blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 23
blaöió
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007
23
Úlfur í sauðargæru?
Ducati-vikan slær met
STUTTAR
Hver þekkir það ekki að vera orð-
inn hundleiður á því að keyra Audi
A8? Tja, kannski ekki margir. Hvað
sem því líður hefur Audi púslað
saman einum A8-bíl sem er búinn
einskonar bílhermi. Með
gríðarlega flóknum tölvu-
búnaði, tjökkum, mótorum,
auka-stýrisbúnaði og fleiru
smálegu er hægt að breyta
allri uppsetningu bílsins
með einum rofa. Viljir þú
að bíllinn sé eins og Merce-
des E-Class í akstri smellir
þú á hnapp og bíllinn
skiptir um karakter. Stýrið
breytist, sem og bremsur, viðbragð,
beygjuradíus og fleira. Aðrir bílar
sem hann getur líkt eftir eru meðal
annars Lotus Elise, Huyndai Getz
ogVW GolfGTI.
Fimmtu árlegu Ducati-vikunni
lauk um helgina eftir að hvert metið
á fætur öðru hafði verið slegið af
þátttakendum, gestum og gang-
andi. Boðið var upp á sýningar og
skemmtidagskrá fyrir þá tugi þús-
unda mótorhjólaáhugamanna og
-kvennafrá28 löndum sem tóku þátt
með einum eða öðrum hætti, þar af
margir heimsfrægir ökumenn.
Alls seldust 25.000 miðar, 3.600
lítrar af bjór, 4.200 lítrar af víni og
1,2 tonn af pylsum. Ljósmyndarar
hátíðarinnar tóku 54.000 myndir
og þátttakendur ferðuðust samtals
31 milljón kílómetra til að komast á
staðinn.
Rúsínan í pylsuendanum var svo
frumsýning Ducati 1098 F08- og De-
smosedici RR-hjólanna.
• Sumarhátíð Ferðaklúbburinn
4x4 heldur sumarhátíð sína í Vík
í Mýrdal dagana 20.-22. júlí. Há-
tíðin er í boði Skeljungs og því
frítt inn á hana fyrir félaga og
fjölskyldur þeirra. Félagsmenn
eru hvattir til að mæta.
www.f4x4.is
• Árekstrarpróf Samkvæmt
árekstrarprófi ADAC í Þýska-
landi getur verið lífshættulegt
að sitja á óhefðbundinn hátt
í bifreið sem lendir í árekstri,
rétt eins og að sleppa því að
nota öryggisbelti. www.fib.is
Tiguan óbreyttur
ÚR BÍLSKÚRNUIVl
C30 fyrir E85
Nú styttist óðum í heimsfrum-
sýningu VW Tiguan, litla
bróður Touareg, sem verður
í Frankfurt í haust. Fyrstu
myndir af bílnum sýna að
hann líkist mjög hugmyndaút-
gáfunni, Concept A Study, sem
hann er byggður á. Hægt er að
fræðast heilmikið um tiiurð
bílsins á slóðinni www.tiguan-
base.com.
Efnarafalar
í Evrópu
Næstu kynslóð FSX-bifreiða
frá Honda var ekið f fyrsta
sinn í Evrópu í síðasta mánuði,
á Gotiandshringnum í Svíþjóð.
Ætlunin er að hefja sölu á
nýjum Honda-efnarafalsbílum
í Japan og Ameríku árið 2008.
Volt fær verðlaun
Hugmyndabíllinn Chevrolet
Volt hlaut nýlega tvenn verð-
laun frá samtökum bílablaða-
manna í Ameríku. Verðlaunin
gætu verið þýdd sem annars
vegar „Sérhæfður hugmynda-
bíll ársins" og „Þýðingarmesti
hugmyndabíll ársins“ og þykja
mikill heiður. Það er þó ekki
einungis framúrskarandi töf-
faralegt útlit Volt sem skipar
honum á verðlaunapall, því
áform um notkun efnarafals-
og tvinntækni i bíinum þykja
afspyrnu sniðug.
I)t*vt'lopetl \\ il h
Shell
V-Power
Þróað með Ferrari
Upplifðu ánægjuna sem fylgir eldsneyti
sem bróað er í samstarfi við Ferrari.
Skrýtin fyrirsögn, en Volvo C30
mun sem sagt innan tíðar verða
boðinn á Bretlandsmarkaði
með tvíorkutækninni E85. Á ís-
lensku þýðir það að hann getur
notað eldsney tisblöndu sem
er að 85 hlutum etanól á móti
15 hlutum bensíns og gengur
undir nafninu E85. Slfkt elds-
neyti er nú þegar orðið vinsælt
í Svíþjóð og fleiri þjóðir eru að
hefja dreifingu á því. í. .. ■; 1