blaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLl 2007
blaðiö
Mannbjörg þegar þyrla gæslunnar hrapaði
TF-SIF hrapaði í sjóinn
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, hrapaði í sjóinn mitt á milli
Straumsvíkur og Hafnarfjarðar-
hafnar um klukkan sjö í gærkvöld.
Fjórir menn voru um borð en engan
þeirra sakaði samkvæmt upplýs-
ingum frá Landhelgisgæslunni.
Þegar Blaðið fór í prentun var
unnið að því að bjarga þyrlunni úr
sjónum og prammi sem búinn er
krana á leiðinni að þyrlunni til þess
að freista þessa að hífa hana upp úr
sjónum.
Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu
en talið er líklegt að um vélarbilun
hafi verið að ræða.
Kolefnisnýtíng, lífslíkur og lífsgleði
Islendingar
hamingjusamastir
fsland er það land í Evrópu sem
er best fallið til að veita borgurum
sinum langt og hamingjuríkt líf.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar
sem New Economics Foundation og
Friends of Earth standa fyrir.
Rannsóknin metur löndin út frá
kolefnisnýtingu ríkjanna, lífslíkum
og lífsgleði íbúanna. Öll Norður-
löndin skoruðu hátt í könnuninni
og var Svíþjóð í öðru sæti, Noregur
í þriðja og Danmörk í því sjötta. Eist-
land rekur lestina á listanum, en þar
rétt á undan koma Lúxemborg, Búlg-
aría og Grikkland.
„Lönd eins og ísland sýna berlega
að hamingja þarf ekki að koma
niður á jörðinni," segir Nic Marks,
starfsmaður New Economic Found-
ation. „Með því að sameina sterkar
félagslegar áherslur og ríka notkun
endurvinnanlegra orkugjafa, er fs-
lendingum gert kleift að lifa innan
ramma umhverfismarkmiða, án
þess að fórna mannlegri velferð.“
f rannsókninni kemur einnig
fram, að þau lönd sem byggi hvað
mest á markaðshagkerfi komi verst
út, og að Evrópuríkin eigi erfiðara
með að skapa almenna velferð nú en
fyrir 40 árum.
Norður-Víkingur '07
Varnaræfing í ágúst
Fyrsta varnaræfingin sem fram
fer á fslandi á grundvelli samkomu-
lags íslenskra og bandarískra stjórn-
valda frá 11. október 2006 um varnir
landsins verður haldin hér á landi
dagana 13. til 16. ágúst næstkom-
andi. Æfingin skiptist annars vegar
í loftvarnaræfingu og hins vegar
æfingu gegn hermdar- og hryðju-
verkum. Yfirstjórn æfingarinnar
verður í höndum fulltrúa utanríkis-
ráðherra, en samræmingaraðili fyrir
loftvarnaræfinguna verður fulltrúi
bandaríska flughersins í Evrópu og
fyrir æfinguna gegn hermdar- og
hryðjuverkum verður fulltrúi Ríkis-
lögreglustjóra. Heildarfjöldi þátttak-
enda er áætlaður um þrjú hundruð
manns, þrettán flugvélar, þyrlur og
eitt eftirlitsskip.
f tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu segir að markmið æfingar-
innar sé að æfa flutning liðsafla til
landsins á hættu- og ófriðartímum,
staðsetningu, varnarviðbúnað,
ákvarðanatöku og samræmingu við
íslensk stjórnvöld. Fyrirhugað er
að æfingar af þessu tagi verði reglu-
bundinn hluti af varnarviðbúnaði
landsins.
Biðlistar Löng biö er eftir plássi á dvalar-
heimilum aldraðra á höfuðborgarsvaeðinu.
Skilnaður á
áttræðisaldri?
■ Eldri borgurum ráðlagt að skilja af hagkvæmnisástæðum
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Hjónum á áttræðisaldri sem búa
á suðvesturhorninu var ráðlagt af
fulltrúa sýslumanns að skilja af
hagkvæmnisástæðum. Við skilnað
myndu kjör þeirra batna og bætur frá
ríkinu aukast.
Einar Árnason, sem starfað hefur
sem hagfræðingur Landssambands
eldri borgara, segir að vel geti komið
upp sú staða að lágmarksbætur eldri
borgara hækki við skilnað. „Ef tveir
borgarar búa saman án annarra
tekna fær hvor einstaklingur að há-
marki 103.373 kr. mánaðarlega frá rík-
inu. Ef einstaklingar búa hins vegar
sitt í hvoru lagi þá hækka bætur hjá
hvoru fyrir sig upp í 126.537 kr. mán-
aðarlega." Skýring mismunarins er sú
að einstaklingur sem býr einn og fær
ekki tekjur annars staðar frá fær heim-
ilisuppbót, kr. 23.164 á mánuði.
Vistuð á mörgum stöðum
Konan, sem er yfir sjötugt, hefur
farið milli dvalarheimila siðustu
fimm ár eftir að hún skaddaðist á
heila. Eiginmaðurinn segir það al-
gera martröð að hafa barist við kerfið
til þess að koma konu sinni á dvalar-
heimili i sínum heimabæ. „Ég er að
verða brjálaður á barningnum við
kerfið. I landslögum segir að ef borg-
ari 67 ára að aldri óski eftir því að
komast inn á stofnun skuli hann eiga
þess kost. Það hefur alls ekki gengið
eftir í okkar tilviki vegna biðlista sem
ekkert virðist saxast á.“ Hann nefnir
að oft virðist sem aldraðir með ríf-
I DÆMI UM MÁNAÐARGJALD ALDRAÐRA Á DVALARHEIMILUM
Ógift(ur) með 150.000 króna lífeyrissjóðstekjur á mánuði. 75.361 króna
Ógift(ur) með 200.000 króna lífeyrissjóðstekjur á mánuði. 107.471 króna
Gift(ur) með 150.000 króna lífeyrissjóðstekjur á mánuði. Maki er undir 70 ára, býr heima og þénar 200.000 krónur á mánuði. 24.888 krónur*
Gift(ur) með 200.000 króna lífeyrissjóðstekjur á mánuði. Maki þarf vistun og er með 200.000 króna lífeyrissjóðstekjur. 107.471 krónaog maki einnig.
Það sem upp á vistgjald vantar greiðir Tryggingastofnun ríkisins
*Lægst er mánaðargjald einstaklings á dvalarheimili sem á maka sem þarfnast ekki vistunar á slíku heimili.
legan lífeyrissjóð komist hraðar inn
á dvalarheimili, þar sem heimilin fái
drjúgari tekjur af öldruðum sem hafa
hærri lífeyri.
Eiginkonan hefur meðal annars
verið vistuð á Reykjalundi, Landakoti,
í Víðinesi og á Kleppi á síðustu árum.
Einnig stóð henni til boða að fara í
vistun í Búðardal eða á Skagaströnd.
Fríða Pálmadóttir, forstöðumaður
Sæborgar, dvalarheimilis aldraðra
á Skagaströnd, segir ekki mikið um
að aldraðir af höfuðborgarsvæðinu
komi þangað i vistun. „Við erum með
nokkur pláss laus en oft er fólk ann-
ars staðar frá ekki tilbúið að koma á
ókunnugar slóðir.“ Jafnframt segist
Fríða vita af löngum biðlistum dvalar-
heimila höfuðborgarinnar.
Eiginmaðurinn segist þekkja til
margra einstaklinga í svipuðum
sporum og hann og kona hans. „Þetta
rústar fjölskyldunni og er alls ekki
einsdæmi.“
MÁLEFNI ALDRAÐRA
► Samkvæmt Tryggingastofn-
un ríkisins þarf einstakling-
ur aldrei að borga meira en
210.179 kr. á mánuði fyrir
vistun á dvalarheimili.
W Mánaðargjald einstaklings
^ á dvalarheimili fer eftir
ýmsu, þ.m.t. lífeyrissjóðs-
tekjum og því hvort einstak-
lingur er giftur.
► Samkvæmt lögum nr. 40,
1991, 39.gr. eiga félags-
málanefnd eða öldrunar-
málaráð að leitast við að
tryggja framboð á hentugu
húsnæði fyrir aldraða og
jafnframt skipuleggja félags-
lega heimaþjónustu.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Hefurðu hugleitt hvar þú
færð ódýrasta eldsneytið?
VEÐRIÐ í DAG
Hægviftri eða hafgola
Hæg vestlæg átt vestantil, en annars
hægviðri eða hafgola. Hiti 11 til 20 stig,
en heldur svalara við norður- og austur-
ströndina.
ÁMORGUN
Bjart til landsins
Hæg vestlæg eða breyfileg átt. Skýjað
með köflum og yfirleitt þurrt við strönd-
ina, en víða bjart til landsins. Hiti 8 til 18
stig, hlýjast inn til landsins.
Atak gegn
fíkniefnum
Hafin er skipulagning á sam-
eiginlegu átaki lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu og sér-
sveitar Ríkislögreglustjóra til að
stemma stigu við útbreiðslu og
notkun fíkniefna.
Að sögn Páls Winkels aðstoð-
arríkislögreglustjóra er átakið
árlegur viðburður fyrir verslun-
armannahelgi, enda koma þá
upp ýmis vandamál tengd fikni-
efnum. Ekki hefur verið ákveðið
endanlega til hvaða sértæku
aðgerða verður gripið, en lagður
verður aukinn þungi í mála-
flokkinn af hálfu lögreglunnar á
næstu dögum og vikum. hos
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 24 Halifax 24 New York 23
Amsterdam 25 Hamborg 32 Nuuk 9
Ankara 30 Helsinki 22 Orlando 24
Barcelona 28 Kaupmannahöfn 25 Osló 22
Berlín 36 London 22 Palma 27
Chicago 27 Madrid 26 París 25
Dublin 19 Milanó 32 Prag 32
Frankfurt 32 Montreal 17 Stokkhólmur 24
Glasgow 18 Munchen 30 Þórshöfn 10