nýja og magnaða B-King.