blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 1
FERÐALÖG»: Bjargar íslandi Siggi pönk vill bjarga (s- landi frá álrisum með mómælaaðgerðum. Hann segist snemma hafa fengiðáhugaá heimsmálunum. FÓLK»30 Allir vilja ís Guðrún Lísa Einarsdóttir, rekstrarstjóri ísbúðar- innar í Álfheimum, segir örtröð vera allan dag- inn í íssölunni nú þegar veðrið leikur við lands- menn dag eftir dag. ORÐLAUS28 131. tölublaö 3. árgangur Þriðjudagur 17. júlí 2007 FRJALST, OHAÐ & OK Út um allan heim Þrúður Helgadóttir hefur ferðast víða og heldur utan um vef sem nefn- ist bakpokinn.com þar sem finna má allar nauð synlegar upplýsingar fyrir bakpokaferðalög. OR selur Gagnaveituna Söluverð sagt munu hlaupa á milljörðum ■ Fulltrúi VG andvígur sölu án umræðu Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net „Gagnaveita Reykjavíkur verður seld ef sann- gjarnt verð fæst fyrir hana,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri Reykjavíkur. Nú stendur yfir undirbúningsferli vegna sölu fyrir- tækisins þar sem gert verður verðmat á fyrirtæk- inu og leitað eftir kaupendum. Gagnaveita Reykja- víkur er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur og hét áður Lina.net. Seld fyrir rétt verð Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segist ekki vita til annars en að sátt ríki um söluna á Gagnaveitu Reykjavíkur. „Enda hef ég sagt að það sé óeðli- legt að Orkuveitan standi í samkeppnisrekstri hvað þetta varðar. Það eru fleiri fyrirtæki sem geta gert þetta. Við eigum fyrst og fremst að vera í þvi að framleiða rafmagn, heitt vatn og kalt vatn og gera það á eins hagstæðan hátt og kostur er,“ segir Vilhjálmur. GAGNAVEITA REYKJAVÍKUR EHF. ► ► ► ► Fyrsti vísirinn að Gagnaveitunni var Lina.net sem var stofnuð 1999. Gagnaveitan var stofnuð í byrjun ár 2005 og breytt í hlutafélag í byrjun þessa árs. Frá upphafi hefur Orkuveitan fjárfest fyrir um 5 milljarða króna í fyrirtækinu. Ljósleiðaranet fyrirtækisins nær um allt höfuðborgarsvæðið, upp á Bifröst og austur fyrir fjall og til Vestmannaeyja. Hann segir að Gagnaveitan verði seld fáist fyrir hana sanngjarnt verð. Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, segist því andvíg að Gagnaveitan verði seld án frekari umræðu og að hún viti ekki til þess að slík ákvörðun hafi verð tekin. „Það gildir það sama um þetta og aðra þætti Orkuveitu Reykjavíkur. Það þarf að eiga sér stað ýtarleg pólitísk umræða hjá eig- endum veitunnar sem eru Reykvíkingar og borg- arstjórn Reykjavíkur starfar í þeirra umboði,“ segir Svandís og bætir við: „Þetta á sér ekki bara stað við stjórnarborð Orkuveitunnar heldur á borgarstjórnarfundi." Þá segir Svandís að bent hafi verið á það á stjórnarfundi Orkuveitunnar að markaðurinn liti þannig út nú að þetta væri ekki góður tími til þess að verðmeta fyrirtækið. Söluferlið hafið Hjörleifur B. Kvaran, aðstoðarforstjóri Orku- veitunnar, segir að bankastofnun sé að verðmeta Gagnaveituna og síðan verði sett af stað söluferli ogleitaðeftirkaupendum.„Þegarverðmætiliggur fyrir þá verður það kynnt fyrir stjórninni sem tekur þá frekari ákvörðun um söluferlið," segir Hjörleifur en hann segir söluferlið í raun hafið og að söluverðið muni hlaupa á milljörðum. Ódýrara fyrir eldri hjón að skilja? Hjónum á áttræðisaldri sem búa á suðvesturhorninu var ráðlagt af fulltrúa sýslumanns að skilja af hagkvæmniástæðum. Við skilnað myndu kjör þeirra batna og „ bætur frá ríkinu aukast. A Töffaraskapur stjómmálamanna Guttorm Vik, fráfarandi sendiherra Noregs, kveður nú ísland með söknuði. Hann gagnrýnir hins vegar íslenska stjórnmálamenn fyrir töffaraskap í sam- \\y| skiptum við Noreg. Hættulegasta gata Reykjavíkur Slysum fjölgaði um 45 prósent á Miklubraut á milli ára Miklabraut hlýtur þann vafasama heiður að vera sú gata Reykjavíkur, þar sem mest tjón varð í umferðinni í fyrra. I Reykjavík allri voru umferðartjón og slys 35 prósent fleiri í fyrra en árið 2005. Er áætlaður kostnaður trygginga- félaga, tjónvalda og samfélagsins um tólf milljarðar króna. Tæplega 20 þúsund bílar skemmdust í borginni. \\^> Ef þeir yrðu settir í eina bílalest yrði hún 89 kílómetra löng og næði upp í Reykholt í Borgarfirði. v m i2 Vönduð veiðarfæri Þú færð IG-veiðivörur í næstu sportvöruverslun Lifir Lúkas? Hundurinn Lúkas, sem í síð- asta mánuði var talinn hafa verið drepinn á hrottalegan hátt, er að öllum líkindum á lífi. Lögreglu á Akureyri barst tilkynning um að hundur af kyninu Chinese Crested hefði sést fyrir ofan bæinn á lífi og var í kjölfarið haft samband við eigandann sem fór á stað- inn og sagðist fullviss um að um Lúkas væri að ræða. Lúkas er sagður styggur, en nú er það í höndum eigandans að reyna að fá hundinn til síns heima. Hundruð manna tóku þátt í kertavökum sem haldnar voru á Akureyri, í Reykjavík og Hveragerði til að minnast hundsins í síðasta mánuði. NEYTENDAVAKTIN Debetkort árgjald í . 'ra1 Fyrirtæki Krónur KB banki 375,- Glitnir 400,- Landsbankinn 495,- Sparisjóðir* 370,- *leiðbeinandi verðskrá Upplýsingar f rá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SAU % usd 60,39 0,31 A i SlS GBP 123,12 0,58 A 55 DKK 11,19 0,33 A • JPY 0,49 0,67 A BB eur 83,30 0,35 A GENGISVÍSITALA 112,52 0,40 A ÚRVALSVÍSITALA 8.764,00 0,06 ▲ VEÐRIÐ í DAG L VEÐUR»2 Í31 loloíidas Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.