blaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 1
íslandsvinur
Samrýmdar mæðgur
Systurnar Elín, María og
Kolfinna Hlöðversdætur
og móðir þeirra, Kolfinna
Guðmundsdóttir, eiga
allar Toyota Yaris bifreiðar i
með skemmtilegum J
einkanúmerum. ■
Nýstárlegt gallerí
Ólafur Orri Guðmundsson er
fatahönnuður og mynd-
listarmaður. Hann er
r. aðopna nýjategund
af galleríi þar sem
blandað verður
saman listgreinum.
Goldie, ein skærasta stjarna
danstónlistar síðasta
áratugar, ætlar að spila J
á Nasa annað kvöld |
en hann er fyrrver- m
andi kærasti Bjarkar
Guðmundsdóttur.
\ FÓLK»38
ORÐLAUS»3
BILARX26
129. tölublað 3. nrgangur
Föstudagur
13. júlí 2007
FRJALST, OHAÐ &
Opið alla daga frá kl. 10.-20.
SP, R
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
Þúsund manns bíða
eftir félagslegri íbúð
■ Færri íbúðir til ráðstöfunar fyrir lágtekjufólk eftir að félagslega húsnæðiskerfið var aflagt
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Um síðustu mánaðamót voru 746 manns á bið-
lista eftir félagslegri íbúð í Reykjavík. í Kópavogi
bíða rúmlega 100 manns eftir félagslegri íbúð en
rúmlega 160 í Hafnarfirði.
Þótt leiguíbúðir í eigu Félagsbústaða í Reykja-
vík séu nær 2000 og hafi fjölgað um 100 á ári á
undanförnum árum eru úrræðin nú færri fyrir
þá sem þurfa aðstoð en á tíma félagslega húsnæð-
iskerfisins sem lagt var niður 1999.
„Það er alveg ljóst að áður en það var lagt niður
komu að jafnaði 300 til 400 ódýrar eignar- og
kaupleiguíbúðir á markaðinn á ári. Fólk gat
keypt þær með 90 til 100 prósenta lánshlutfalli.
FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
► Félagsbústaðir í Reykjavík voru
stofnaðir 1997 og eru að mestu í
eigu borgarsjóðs.
► í árslok 2006 áttu Félagsbústaðir 1963
íbúðir, nær allar í fjölbýlishúsum.
► Velferðarsvið Reykjavíkur annast
úthlutun íbúðanna.
Nú eru því færri íbúðir til ráðstöfunar fyrir lág-
tekjufólk," segir Sigurður Kr. Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða.
Frá 1990 til 2000 voru að jafnaði um 500 á biðl-
ista eftir félagslegu húsnæði í Reykjavík. Listinn
fór að lengjast upp úr 2001 og var orðinn 1100
manns 2003. Eftir að sérstakar húsaleigubætur
voru teknar upp 2004 fór að fækka á listanum.
Engar íbúðir eru nú í framleigu á vegum Fé-
lagsbústaða. Framleigukerfið var aflagt 1998
og ekki stendur til að taka það upp á ný þótt
biðlistinn eftir félagslegu húsnæði sé langur, að
sögn Sigurðar. „Það var mjög óhagkvæmt kerfi.
Maður þurfti þá að eiga við þriðja aðila og leigan
var geysilega há. Leigan fyrir leigjandann var sú
sama og ef hann hefði verið í íbúð í okkar eigu.
Þetta gekk ekki upp. Það var miklu hagkvæmara
fyrir okkur að kaupa húsnæði.“
VILJA EKKIKEPPA VIÐ UNGT FÓLK6
Tíu síbrotamenn
dæmdir í tukthús
Tíu ungir síbrotamenn voru dæmd-
ir í óskilorðsbundið fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær. Þyngsta
dóminn fékk tvítugur piltur, 30
mánaða fangelsi. Sá yngsti í hópn-
um er 15 ára og fékk hann v>
20 mánaða fangelsi. Æm
Næstum jól á
hverjum degi
Hörður Jónsson, faðir sextán ára
fatlaðs drengs, skorar á sveitar-
félög að ráða fötluð ungmenni í
sumarvinnu. „Unglingarnir eru
mjög ánægðir. Þeim finnst eigin-
legaverajóláhverjumdegi
þegar þeir fara í vinnuna." w
íslendingar fá Harry Potter fyrstir
Minu/nHA
„Finnum fyrir mikilli eftirvæntingu og spenningi"
Starfsmenn Máls og menningar á Laugavegi skreyttu í gær verslunargluggann með mynd af Harry Potter. Nýju
bókarinnar um galdradrenginn er beðið í ofvæni. „Við finnum fyrir mikilli eftirvæntingu og spenningi,“ segir
Elsa María Ólafsdóttir verslunarstjóri. Vegna tímamismunar fá Islendingar bókina fyrstir Evrópubúa.Salan hefst
föstudagskvöldið 20. júlí klukkan eina mínútu yfir ellefu í þremur verslunum Máls og menningar og Eymundsson.
Skylda að
eiga val
Norskri konu var nýverið
neitað um að kaupa verkjatöfl-
urnar parasetamól í apóteki í
Harstad á þeirri forsendu að
það væri réttur hvers neytanda
að geta valið um tvenns konar
lyf. Lis-Mona Mjoen segir í við-
tali við Verdens Gang að hún
hafi beðið afgreiðslukonuna
um parasetamól sem nóg var
til af. „Þau gátu ekki selt mér
parasetamólið sem ég bað um,
þar sem íbúfen hafði selst upp
hjá þeim. Hún sagði reglurnar
vera skýrar um að það væri
réttur minn sem neytanda að
geta valið á milli tveggja sam-
bærilegra lyfja.“ aí
NEYTENDAVAKTIN
River Rice-hrísgrjón
Verslun Krónur
Kaskó 183
Fjarðarkaup 186
11-11 225
Melabúðin 225
Samkaup-Strax 234
10-11 239
Verð á River Rice-hrísgrjónum í 907 g pakkningu
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
m USD SALA 60,42 % -0,24 ▼
tafjsss GBP 124,56 -0,44 ▼
■ ■n DKK 11,19 -0,22 ▼
• JPY 0,49 -0,47 ▼
m EUR 83,24 -0,17 ▼
GENGISVlSITALA 112,37 -0,18 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 8.758,72 0,4 A
VEÐRIÐ I DAG
VEÐUR»2
VEXTIR FRÁ ... að það er hæat að létta ■ "1
AÐEINS Þanniq er mál z>c ^ . - JLm 1
Miðað við myntkörfu 4, Litaor-vextir 23.4.2007. með vexti ... greiðslubyrðina. FRjÁLSI