blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 6. JULI 2007 FRÉTTIR Hefur engu gleymt íris Jónsdóttir rifjaði upp gamla takta á Kópavog- svelli í gær, en hún keppti í hástökki á tveimur Landsmótum, 1978 og 1981, fyrir hönd Breiðabliks. Ekki er að sjá að hún hafi nokkru gleymt og útilokar hún ekki endurkomu í framtíðinni. „Það blundar í manni að fara í öldunginn. Það væri gaman." íris, sem verður amma á árinu, segir alltaf jafngam- an að mæta á Landsmót og segir þau lítið hafa breyst síðan hún var að keppa. Hún segir umgjörð mótsins í ár vera glæsilega og er ánægð með upp- bygginguna sem verið hefur á svæðinu. Blaöiö/Frlkki 25. Landsmót UMFÍ sett í gær Umfangsmesta Landsmótið til þessa 25. Landsmót Ungmennafélags Islands var sett í gærkvöld við hátíð- lega athöfn á Kópavogsvelli. Allt að 6 þúsund keppendur spreyta sig á mótinu sem stendur fram á sunnu- dag. Mótið er það umfangsmesta sem haldið hefur verið hingað til og er búist við á fjórða tug þúsunda gesta. Keppni hófst í gær og var meðal annars keppt í körfuknattleik, golfi og frjálsum íþróttum. Þá kepptu eldri þátttakendur í boccia í íþrótta- húsinu í Digranesi. Ekki er hægt að segja annað en að veðurguðirnir hafi verið í góðu skapi í gær, því veðrið lék við mótsgesti og er von- andi að framhald verði þar á, alla vega þar til á sunnudag þegar mót- inu verður slitið. Keppni hefst klukkan átta í dag og stendur fram til klukkan 19. Al- menningi gefst kostur á að spreyta sig í frisbígolfi, sem er blanda af fris- bídiskakasti og golfi, og er íþróttin tiltölulega ný hér á landi. í dag er jafnframt stóri pönnukökudagur- inn og verður keppt í þeirri skemmti- legu en erfiðu íþrótt í Smáralind. Á Kópavogsvelli verður svo lands- leikur milli Islands og Svíþjóðar þar sem nördar verða í aðalhlut- verki. Þá hyggst landslið íslenskra nörda hefna fyrir 5:0 tap íslenska karlalandsliðsins gegn Svíum á dögunum. Fólkið og fjölbreytnin Berglind Óskarsdóttir og Iris Þórsdóttir keppa fyrir hönd Fjölnis í frjálsum íþróttum um helgina. Þær segjast hafa æft stíft fyrir mótið í allan vetur og stefna á sigur í hverri grein. Þær kepptu báðar á Sauðárkróki fyrir þremur árum og segja stemninguna á þessu móti töluvert frábrugðna. Þá hafi verið tjaldútilegustemning á meðan þær dvelja heima þessa helgina. Þær segja fjölbreytnina og fólkið það skemmtilegasta við frjálsu íþróttirnar. Heldur uppi ungmennafélagsandanum Lögreglan var mætt á keppnisstað í gær og fylgdist með undirbúningi. Þeir Ámi Friðleifs- son og Gylfi Sigurðsson segja að það þurfi að mörgu að hyggja þegar kemur að móti sem þessu. Fyrst og fremst þurfi að fylgjast með umferðinni sem og að sjá til þess að allt fari sómasamlega fram. Segjast þeir munu kappkosta að halda uppi ungmennafé- lagsandanum. Lögreglan er vandanum vaxin þegar kemur að samkomu sem þessari, enda býr hún vel að reynslu frá Menningarnótt í Reykjavík og 17. júní-hátíðum á höfuðborgarsvæðinu. Þeir höfðu enn ekki skráð sig til keppni þegar blaðamaður hitti á þá í gær, en þeir voai hvað spenntastir fyrir pönnukökubakstrinum í Smáralind. Segir sagan að Ámi hafi skor- að á Gylfa í slíkri keppni. Útilegustemning Ingólfur Pétursson kom á keppnisstað í gær og var búinn að slá upp tjaidi á Kópa- vogstúni. Þegar blaðamaður gekk fram á hann naut hann veðurblíðunnar fyrir utan tjald Héraðssambands Þingeyinga, HSÞ, þar sem hlúð er vel að þeim 65 keppend- um sem keppa fyrir hönd sambandsins. Ingólfur er reynslubolti þegar kemur að Landsmótum og segir það ekkert draga úr útilegustemningunni þótt mótið sé haldið í Kópavogi. Vetrarólympíuleikarnir 2014 verða haldnir í Rússlandi Pútín lofar glæsilegri keppni Vetrarólympíuleikarnir árið 2014 fara fram í Sochi í Rússlandi. Þetta var ákveðið á fundi al- þjóðaólympíunefndarinnar í Gvatemala í fyrra- dag. Sochi hlaut 51 atkvæði nefndarmeðlima á meðan aðalkeppinauturinn, Pyeonchang í Suður- Kóreu, hlaut 47 atkvæði. Salzburg í Austurriki sótti einnig um að fá að halda leikina en heltist úr lestinni í fyrstu umferð kosninganna. Þetta er i annað skipti i röð sem Pyeongchang og Salzburg tapa i kosningu um að fá að halda Vetrarólympíuleikana, en þær borgir bitust líka um hnossið þegar Vancouver var kosið til að halda þá árið 2010. .......... VladimírPútín'RliSSl&fidsfeífíiéti er sagður hafa skipt sköpum í valinu er hann ávarpaði samkom- una á þremur tungumálum, ensku, spænsku og frönsku. Er talið að þetta sé í fyrsta sinn sem rúss- neskur leiðtogi talar ensku á opinberri samkomu. Pútín, sem sjálfur er liðtækur á skíðum, lofaði að keppnin yrði glæsileg í alla staði. Mikil gleði braust út í Sochi og stóðu fagnaðar- læti langt fram eftir nóttu. Vonbrigðin voru hins vegar mikil í Pyeongchang og Salzburg, og brustu margir i grát er tíðindin bárust. „Þetta er verra en fyrir fjórum árum. Við virkilega héldum að við myndum vinna núna,“ sagði veitingahúsaeigandi í Pyeongchang. Taumlaus gleði ibýar í Sochi fögnuðu langt fram.eftir nóttu eftir að tiJkynntwarað borgifl. ■ myndi halda VstraráLympíuleikananu auglýsingar sími 510 3737 sma@bladid.net Bílar og farartæki BÍLAR TIL SÖLU 300 Þús !! MMc colt 98” ek 135þús fínn bíll, listaverð 470 en læt hann a 300þús stgr sími 8682744 CHRYSLER 300C árg. 4/2005, ek.29 þ. km, 3500cc, ssk., umboðsbfll, 20” krómfelgur, leður og margt fleira. Verð 3.990 þ. Vantar allar gerðir bíla á skrá og á staðinn. S. 567 2700. Arnarbílar ehf. Gylfaflöt 5, 112 Reykjavík Sími 567 2700 www.arnarbilar.is Á 100% láni ekkert út, eingöngu yfirtaka á láni. Renault Megane Classic árg 2003 ekin 69 þús góður bíll á frábærum kjörum, u.þ.b. 20 þús á mánuði. Nánari uppl í sfma 898-7859 RENAULT LAGUNAII Nýskr: 09/2003, 1800cc 5 dyra, Sjálfskiptur, Grár, Ekinn 67.000 þ. Verð: 1.650.000 Bílaland, B & L Grjótháls 1,110 Rvk S: 575 1230 www.bilaland.is Ford mondeo 02 ek 91þús ssk 2,0 LEÐUR hraðastillir 500 út +lán = 1.2 mill uppl 6998393 FORD TAURUS 04 CD, ABS, sumar8ivetrard sjálfsk, allt rafdr o.fl. ek 70þús km. Tilboð 1390þ. S 822 3444 Opel astra 1200 árg. 2000, (ekki tímareim). Ek. 95 þ. Topp eintak, nýskoðaður. Algjör " sþaribaukur. Staðgreitt kr. 390.000. S. 892 1284.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.