blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 25
blaöiö
FOSTUDAGUR 6. JULI 2007
25
Vestur-Hópsvatn
Mjög góð silungsveiði
Silungsveiðin gengur víða vel
og veiðimenn eru að fá fína veiði
en laxveiðin gengur frekar rólega
þessa dagana.
Veiðimenn sem voru að koma
af Skagaheiði fengu fína veiði.
Einn hópur veiddi yfir íoo silunga
og hinn ríflega 50.
„Hann er á, þetta er ágætur fiskur.
Hann tók spúninnsegir Þráinn
Traustason en um helgina var
blaðamanni boðið í veiði í Vestur-
Hópsvatn í Húnavatnssýslu og var
veiðin mjög góð.
Reyndar var blaðamaðurinn
ekkert sérstaklega fengsæll en skip-
stjórinn veiddi vel, fékk 11 fallega
fiska og þeir voru flestir vænir.
Best veiddist á spún og maðk-
inn og allt voru þetta urriðar sem
veiddust, líklega um 2,5 pund sá
stærsti.
En Þráinn setti í stærri fisk.
„Já, þessi var stór og tók vel í en
fór fljótlega af,“ sagði Þráinn eftir
að sá stóri slapp af hjá honum.
Hann hefur veitt marga silunga
í Vestur-Hópsvatni í gegnum
tíðina og líka í Reyðarlæknum
sem rennur í vatnið. Fleiri veiði-
menn voru mættir þarna til veiða
snemma á sunnudagsmorguninn
og allir voru að fá eitthvað.
Breiðdalsvík
Minnisvarði um Sigurð frá Gilsá
Minnisvarði var reistur Séra Gunn
laugur Stefánsson í Heydölum hefur
blessað steininn.
90. Sigurður var framsýnn og afar dug-
mikill í fórnfúsum störfum fyrir fé-
lagið og málefni árinnar. Þeirra starfa
vill veiðifélagið minnast af þakklæti
með því að reisa Sigurði minnisvarða.
Þröstur Elliðason, leigutaki árinnar,
bauð gestum að lokinni athöfn til veit-
inga í veiðihúsinu í Eyjum.
Nokkrir laxar hafa veiðst í Breið-
dalsá, en Súddi, leiðsögumaður við
Breiðdalsá, veiddi fyrsta fiskinn í Efri-
Beljanda, 6 punda fisk.
Veiðifélag Breiðdæla hefur reist
Sigurði Lárussyni frá Gilsá, sem and-
aðist síðastliðinn vetur, minnisvarða
við Beljanda í Breiðdalsá og var minn-
isvarðinn afhjúpaður með athöfn á
opnunardegi Breiðdalsár. Sigurður
var frumkvöðull að stofnun veiði-
félagsins og að laxaræktinni i ánni.
Hann var fyrsti formaður félagsins
og gegndi því starfi á árunum 1963-
MAÐURINN
► Sígurður var frumkvöðull að
stofnun Veiðifélags Breið-
dæla
;.. Hann setti upp laxarækt í
Breiðdalsá
► Sigurður var fyrsti formaður
veiðifélagsins
GÓÐRÁÐ
Sveinn Þór á Akureyri er fluguhnýtingamaður
Flugur hnýttar á króka frá Kamazan
Flugurnar eru hnýttar á króka
frá Kamazan og límdar niður
(hausinn) með tonnataki. Lakk
er hvergi notað nema í búkinn á
Rollunni sem er baðaður í lakki.
Kamazan-króka hef ég notað
um árabil og þykja mér þeir ein-
faldlega bestir.
Tonnatak nota ég til að líma
niður hausinn og nota það
óspart. Efnið er margfalt sterk-
ara en nokkurt lakk og raknar
hausinn því ekki upp á mínum
flugum.
f búkinn á þyngdum púpum eru
notaðar Tungsten-ræmur (e.wol-
fram). Tungsten er u.þ.b. tvisvar
sinnum eðlisþyngra en blý.
Ábcnding: Flugur með hvítan
Marabou-væng ættu ávallt að
geymast sér, því þær vilja taka
lit í sig.
Heilsa
Matur
Böm&Uppeldi
Heimili&Hönnun
Húsbyggjandinn
Viðskipti&Fjármál
Vinnuvélar
Bílar
Konan
Árstiðabundin
sérblöð
Hafðu samband og fáðu gott pláss
fyrir auglýsinguna þína í
viðeigandi sérblaði
Auglýsingasímar:
Magnús Gauti 510-3723
KolbrúnDröfn 510-3722
þriðjudaga, miðvikudaga
&
fimmtudaga
Vantar þig veiðileyfi? www.svfr.is er málið!
Úrval veiðileyfa - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu
Fréttir, greinar, fróðleikur og margt fleira