blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 26
FOSTUDAGUR 6. JULI2007
blaóiö
ÍÞRÓTTIR
ihrottir@bladid.net
Hann ýtir mér í burtu og segir mér að haga mér eins og
maður. Ég svara bara að hann skuli gera það sjálfur því
hann er blindfullur, angandi eins og bruggtunna, og kemur
fram sem formaður rekstrarfélagsins
SKEYTIN INN
Argentínumað-
urinn Carlos
Tevez er að
öllum líkindum á
leið til Manchester
United fyrir 20
milljónirpunda,
eða um tvo og hálfan milljarð
króna. Tevez kom til West Ham í
íyrra og sló í gegn hjá félaginu eftir
rólega byrjun. United vill ganga
frá kaupunum sem fyrst en Tevez
er sagður vilja bíða þangað til eftir
Suður-Ameríkubikarinn, þar sem
hann leikur með Argentínu. Verði
af kaupunum verður Tevez fimmti
leikmaðurinn sem Alex Ferguson
kaupir í sumar, en hinir eru Owen
Hargreaves, Nani, Anderson og
markvörðurinn Tomasz Kuszczak,
sem var í láni hjá félaginu á síðustu
leiktíð. í stað Tevez hefur West Ham
í hyggju að bera víurnar í Craig
Bellamy sem er í óvissu um framtíð
sína hjá Liverpool eftir að Fernando
Torres var keyptur til liðsins.
Forráðamenn
Sheffield
United ætla
ekki að sætta sig
við niðurstöðu
sérstaks dómstóls
enska knattspyrnu-
sambandsins, sem úrskurðaði á
dögunum að ekki yrðu dregin
stig af West Ham fyrir kaupin á
Carlos Tevez og Javier Mascher-
ano.Ætla þeir að kanna grundvöll
þess að höfða mál fyrir almennum
dómstólum. Sheffield United
féll úr úrvalsdeildinni í vor.
Chris Sutton,
sem lék
meðAston
Villa á síðustu
leiktíð, hefur
neyðst til að leggja
skóna á hilluna
sökum sjóntruflana. Sutton lék
ekkert með liðinu á seinni hluta
tímabilsins eftir að hann missti
sjón á öðru auganu. Hann varð
enskur meistari með Blackbum
1995 og lék einn landsleik fyrir
England, gegn Kamerún árið 1997.
Tottenham
hefur gengið
frákaupum
á fyrirliða 21-árs
landsliðs Frakka,
Younes Kaboul,
ffá firanska hðinu
Auxerre. Kaupverðið er 8 milljónir
punda, rúmur einn milljarður króna.
Kaboul er 21 árs varnarmaður og
var eftirsóttur af mörgum stórliðum
í Evrópu. Martin Jol, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, segir að Kaboul sé
einn efnilegasti leikmaður Evrópu
og er sannfærður um að hann muni
slá í gegn í ensku úrvalsdeildinni.
Chelsea
hefur lagt
inn tilboð
í hið 17 ára bras-
ilíska undrabarn,
Alexandre Pato.
Real Madrid, Inter
Milano og AC Milan hafa einnig
sýnt stráknum áhuga, en Chelsea
er sagt hafa boðið hæst í hann, um
10 milljónir punda. Pato gæti átt í
erfiðleikum með að fá atvinnuleyfi í
Bretlandi, en forráðamenn Chelsea
segja það ekki fyrirstöðu í ljósi
þess að Anderson hjá Manchester
United hlaut atvinnuleyfi á dögun-
um. Ljóst er að Pato, sem leikur
með Internacional i heimalandinu,
fer ekki til evrópsks liðs fyrr en
hann verður 18 ára í september.
Hiti 1 mannskapnum
Leikmönnum var heitt í hamsi
eftir að Bjarni Guðjónsson skoraði
seinna mark Skagamanna.
ÍA-KEFLAVÍK
SKEYTIN INN
„Angaði eins
og bruggtunna
Ásakanir milli Skagamanna og Keflvíkinga ganga á víxl
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Mikill hiti er í herbúðum ÍA og
Keflavíkur eftir að upp úr sauð í
leik liðanna í fyrrakvöld. Ásakanir
ganga á víxl og saka liðin hvort
annað um óíþróttamannslega
framkomu. Leikmaður Keflavíkur
segir formann rekstrarfélags meist-
araflokks ÍA hafa verið drukkinn
á leiknum og eiginkona Bjarna
Guðjónssonar lenti í útistöðum við
leikmann Keflavíkur.
Lætin hófust þegar Bjarni skoraði
síðara mark Skagamanna á 81. mín-
útu. Keflvíkingar höfðu sparkað bolt-
anum út af þegar einn leikmaður
ÍA lá meiddur á vellinum. Þegar
slíkt gerist er venjan sú að liðið
sem sparkar boltanum af leikvelli
fái boltann aftur. Bjarni sparkaði
hins vegar boltanum yfir markvörð
Keflvíkinga og í netið við mikla
óánægju Keflvíkinga. Sjálfur segist
Bjarni ekki hafa ætlað að skora og
hefur beðist afsökunar á atvikinu.
Framkoman óafsakanleg
Bjarni segir að honum hafi dottið
það í hug að leyfa Keflvíkingum
að skora og reifað hugmyndina við
þjálfarann og þá sem stóðu honum
næst. Allir hafi orðið sammála um
að gera það ekki. „Það voru senni-
lega viðbrögð þeirra eftir markið
sem urðu til þess að ekkert varð úr
því. Þeir fóru fram með þvílíku of-
forsi að það er að mínu mati óafsak-
anlegt,“ segir Bjarni.
Það var dómari leiksins, Kristinn
Jakobsson, sem stakk upp á því við
Bjarna að hlaupa beint inn í klefa
eftir leikinn. „Hann gaf mér 5 sek-
úndur til að hlaupa áður en hann
flautaði leikinn af. Það var ljóst að
það átti að taka mig út úr leiknum
meðan honum stóð. Eina ásökunin
sem þeir hafa á okkur er þetta mark
og ég er vonandi búinn að afgreiða
það. En hvernig jpeir þaga sér eftir
leikinn og þessar síðusju niínútur
er bara tikskSnifar oi það þípf að
► Leikur IA og Keflavíkur í 9.
umferð Landsbankadeildar
karla fór fram á Akrane-
svelli í fyrrakvöld.
ÍA vann leikinn 2:1. Deilt
er um síðara mark Skaga-
manna sem Bjarni Guðjóns-
son skoraði af tæplega 60
metra færi.
► í leik liðanna á Akranesi
f fyrra sló í brýnu milli
leikmanna eftir að einn
leikmaður ÍA lét niðrandi
ummæli falla um leikmann
Keflavíkur.
taka á því,“ segir Bjarni og telur að
leikur liðanna í síðustu umferðinni
í Keflavík komi til með að verða
harður.
Bjarki Freyr Guðmundsson,
leikmaður Keflavíkur og fyrrum
leikmaður ÍA, er mjög ósáttur við
framkomu Skagamanna. Hann
segir það helbera lygi að leikmenn
ÍA hafi boðist til að leyfa Keflvík-
ingum að skora. „Það var ekki einn
einasti maður sem minntist á það.
Þegar við gerðum það, þá var hlegið
í andlitið á okkur og okkur sagt að
gleyma því. Þeir brjóta þarna virt-
ustu reglu í knattspyrnuheiminum.
Guðjón Þórðarson fer svo beint inn
í klefa eftir leik og býr til sögu þar
inni til að koma athyglinni af Skaga-
liðinu yfir á okkur. Ég veit ekki
hversu samviskulausir þeir eru að
taka sigri eins og þeir gerðu í gær.“
Ennþá hitiímönnum
Eftir leikinn lenti Bjarki í úti-
stöðum við Gísla Gíslason, formann
rekstrarfélags meistaraflokks ÍA, og
eiginkonu Bjarna. Bjarki segist hafa
verið á leið út úr búningsklefanum
þegar hann hafi mætt eiginkonu
Bjarna og heilsað henni. „Þá snýr
hún sér við og tekur kast á mig með
%vívirðidgum;i 'oglátum. 1 Það/ eina!
sem ég segi við hana er að hún skuli
slaka á og frekar kenna manninum
sínum hvað heiðarleiki er.“
Bjarki segir að þá hafi Gísli skorist
í leikinn og fullyrðir hann að Gísli
hafi verið ölvaður. „Hann ýtir mér í
burtu og segir mér að haga mér eins
og maður. Ég svara bara að hann
skuli gera það sjálfur því hann er
blindfullur, angandi eins og bruggt-
unna, og kemur fram sem formaður
rekstrarfélagsins. Það eru vitni að
þessu og þeir geta vitnað um að ég
hafi ekki gert neitt óeðlilegt eins og
staðan var.“
Gísli þvertekur fyrir þetta og
segir að Bjarki hafi gengið allt of
langt. „Þetta er kjaftæði. Ég tók
hana til hliðar svo þetta orðaskak
héldi ekki áfram. Þá fékk ég meðal
annars þessa ásökun frá Bjarka og
geri svo sem ekkert með það. Hann
veit betur sjálfur.“
Gísli segir ekkert hafa verið rætt
innan stjórnarinnar hvert fram-
haldið verði. Ákvörðun um slíkt
verði tekin á næstu dögum. „Við
höfum ekki mikinn áhuga á að
þetta verði langvinnt og leiðinlegt
mál. Við höfum verið í sambandi
við Keflvíkinga, en það er enn mjög
heitt í mönnum ef svo má segja,“
segir Gísli og tekur fram að ein-
ungis örfáir leikmenn Keflavíkur
hafi gengið of langt. Aðrir hafi lagt
sig fram um að bera klæði á vopnin.
Rúnar V. Arnarsson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
segir að félagið ætli að ræða málið
áður en ákvörðun um framhaldið
verður tekin. Hann segir framkomu
Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara ÍA,
með ólíkindum og ummæli hans
eftir leikinn séu tilraun til að beina
athyglinni frá óíþróttamannslegri
framkomu Skagamanna. „Það eru
þeir sem sitja uppi með skömmina,
ekki við.“
Þórir Hákonarson, framkvæmda-
stjóri KSl, vildi ekki tjá sig um
málið þegar Blaðið hafði samband
- við hann. r.íml wö$bz
íbnym -tnoAniaz í6é
WestHam
fékk í gær
mark-
vörðinn Richard
Wright frá Everton.
Samningur hans
hjá Everton var
runninn út og fékk West Ham hann
því frítt. Wright þótti mjög efnilegur
á árum áður og var talinn framtíðar-
markvörður Englands þegar Arsenal
keypti hann frá Ipswich. Hann hefur
ekki náð að standa undir þeim vænt-
ingum og þurfti að verma tréverkið
meðan hann var hjá Arsenal og
Everton. Lékhann aðeins 60 leiki á
fimm árum hjá síðarnefnda liðinu.
Everton hefur
loks gengið
frá kaupum
á Phil Jagielka frá
Sheffield United.
Everton þarf
að borga fjórar
milljónir punda fyrir kappann, sem
leikið getur bæði í stöðu varnar-
manns og miðjumanns. Jagielka
er ekki ókunnur á Goodison Park,
því hann lék með unglingaliði
Everton. David Moyes, knattspyrnu-
stjóri Everton, vonast til að landa
þremur leikmönnum í viðbót
áður en leiktíðin hefst í ágúst.
Frönsku
meistararnir í
Lyon segja að
ekkert lið haíi gert
nógu gott tilboð
í kantmanninn
Florent Malouda,
sem er mjög eftirsóttur. Chelsea
hefur gert tilboð í kappann, en
franska liðið hefur sagt að það vilji
fá að minnsta kosti 13 milljónir
punda, um einn og hálfan milljarð,
fyrir Malouda. Tilboð Chelsea er
nokkuð undir þeirri upphæð, en
félögin eiga í samningaviðræðum.
Forráðamenn
Arsenal eru
vongóðir um
að knattspyrnustjóri
liðsins, Arsene Wen-
ger.skrifiundirnýj-
an samning hjá fé-
laginu von bráðar. Framtíð Wengers
hefur verið í lausu lofti eftir að félag-
ið lét varaformanninn David Dein
fara. Samningur Wengers rennur
út á næsta ári. Þá er Wenger sagður
ætla að gera táningmn Cesc Fabreg-
as að varafyrirliða fyrir næstu leiktíð.
Fulham keypti í gær miðju-
manninn Steven Davis frá
Aston Villa á 4 milljónir punda.
Davis, sem er 22 ára, skrifaði undir
4 ára samning við félagið. Hann
hittir þar fyrir knattspyrnustjórann
Lawrie Sanchez, en þeir störf-
uðu áður saman þegar Sanchez
stjórnaði landsliði Norður-íra. Þá
gerði Sanchez hann að yngsta
3 fiqi^ltJíflgiJiíferður-íra. j^jy
ptivh tuu.ú -n uíiílfiv 1 tnuqöAz Jqiáa