blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 30
30
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007
blaðiö
ORÐL AUSFÖSTU DAGUR
ordlaus@bladid.net
7Fólk mun bara sjá það þegar
að því kemur en þetta er
ekki eitthvert strákaband.
Þetta verður hátíðlegt popp.
HVAÐ Á AÐ GERA UM HELGINA?
Horfa á tunglið
og sólarlagið
,Ég er nú bara stödd hérna á Santorini í Grikk-
landi með manninum mínum og mun bara
hafa það rosalega gott um helgina," segir leikkonan og grín-
istinn Helga Braga, sem segist lítið vilja plana fyrir komandi
helgi.
,Tíminn er einhvern veginn svo afstæður og lítið vit í því að
plana of mikið. Við munum bara sjá hvernig gírinn verður
hverju sinni. Maður vaknar, fílar daginn og sér til. Það er mér
mjög mikilvægt að fá algjört fri frá öllum plönum og njóta þess
að vera í fríi. En auðvitað förum við út að borða og gerum eitt-
hvað huggulegt. I gær var tunglið hérna til dæmis appelsínu-
gult og alveg yndislegt að horfa á það. Ætli maður verði ekki
bara í því líka - að horfa á tunglið og sólarlagið.“
Skírir soninn á
sunnudaginn
„Hápunktur helgarinnar er auðvitað skírn
sonar míns sem verður núna á sunnudag-
inn. Þar verð ég með fjölskyldunni og við gerum okkur
glaðan dag,“ segir knattspyrnumaðurinn Marel Baldvins-
son sem er nýkominn til landsins í sumarfrí frá knatt-
spyrnuiðkun í Noregi. Svo er aldrei að vita nema maður
kíki eitthvað út. Ég og vinur minn, Árni Sveinsson, erum
búnir að vera með tippleik í enska boltanum og sá sem
tapar þarf að bjóða hinum út að borða. Því miður tapaði
ég að þessu sinni og fæ því að blæða á hann. Það verður svo
bara að koma í Ijós hvert við förum! Svo ætla ég að rúlla
upp þeim Kristjáni Óla Sigurðssyni og Arnari Grétarssyni
í golfi um helgina."
Með Siggu Beinteins
á Akureyri
„Ég er að fara að spila á Akureyri með Siggu Bein-
teins og rosalega flottum gaurum sem verða
með okkur,“ segir söng- og leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir.
„Við ætlum að taka Tinu Turner tribute-ball bæði á föstudags-
og laugardagskvöldinu. Við brunum norður í hádeginu á föstu-
dag og svo verður bara rosa gaman alla helgina. Við ætlum auð-
vitað að gera allt vitlaust og ná upp góðri stemningu. Annars
verða þetta aðallega lögin sem við tókum á Tinu Turner-sýn-
ingunni á Broadway, en þetta verður reyndar í meira ballformi.
Vonandi fer fólk að dansa með. Ég lofa allavega góðu stuði og
vona að sjálfsögðu að sem flestir mæti.“
Sigursveinn Þór Ámason
Sigursveinn er Akureyringur
en býr í Reykjavík. Hann er
24 ára og hefur sinnt tónlist
frá 18 ára aldri í hinum ýmsu
hljómsveitum, kórum og
sönghópum og numið söng
við FÍH. Hann ar að Ijúka 1.
árs námi frá Complete Vocal
Institute. „Ég hef mjög góða
tilfinningu fyrir þessu. Þetta
er sterkur hópur og við höfum
haft mjög gaman af þessu.“
Arnar Jónsson 22 ára strák-
ur úr Árbænum. Hann hefur
aldrei lært söng en ákvað
að slá til og mæta í prufum-
ar. „Draumurinn er að gerast
söngvari; vera partur af þess-
um hópi, sem samanstendur
af skemmtilegum og góðum
söngvurum sem leggja allt í
þetta,“ sagði Amar um ástæð-
ur þess að hann fór í prufurnar.
, Þetta er sannarlega stærsta
tækifæriðtil þessa.“
Edgar Smðri Atlason
Edgar Smári er 25 ára Reykvík-
ingur sem hóf fyrst upp raust
sína aðeins tveggja ára gam-
ail. 10 ára hóf hann söngnám
hjá Jóni Stefánssyni og hefur
hann síðan sungið í framvarða-
sveit Gospelkórs Reykjavíkur
og tekið þátt í fjölda tónleika
á þeirra vegum. Hann hefur
lokið 2.-3. stigi í tónlist en vill
þó meina að skóli lífsins hafi
kennt sér einna mest.
Rúnar Kristinn Rúnarsson
er 20 ára. Hann kemur frá
Vestmannaeyjum. Hann byrj-
aði snemma að syngja með
kórum og 16 ára tók hann tón-
listina fastari tökum og er nú
að læra klassískan söng við
Tónlistarskólann í Vestmanna-
eyjum. „Þetta eru skemmtileg-
ir strákar og ég held að okkur
eigi alls ekki eftir að leiðast.
Mig langar að vinna við að
flytja tónlist,“ sagði Rúnar.
Heimir Bjami Ingimarsson
er 27 ára Akureyringur sem
fékk sína fyrstu skólun hjá
Ingimar heitnum Eydal. Heimir
hefur sungið í kórum, hljóm-
sveitum og sem einsöngvari.
Hann kláraði framhaldsstig í
klassískum söng hjá Michael
Clarke frá Tónlistarskóla
Akureyrar og hélt svo í nám
í poppi, rokki og djassi í The
London Music School. Nú er
hann í söngkennaranámi.
DÖnghópurinn Lnxor lítur dagsins Ijós
Eöaldrengir og megasöngvarar
Umboðsmaðurinn Einar Bárðarson komst í fréttirnar
á dögunum þegar hann boðaði til áheyrnarprófs
fyrir fyrirhugaðan karlasönghóp. Honum hefur
greinilega orðið kápan úr því klæðinu því nú hefur
sönghópurinn Luxor litið dagsins Ijós með fimm karl-
mönnum innanborðs.
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@bladid.net
Sönghópinn skipa þeir Rúnar
Kristinn Rúnarsson, Sigursveinn
Þór Árnason, Heimir Bjarni Ingi-
marsson, Arnar Jónsson og Edgar
Smári Atlason. Miðað við vinsældir
skjólstæðinga Einars til þessa má
gera því skóna að strákarnir verði
tíðir gestir á skemmtunum hér
heima næstu misserin.
„Þetta eru algjörir eðaldrengir
og megasöngvarar," segir Einar að-
spurður um herramennina fimm.
Hann segist fullur tilhlökkunar að
kynna sveitina fyrir þjóðinni þegar
þeir stíga fyrst á svið í ágúst. „Þetta
verður rosalega gaman. Æfingar
eru hafnar og það er allt á fullu hjá
hópnum. Þeir eru núna að æfa með
raddþjálfaranum Kristjönu Stefáns-
dóttur, sem á svolítið mikið í þessu
verkefni með mér, og svo fara þeir
í æfingar hjá Yesmine Olson sem
fer í sviðsframkomuna með þeim.
Undirbúningur að fyrstu plötunni
er þegar hafinn og mun Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson stýra upptökum
ásamt Vigni Snæ Vigfússyni."
Nylon og Luxor saman í
fimmtugsafmælinu
Að sögn Einars er ekki um hið týp-
íska strákaband að ræða heldur söng-
flokk sefn leggur lag sitt við klass-
ískt og hátíðlegt popp. Einar hefur
einnig lýst hópnum sem Álftagerðis-
bræðrum yngri kynslóðarinnar.
„Fólk mun bara sjá það þegar að
því kemur en þetta er ekki eitthvert
strákaband. Þetta verður hátíðlegt
popp. Efnisvalið eru íslensk dæg-
urlög komin aðeins til ára sinna,
kannski frá
árunum 70-
80, og svo
verðum við
eitthvaðíklass-
ísku erlendu
poppi. Til sam-
líkingar má
nefna tónlist
Josh Groban
þó svo að ekki
sé hægt að
líkja tónlist-
inni endilega saman við hann. Þetta
verður allavega aðalmálið í vetur,“
segir Einar.
Að gefnu tilefni er Einar inntur
eftir svörum um hvort hér sé um að
ræða svipað fyrirbæri og Nylon, en
hann segir þetta gjörólíkt í alla staði.
,Þetta er allt öðruvísi hugmynd en
Nylon. Allt annar markhópur og
ekki hægt að líkja þessu saman. En
maður gerir svo sem alveg ráð fyrir
að þessar sveitir eigi eftir að spila
einhvern tímann saman, þó svo að
það verði kannski ekki fyrr en í
fimmtugsafmælinu mínu!“
Einar Bárðarson
Motion Boys og
Brian Ferry
Hin nýstofnaða hljómsveit Motion
Boys hefur getið sér gott orð og
ræðir Blaðið við Birgi ísleif Gunn-
arsson, söngvara og annan forsp-
rakka sveitarinnar.
tt
Drullusvað á
Hróarskeldu
„Vá, það er blautt,“ sagði blaða-
maður Blaðsins, Atli Fannar
Bjarkason, sem er á blautustu Hró-
arskelduhátíð hingað til. »33
Ánægðir með Nasa
„Við spiluðum á tvennum tón-
leikum á Nasa og skemmtum
okkur konunglega í bæði skiptin,“
segja liðsmenn hljómsveitarinnar
Cannibal Corpse.
»34
w
1
aids m
%: £i
Tággrannar
stjörnur
Stjörnurnar i Hollywood halda sér
í fantaformi þótt þær séu komnar
á fimmtugsaldur. Sumar
mættu þá bæta á sig.