blaðið - 10.07.2007, Blaðsíða 1
blaóiö
í gegnum tíðina hafa íslendingar
Veldu gœði, veldu
í)e/ Monte
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@BLADID.NET
ÞRIÐJUDAGUR 10.JÚLÍ
Kvennaganga á
Laugaveginum
18
Konur ráða
ríkjum í Sniglunum
20
Karlar tala jafn
mikið og konur
21
Sinnir friðargæslu-
störfum í Kabúl
23
Vinsælir símar
í Hoilywood
24
Victoriu Beckham-klipping vinsæl
Lilja Torfadóttir, hársnyrtir á
hárgreiðslustofunni Jóa og félögum,
segir að það sé mjög margt í gangi í
hártískunni nú í sumar. Annaðhvort
vilji konur vera með mjögýktar klipp-
ingar eða ekki. „Margar konur eru
komnar með klippingu eins og Vic-
toria Beckham er með. Það eru mis-
munandi útgáfur af þeirri klippingu.
Hún er þannig að það er klippt stutt
undir oghnakkinn hafður þungur og
svo eru ýmsar útfærslur búnar til af
þessari klippingu. Þá er einnig hægt
að hafa skarpa línu öðrum megin og
síðara hinum megin. Stundum er
rakað undir og þungur stallur settur
aftan á. Þetta er kannski frekar klipp-
ing fyrir yngri konur og þær vilja oft
hafa afgerandi stall. Fyrir þær sem
vilja ekki vera með svona ýkta klipp-
ingu er hægt að gera aflíðandi stall
að aftan. Það er búið að vera mikið
af tjásum en núna er meira um
þungar beinar línur. Eins finnst mér
að það séu að koma inn síðari toppar
en voru áður.
Mér finnst hártískan breytast svo-
lítið á sumrin. Þá koma mjög margar
og láta lýsa hárið. Sumar vilja lýsa
hárið um tvo til þrjá tóna en aðrar
vilja vera alveg ljóshærðar. Oft virð-
ist fólk vera meira til í að breyta og
gera eitthvað villt á sumrin.“
Lilja segir að konur ættu að hafa
i huga að setja djúpnæringu reglu-
lega í hárið. „Það getur verið gott
að setja skol í hárið þegar búið er að
setja strípur. Það gefur hárinu mik-
inn gljáa. Skolið fer mun betur með
hárið en strípur og konur eru farnar
að hugsa meira um það að láta ekki
alltaf ekta lit í hárið. Mikilvægt er að
kaupa gott sjampó og góða næringu.
Það munar svo miklu fyrir hárið að
nota góðar vörur og þó að það sé dýr-
ara þá fer það mun betur með hárið.“
Hvað varðar haustið segir Lilja
að hún haldi að sumartískan haldi
sér fram á haustið. Það hafi mjög
margar stelpur verið með þungan
topp sem var alveg við augabrúnir.
En núna er toppurinn að síkka.
Ýktar strípur fara minnkandi og í
staðinn er komið náttúrulegra útlit.
Victoriu-klippingin muni þó alveg
örugglega halda sér í haust. Sumar
konur koma með myndir af þeim
stjörnum sem þær vilja líkjast og
þá reynir hárgreiðslufólkið að líkja
eftir þeirri klippingu. „Flestar kon-
urnar koma með myndir til viðmið-
unar. Við reynum að finna út hvaða
klipping hentar hverjum og einum,'
bætir Lilja við að lokum.